

25.03 1988 - 19.01 2006
deildu minningum
|
Það er sárt að vita til þess að einhver manni kær skilur ekki eftir fleiri bros í hjarta manns, að hlýjunnar sem hún bar með sér njóti ekki lengur við; að hún sé horfin.
Þórey hvarf skyndilega frá okkur öllum og í stað minninganna sem enn var eftir að skapa lifir minningin um liðna tíð, gömlu brosin og góðu stundirnar. Fátt er eins hughreystandi og hlýjandi og að rifja upp minningar og sömuleiðis að deila þeim. Gjörið svo vel.
Guð blessi fjölskyldu Þóreyjar og vini - við vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð.
- Friðþjófur og Birgir Þór | 20/01/06 02:56
|
|
Ég bara trúi þessu ekki ennþá. Get það ekki og neita því! Þetta er svo djöfullega ósanngjarnt að það er ekki eðlilegt. Hún var svo frábær stelpa, held að enginn fatti það almennilega fyrr en við vitum að við höfum misst hana. Hún var sú manneskja sem var nánust mér af öllum, enda tvíburasystir mín. Hún var nánari mér en allar hinar systur mínar og maður fattar ekki fyrr en núna hversu stór hluti hún var af mér, hún var einsog allir segja, hinn helmingurinn af mér! Maður hugsar alltaf EF.. ég vissi aðég hefði ekki átt að fara í vinnuna þennan dag því þá hefði hún fengið far með mér inná Ísafjörð, en í staðinn skildi mamma bílinn eftir hjá henni og fór með systir okkar í vinnuna, og ég ákvað að fara í vinnuna líka.. eftir vinnuna hringdi Guðbjörg, vinkona hennar, í mig og spurði hvar hún væri því hún hefði ekki mætt í vinnuna. Ég svaraði einsog asni, að ég héldi að hún hefði bara sofið yfir sig því hún hafi lagt sig áður en ég fór. Tveimur mínútum eftir símtalið frá Guðbjörgu fékk ég símtal frá prestinum, hann vantaði símanúmerið hjá pabba. Þá fór mig eitthvað að gruna og ákvað að fara heim og gá hvort hún væri þar, en þegar ég kom að fyrstu gatnamótum þar sem ég gat séð hnífsdalsveginn sá ég langa röð af bílum sem voru stopp. Ég dreif mig að röðinni og hljóp svo það sem eftir var á slysstaðinn, sá bílinn í klessu í sjónum! Ég vissi strax hvað hafði gerst því að presturinn hafði hringt fyrr, þetta var ömurlegasta sjón í öllu mínu lífi!!
Fyrir mér er lífið svo sannarlega ósanngjarnt, því ef það var einhver manneskja sem átti eitthvað svona ekki skilið, þá var það hún Þórey! Hún vildi öllum gott og gerði mörg góðverkin, það eiga allir eftir að sakna hennar því hún var yndisleg stelpa! En ég veit ekkert hvað ég á að skrifa meira, svo margt sem mig langar að skrifa en get ekki komið orðum að. Ég vill bara þakka öllum mínum vinum fyrir frábæran stuðning og ég elska ykkur öll, lofið mér að fara ykkur varlega því ég vill ekki missa fleiri sem mér þykir svona vænt um.
Megir þú hvíla í friði elsku Þórey mín.
- Þórir | 20/01/06 03:12
|
|
Ég veit ekki hvað skal segja. Þórey var ein sú blíðasta manneskja sem ég hef þekkt, hun var yndisleg. Hún vildi engum illt og manni sárnar af þvi að hugsa til að svona yndisleg stelpa skuli lenda í svona löguðu Hún átti þetta ALLS EKKI SKILIÐ....Mig langar að spóla til baka og bjarga henni en það er víst ekki hægt en núna er ég farin að bulla. en já Þórey mín megir þú hvílast í friði og vernda þórir og fjölskylduna þvi ekki veitir af þvi sérstaklega núna þarf öll fjölskyldan á öllum styrk að halda og allri hjálp sem berst... ég votta mína alla samúð og geri allt! til að hjálpa...
- Stefán Reyr | 20/01/06 03:37
|
|
Ég stóð sem lömuð þegar ég fékk þessar sorgarfréttir í gær. Þórey, stelpa í blóma lífsins sem átti allt framundan og vildi öllum gott.Hvernig getur guð gert okkur þetta ?
Ég æfði með Þóreyju körfubolta um stund og það var sko alltaf gott að tala við hana og bara ein frábærasta manneskja sem ég hef þekkt.
Ég vil votta Þóri, fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínu dýpstu samúðarkveðjur.
Megi þú hvíla í friði
- Ingibjörg Elín Magnúsdóttir | 20/01/06 06:39
|
|
Æji elsku Þórey mín. Ég er bara virkilega ekki að ná þessu. Mér finnst eins og ef ég fari í skólann núna þá sértu þar bíðandi eftir mér með bros á vör. Þetta gerðist of fljótt! Þú varst alltaf svo góðhjörtuð og yndisleg. Einlægi hláturinn og rólega röddin. Alls kyns hugsanir og minningar hafa farið í gegnum huga minn frá því að ég fékk fréttirnar. Allt sem við vorum búnar að plana að gera saman. Við ætluðum að ferðast um heiminn eftir menntaskólann og skoða framandi staði. Ég man sérstaklega þegar við vorum að byrja í 9. bekk og við tókum okkur göngutúr í bænum. Við töluðum um að við þrjár, þú, ég og Elisabeth, ætluðum alltaf að vera bestu vinkonur þangað til við yrðum hundgamlar. Jafnvel að sitja saman á elliheimili að prjóna!
Það sem fær mig til að brosa í gegnum tárin eru allar þær góðu minningar sem við áttum saman. Þær voru svo margar, mikið hlegið og haft gaman og ég er svo ósköp þakklát fyrir þær. Öll vídjókvöldin sem við héldum þarna á tímabili þar sem við vöktum langt fram á nótt að horfa á hryllingsmynd eftir hryllingsmynd og gátum ekki sofnað á endanum. Nema þú. Þú varst alltaf svo róleg yfir þessu öllu saman og gast alveg sofið á meðan ég og Elisabeth glenntum augun af hræðslu.
Mig dreymdi þig í nótt þar sem ég gekk inn í skólastofu og þar sastu með breitt bros á vör og englasvip. Enginn sagði neitt í stofunni og allir horfðu á þig þar sem nánast glampaði af þér. Ég nálgaðist þig og gat ekki sagt orð í draumnum. Mig langaði að faðma þig, kyssa og knúsa en ég gat það ekki. Þú sast bara og brostir upp til mín, svo róleg og yfirveguð. Ég ætla taka þennan draum sem svo að þú ert nú þegar komin á góðan stað elsku Þórey mín og horfir niður á okkur öll og vakir yfir okkur, fjölskyldu þinni og vinum.
Lífið er svo ósanngjarnt. En ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum, mína fyllstu samúð á þessum erfiðu tímum. Hvíl í friði elsku Þórey mín, ég mun sakna þín svo sárt!
Þín Anna María
- Anna María Guðmundsdóttir | 20/01/06 08:58
|
|
Elsku Þórir og fjölskylda, ég og fjölskylda mín viljum votta ykkur alla okkar samúð, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt Þórey mikið en samt nóg til að vita að hún var yndisleg manneskja, vönduð, vel liðin, vildi öllum gott, það skein af henni hvað hún var góð og falleg manneskja og bros hennar lýsti upp herbergið. Ég vildi óska að ég hefði fengið tækifæri til þess að kynnast henni betur. Ég finn rosalega til með fjölskyldu Þóreyjar, vinum, vinnufélögum, æfingafélögum og öllum öðrum nákomnum. Hvíldu í friði Þórey †
- Herdís Mjöll og fjölskylda | 20/01/06 09:01
|
|
Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja .. Ég trúi þessu bara ekki ennþá.. :'( Elsku Þórey .. af hverju gerist þetta fyrir manneskju eins og þig. Ég heyrði í þér eftir skóla í gær 19 janúar. Þú labbaði til þín og þú sagðir hvað leðurjakkinn minn væri æðislegur.. En þú sagðist ætla kaupa þér svona alveg eins:) Síðan labbaði ég brosandi í burtu og kallaði sjáumst á morgun.. Sá morgun kom aldrei:'( Ég man eftir öllum stundum okkar saman.. En þær eru svo margar, skólaferðalagið, reykjarferðin, afmælin og böllinn.. :) Ég mun aldrei gleyma því.. Mér finnst svo skrítið að skrifa svona, því ég hélt að ég þyrfti aldrei að gera það.. Allavega ekki svona snemma.. :'(
Elsku Þórir, Sara, Rakel, Helga, Elenborg og Guðmundur mína dýpstu samúðarkveðjur til ykkar allra.. :*:* Hvíldu í friði Þórey mín.. :*:*
- Bryndís Helga. | 20/01/06 09:36
|
|
Ég vil votta Þóri, Helgu, fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur alla leið frá hjartarótum...við eigum aldrei eftir að gleyma þessari yndislegu stelpu.
- Edith Guðmundsdóttir | 20/01/06 09:40
|
|
Elsku Þórey! Ég þekkti Þórey ekki mikið en þetta er alveg ótrulegt hvað getur skeð á einni sekundu eða minutu. Þegar ég byrjaði í grunnskólanum var ný, þú tókst svo vel móti mér og vast algjör yndi. En svo breyttist allt og timin leið en samt fannst mér þú algjört yndi! Á Þriðjudaginn hringdiru í mig og baðst mig um að gera þér greiða og ég gat ekki sagt nei, ekki við þig. Þu gleymdi möppunum þínum á Suðureyri, þar vastu að þjálfa krakka á Suðureyri. Svo kom ég með þetta í fyrradag og þú vast svo sæt eins og vanalega. Siðustu orðin sem ég fékk að heyra frá þér voru: Takk og þetta fallega bros þitt! Þetta er allt svo erfitt, að sjá þig ekki í skólanum og ekki heyra hláturinn þinn. Bara ef ég gæti sagt þér hvað mér þykir vænt um þig þótt ég þekkti þig ekki mikið! Og ég vona að þér liði vel núna. Þú vast svo góð við alla og vildir öllum best. Þegar ég sá þig fyrst skrifaði ég nafnið þitt í hjarta minum og þar mun það vera að eilifu! Mun aldrei gleyma þér! Því í minum augum þú vast ERT yndi og get ekki ennþá trui þessu..Guð tekur alltaf þá bestu og þú vast ein af þeim! Ég vil votta Þóri, fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Dominika Majewska | 20/01/06 09:46
|
|
Mikið getur lífið verið ósanngjarnt. Að taka frá okkur stúlku í blómalifsins. Megi þú hvíla í friði elsku Þórey.
Hví var þessi beður búinn,
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúinhljóma
gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: "Kom til mín!"
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
- Björn Halldórsson
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum - mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Vera Dögg Snorradóttir | 20/01/06 10:08
|
|
Svona lagað get ég ekki skilið í þessum heimi, hvernig getur þetta gerst, afhverju þarf hún að kveðja okkur svona snemma? Það sem ég þekkti af henni var ekki mikið nema að hún stútaði mér í körfubolta, en hún Þórey er svo sérstök stelpa og ein blíðasta sem ég hef nokkurn tíman þekkt, ég bara get ekki ýmindað mér hvernig líf það er að missa hana fyrir fjöslskyldu og vini. Ég votta dýpstu samúð til allra sem þekkja hana Þóreyju og ég veit að hún mun hvílast á góðum stað.
- Grétar Þór | 20/01/06 10:12
|
|
Ég þekkti Þórey voða lítið, hafði alveg talað við hana stökum sinnum. En ég vissi alltaf hver hún var og líkaði vel við hana. Ég vissi að hún væri góð manneskja sem vildi öllum gott og átti gott skilið.
Samúð frá mér til Þóris og fjölskyldu hans. Megi Þórey hvíla í friði
- Ásgeir Helgi | 20/01/06 10:39
|
|
Elsku Þórey :*
Hvað get ég sagt? Þetta er svo óraunverlulegt, Þórey, farin, ég bara get ekki trúað því,ég vil bara ekki trúa þessu. Þessi frábæra stelpa sem öllum þykir svo vænt um.
Ég bíst enþá við að hitta þig einhverntíman bráðlega í skólanum eða samkaup þar sem þú vanst, alltaf með bros á vör.
Þórey var æðisleg í alla staði, frá toppi til táar, það fást ekki orð yfir hana hversu frábær og æðisleg hún var og er. Eitt bros frá þér lét mann líða svo vel, bara að hafa þig nálægt var meira en frábært, öll spjöllin og allt í kringum þig var æðislegt.
Man alltaf þegar ég hitti þig í fyrsta skipti í harðfiskverkunninni hjá pabba þínum, þú vast hjá honum ásamt Þórir og við vorum báðar of feimnar til að tala. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem ég hef átt með þér og mun aldrei gleyma þér, En þú fórst bara alltof snemma og snökkt.
Ég vildi að ég gæti tekið utan um þig og sagt við þig hversu vænt um þig mér þykir en ég get það ekki.
Það er svo margt sem mig langar að segja en ég kem ekki orð yfir það.
Elsku Þórey, Ég elska þig,
Ég sakna þín sárt, og ég mun alltaf sakna þín :*
Þú munt alltaf búa í mínu hjarta
† Hvíl í fríði elsku Þórey mín †
Votta Fjölskyldu og vinum mínu fyllstu samhúð
Karen
- Karen | 20/01/06 10:58
|
|
ég þekkti hana ekki mjög mikið en nóg til að vita að hún var alger engill sem vildi öllum gott. hún hvarf skyndilega frá okkur öllum, það versta er að þetta gerist alltaf fyrir besta fólkið. og Þórey var ein af þeim. ég votta mína dýpstu samúð til Þóris, fjölskyldu hennar og vini. Megi Þórey hvílast í friði og eiga langt líf á himni †
- Kristófer Reynisson | 20/01/06 11:04
|
|
Ég trúi þessu ekki en þá og ég vil ekki trúa þessu. Það sem ég óskaði þegar ég keyrði fram hjá slystað var að ég þekkti þessa manneskju ekki neitt.
Þórey var góð og ynndisleg stelpa þegar ég kynntist henni, reyndist hún mér strax góð vinkona. En hvað ég sakana þín en ég trúi þessu ekki. Þegar ég heyrði nafn þitt dimmdi stax yfir mér og ég vildi ekki trúa.
Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu.
†Ég óska fjölskyldu þinni og vinum mína alla
samúð†
- Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir | 20/01/06 11:04
|
|
Maður veit bara ekki hvað á að segja nema maður á eftir að sakna þín elsku Þórey! Alltaf þegar maður sá þig þá varstu brosandi, þú varst alltaf svo góð við alla að manni bara sárnar við það að þú skulir vera farinn svona snemma frá okkur! :'(
Ég votta mína dýpstu samúð til fjölskyldu hennar.
Megi guð og englar passa þig Þórey mín :'(
- Remy Lena | 20/01/06 11:09
|
|
sagt er að þeir deyja ungir sem guðinir elska... í gær fékk ég að vita að þetta er víst satt, því að allir sem töluðu við tórey eða þekktu hana elskuðu hana, hún vildi öllum gott og var yndisleg,
ég frétti að það var alvarlegt slys á hnifstalsvegi, og heyrði nafnið þitt, ég fór í sjók og keyrði í stúdíoið sem þú áttir að vera að vinna.. og þegar ég kom þangað þá sló hjartað mitt hrat því ég var að vonast að þú sast þarna brosandi eins og þú hefur alltaf gert, með bros á mun, en þá vartsu ekki þar og mín versta martröð um að missa eithvern sem er náin manni rætist, hvað þá æðislega vinkonu eins og þig.
ég er ekki en að trúa að þú ert farin frá okkur en þú munt alltaf vera í hjarta mínu og eiga stóran hluta af því.
ég vil votta mína dýpstu samúð til fjölskyldu þóreyar og þeim nánustu
meigi þú hvíla í friði elsku Þórey mín, ég mun elska þig að elífu, takk fyrir allar stundinar okkar og takk fyrir að leyfa mér að kynnast þér:*
- Kristjana Pálsdóttir | 20/01/06 11:12
|
|
Vá.. Aldrei datt mér í hug að ég þyrfti að skrifa svona um þig elsku Þórey mín.. :'(
Mér finnst þetta svo sárt, að sjá myndina af þér hérna fyrir ofan, en vita að myndirnar verði ekki fleiri. Ekki heldur fleiri skemmtileg djömm með þér.. Þetta verður ekkert smá skrýtið næst þegar ég kem vestur.
Vá, ég sakna þín ekkert smá! Þótt að ég sé í Reykjavík og 2 vikur síðan ég sá þig seinast.
Lífið verður ekki eins án þín.. Ohh, hvað ég sakna þín. Það var alltaf gaman að fíflast og tala við þig. Maður gat sagt þér allt, án þess að það fréttist.
Fyndið, ég man alltaf hvað var gaman að segja að ég hafi fengið bílprófið mitt akkúrat mánuði á undan þér, og Þóri líka. fyndið að fyrri parturinn af kenntiölunni minni er 250288 og þinn er 250388.. Alltaf gaman að rifja það upp..
Þórey, þú varst æði. Ég gæti aldrei í lífinu gleymt hvernig þú varst.
Engillinn minn, ég vil óska þér góðrar ferðar þangað sem þú ferð. Vona að þú hafir það gott, og ég vona að við eigum eftir að hittast aftur hinum megin.
Bless :'(
- Sigrún Eva | 20/01/06 11:41
|
|
Svo falleg, svo góð svo hlý svo stór hluti af okkar lífi. Elsku Þórey takk fyrir að koma inn í líf okkar þó í stutta stund væri. Þú gæddi líf Árdísr minnar birrtu og il eins okkar hinna. Við Kalli vorum að ræða það bara núna í vikunni hversu vænt okkur þykir um ykkur systkinin og fjölskylduna ykkar. Við munum halda vel utan um hópinn þinn og í huga mínum munt þú alltaf sitja í miðjum hópnum eins og stolt ungamamma. Allt sem stelpurnar gera í körfunni í framtíðinni verður vegna þín og þinna áhrifa. Við munum halda nafni þínu á lofti Þórey þar til við hittumst á ný. Englar guðs fá að njóta þín í stað okkar og þar hefur þér verið ætlaður staður. Hvíldu í friði elsku vinkona og hafðu þökk fyrir að snerta strengi í hjörtum okkar sem eftir sitjum, sorgmædd og vanmáttug.
Megi guð og englarnir gæta fjölskyldunnar, stelpanna þinna og okkar hinna sem syrgjum þig svo sárt.
- Guðný, Kalli, Árdís Eva, Haukur Sindri og Skírnir Már | 20/01/06 11:46
|
|
Þórey ER BESTI ÞJÁLFARI Í HHHHHHHHHEEEEEEIIIIIIIIIIIIIMMMMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII. Kveðja LILJA
- lilja | 20/01/06 11:48
|
|
Votta samúð mína fjölskyldu og aðstandendum.
- Friðrik Gunnar Kristjánsson | 20/01/06 11:49
|
|
Þórey var besti þjálfari í heimi !! ég sakna hennar mjög mikið . Hún var alltaf góð við mig . og ég vildi að húnn væri á lífi . Kveðja Sara Rut.
- Sara Rut | 20/01/06 11:49
|
|
þórey þú varst besti íðróta kennarin min ég mun sakna þín að eilífu þú átir ekki skilið að deyja svona ung þú varst bara 17 ára ég vona að Guð geimir þig vel og vonandi vakirðu yfir okkur sjámst upp í himnaríki ég sakna þín ógeðslega mikið hver kennir okkur núna? ég vona bara að þér líði vel þú varst samt ekki einu sinni orðin 18 ára ég mun sakna þín að elífu mér var ant um þig kær hveðja Lovísa Ósk nemi þin
- Lovísa Ósk Halldórssdóttir | 20/01/06 11:50
|
|
Þórey var besti þjáiari í heimi og var alltaf góð
ef ég ætti ósk mindi ég óska að hún væri á lífi og
ég bið Guð að geima hana að eilífu
- Margrét Rún | 20/01/06 11:51
|
|
Elsku Þórey mín, það er svo rosalega sárt að hugsa til þess að sjá þig ekki aftur!
Að guð hafi tekið frá mér góða vinkonu og elkulega frænku, sem ég ólst nánast upp mðe, þetta er mjög sárt, ég get ekki einusinni lýst því hvernig mér leið þegar ég fékk þær fréttir að þú hafir verið að lenda í bílslysi og nokkrum mínotum áður hringdi Birgitta Rós í mig og sagði mér að hún héldi að þetta hefði verið banaslis og ég þverneitaði fyrir það, þangað til að heba hringdi grátandi og sagði mér að þetta hefði verið eins og það var búið að segja mér! og man ekki viðbrögðin, það streymdu fram tárin og ég fór að vona að símin myndi hringja aftur og mér væri sagt að þetta hefði ekki verið þú, alltaf þegar símin hringdi fékk ég meiri stíng í hjartað og vonaði.. vonaði að það væri einhver sem myndi bera mér aðrar fréttir, og segja mér að þú værir ekki farin frá okkur, og ég vona það svo sannarlega ennþá..
Þórey þú varst yndisleg í alla staði, þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra og þig vantaði aldrei neitt og leið alltaf vel, sama hvað var.. Ég er mjög ánægð með þær stundir sem við höfum átt saman sem eru allveg milljón! búin að þekkja þig síðan ég kom heim af sjúkrahúisnu, og gera margt með þér í lífinu sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu, allar körfubollta ferðirnar, þegar við fórum á mót í Reykjavík og sömdum lag á leiðini og við vorum að rifja það upp um dagin, elsku Þórey ég get ekki lýst tilfiniingum mínum! eins og ég sagði áðan þá býð ég og vona, vona að þetta hafi verið martröð sem mig hafi bara verið að dreyma, slæm martröð, og ég gæti bara komið til þín, faðmað þig og knúsað og sagt þér að mér þykir endalaust vænt um þig og ég mun aldrei gleyma þér elsku Þórey mín.
Ég gæti skrifað endalaust..
Elsku Þórey, guð geymi þig og megir þú hvíla í friði..
Elsku Ella, Mummi, Sara, Rakel, Helga og elsku Þórir, guð meigi vera með ykkur í sorginni.
Dagný Finnbjörnsdóttir.
- Dagný Finnbjörnsdóttir | 20/01/06 11:57
|
|
þórey var besti kennari í heimi, ég ætla ekki að hætta þó hún sé ekki á svæðinu heldur halda áfram að æfa fyrir hana því hún var svo góð.
- Árdís Eva Skaftadóttir | 20/01/06 12:14
|
|
Ég trúi þessu ekki af hverju afhverju þú???eg vil ekki missa fleiri sem eru jafnt mikklir ENGLAR og þú þegar eg frétti af þessu i gær þá gat eg ekki trúað þvi mer fannst eins og hjartað hafi verið rifið ur mer þótt eg þekki þig ekki neitt en þu varst svo mikið yndi góð i körfu og allt.Maður spyr sig alltaf af þvi að hverju maður þarf að deyja!!! allir i Grunnskólanum i dag fóru að hágráta eg er buin að hágráta siðan eg fretti þetta i gær kl:5 en eg vona bara að þer liði sem best þarna hinumegin þu verður að geyma eitt pláss fyrir mig...Guð fjölskyldu Þóreyjar og vini ég votta ykkur samúð mína :´(
- Nemi úr Grunnskólanum | 20/01/06 12:15
|
|
Þegar Laufey vinkona hringdi í mig klukkan sex í gær, þá fannst mér allt svo óraunverulegt... Ég er ekki enn á ná þessu... Hvað meinar fólk með að þú sért farin?!? Mér finnst alltaf eins og þú verðir þarna þegar ég kem vestur næst... Og það ætti alls ekki að vera í jarðarförina þína :( Þetta er hræðilegur harmleikur sem gerðist í gær og þetta er ennþá allt svo óraunverulegt... Ég er engan veginn að ná þessu...
Það sem ég reyni að hugga mig við, elsku Þórey mín, er það að núna ertu hjá ömmu og afa, og þarft ekki að ganga í gegnum þessar ömulegu breytingar ein...
Takk fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst okkur, og ég mun reyna eftir fremsta megni að minnast þeirra með bros á vör elsku Þórey mín :*
Hvíl í friði elsku frænka :*
Ég mun ætíð varðveita þær stundir sem við deildum saman.
Mummi, Ella, Rakel, Sara, Helga og Þórir. Mínar dýpstu samúðarkveðjur...
Sandra frænka :*
- Sandra Pálsdóttir | 20/01/06 12:39
|
|
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina, það er sannarlega mikill missir að missa jafn yndslega manneskju og hana Þórey!
Það var alltaf gaman að vinna með henni þar sem hún var svo ótrúlega hress og glöð almennt!
Það var mér sannur heiður að fá að kynnast Þórey og mun hennar vera sárt saknað!
- Thelma Björk | 20/01/06 12:39
|
|
Elsku Þórey, ég get ekki trúað þessu, þetta er já þetta er bara svo erfitt að trúa, að þú sért farin, og ég á aldrei eftir að fá að sjá þig aftur. Hvernig getur þetta verið svona. Þegar ég fékk þessar hræðilegur fréttir brá mér. Ég var í íþróttahúsinu og var að klára æfingu, þegar okkur var sagt að það hefði verið bílslys, svo fréttum við að það hafi verið banaslys, og svo seinna að það hafi verið þú! Ég ætlaði ekki að trúa þessu og hugsaði og hugsaði um þig og grét og grét... Ég er afar þakklát fyrir það að hafa fengið að kynnast þér þó það hafi verið stuttur timi, en fyrir mér er þetta helling sem ég fékk að þekkja þig. Ég á fullt af minningum með þér og gæti endalaust verið að minnast þín og mun alltaf muna eftir þér því þu vast frábær og alveg einstaklega yndisleg stelpa sem verður sárt saknað. Elsku Þórey ég mun elska þig að eilífu og þú munt eiga stóran hlut í hjarta mínu. Hvíldu í friði og mega englarnir vaka yfir þér.
Elsku Þórir og fjölskylda ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi guð styrkja ykkur í sorginni.
- Hildur María | 20/01/06 12:42
|
|
Innilegar samúðarkveðjur frá félögum í Körfuknattleiksdeild UMFH.
Þeir deyja ungir sem Guðirnir elska.
- Ungmennafélag Hrunamanna | 20/01/06 12:43
|
|
Ég beið í allt gærkvöld eftir að mér yrði sagt að þetta væri misskilningur allt saman......Elsku besta Þórey frænka mín er farin..þessi yndislega stúlka sem átti alla framtíðína fyrir sér. Þórey var imynd alls þess góða, hreinlynd, dugleg og falleg. Elsku Ella, Mummi, Sara, Rakel,Helga, Þórir og fjölskyldur....ég votta ykkur mína dýpstu samúð - hugur minn er stöðugt hjá ykkur.
Guð veri með ykkur.
- Guðmunda | 20/01/06 12:52
|
|
Ég trúi því ekki að þú sért farin frá okkur, að svona lagað geti virkilega gerst. Að ljúfasta og yndislegasta manneskja sem hef kynnst, manneskja sem var góð vil alla og vildi öllum gott sé tekin frá okkur svona snemma, í blóma lífsins. Þetta er alveg hrikalega ósanngjarnt. Þetta fallega bros, þessi blíða rödd þessi frábæra stelpa, farin að eilífu. Ég talaði við þig á miðvikudagskvöldið í samkaup, þú varst svo hress eins og alltaf. Hefði ég vitað að þetta væri síðasta skiptið sem ég ætti nokkurtíma eftir að tala við þig hefði ég sagt svo mikið fleira! Þú áttir alls ekki skilið að fara svona fljótt og á þennan hátt! Hún verður alltaf í hjörtum okkar og mun aldrei gleymast!
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyar alla mína dýpstu samúð og ég veit að hún mun halda yfir ykkur verndarhendi!
Leið þín liggur beint til himna, englar finna alltaf leiðina heim!
- Þórdís Anna | 20/01/06 12:59
|
|
Það er ömurlegt að missa eitthvern sem er svo náinn manni. Ég þekkti þórey voða lítið, vissi hver þetta var, talaði eins stöku sinnum við hana. Ég mun alltaf muna eftir þegar ég sá hana þegar hún var að fara úr skólanum í, hún var svo lífsglöð og brosandi útá eyrum. Bara skrýtið að hún er farinn og maður á ekkert eftir að sjá hana eftir. Það á engin þetta skilið.
Ég bara vill vott mína samhúð til Þórirs, Guðmundar og fjölskyldu.
- Hannes Már Hávarðarson | 20/01/06 13:04
|
|
Ég samhyrgist fjölskyldunni,vinum og vandamönnum hennar. Mér finnst þetta skelfilegt. Þetta er svo ósangjarnt, lífið er ósangjarnt. Hún átti þetta ekki skilið! Hún sem var alltaf góð við alla, og svo mikill engill. Þetta er skelfilegt! Ég veit ekki hvað ég á að segja, þetta er svo mikið sjokk.
Hvíldu í friði Þórey
- Dagmara | 20/01/06 13:08
|
|
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar samúð mína, þið eruð í huga mínum og bænum á þessum erfiða tíma.
- Ásta J | 20/01/06 13:08
|
|
Ég kynntist ekki Þórey mikið, en maður tók alltaf eftir henni ef maður rakst á hana. Hvort sem það var í Samkaup, Stúdíó Dan, Íþróttahúsinu eða á þessum fáu fótboltaæfingum sem hún mætti á hjá mér. Alltaf var einhver hlýr og góður blær yfir henni og sakleysið uppmálað. Þórey var ein af þeim sem að maður vissi að var góð manneskja. Það þurfti enginn að segja manni það.
Ég vil fá að votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúðar. Allir standa við bakið á ykkur á þessum erfiðu tímum.
Kveðja, Guðmundur Guðjónsson.
- Guðmundur Guðjónsson | 20/01/06 13:10
|
|
Hvern er réttlætið í þessu? Ég fæ engan veginn skilið tilganginn með því að taka þessu yndislega góðu, fallegu og brosbildu stelpu frá öllum þeim sem þykir vænt um hana. Og frá lífinu, sem getur verið svo skemmtilegt og fullt af tækifærum. Hvað með gamla þreytta fólkið sem bíður eftir að fá að sjá ljósið. Þetta er ósanngjarnt val, svo sannarlega. Það hlýtur að vera skortur á englum í himnaríki fyrst Þórey þurfti að fara.
Það er mér óskiljanlegt hvernig Þórir, tvíburabróðir Þóreyjar og vinur, gat fundið styrk til að skrifa hér fyrir neðan. Því örmagna af sorg hlýtur hann að vera líkt og aðrir í Þóreyjar fjölskyldu- og vinahópi.
Mér finnst þessi minningarsíða mjög sniðug, og góð leið fyrir fólk að tjá sig í sorginni, því margir þekktu Þórey, á einn eða annan hátt.
Ég á fjölskyldu Þóreyjar, bæði foreldrum og systkinum mikið að þakka fyrir stuðning og vináttu í mörg mörg ár, og ekki sýst nú síðustu nokkur ár. Þeir sem þekkja fjölskyldu Þóreyjar vita hversu óeigingjörn þau eru. Elenborg móðir hennar er ein allra besta kona sem hægt er að kynnast. Nú er komið að mér að styðja við bakið á þeim eins og ég mögulega get og ætla ég að reyna mitt besta.
Elsku besta fjölskylda, það er engan veginn hægt að lýsa sorginni sem þessu fylgir.
Elsku Þórey hvíl í friði - litli engill ...
- Rakel Guðfinns | 20/01/06 13:10
|
|
Þórey var ein af mínum bestu vinkonum og allveg yndislegasta frænka í heiminum.....Ég veit ekki allevg hvar ég á að byrja en Þórey var engill í mannsmynd og bara ef maður heyrði nafn hennar þá hlýnaði manni um hjartarætur.
Það er ekki hægt að lýsa missinum sem maður finnur fyrir núna,en hugurinn er með nánustu fjölskuldu hennar og vil ég bara segja að hún Þórey mín átti svo hamingjusama ævi með yndislegustu fjölskyldu sem hægt er að hugsa sér.
Ég kveð þig elsku Þórey mín með þessu ljóði
Birta og ylur þig beri
á betra og æðra svið.
Með þér guð faðir veri
verði og blessi þig.
Elsku, Ella,Gummi,Sara,Rakel,Helga Kristín,Þórir,Elmar og littlu frændsystkinin
Hugur minn er hjá ykkur núna á þessum erfiðu tímum.Vildi að ég væri hjá ykkur til þess að faðma ykkur...
- Jóhanna Antonía. | 20/01/06 13:12
|
|
Ég vill votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína innilegustu samúðarkveðjur! Hún á eftir að lifa áfram í hjörtum okkar allra.
- Adda Bjarnadóttir | 20/01/06 13:17
|
|
Þórey... þekkti þig bara smá, en á samt eftir að sakna þín ótrulega mikið.
- Anneleen. | 20/01/06 13:19
|
|
Ég þekkti Þórey ekki mikið, en ég þekki bróðir hennar og ég veit hve yndislegur hann er, og þar sem Þórey var betri helmingur hans þá þá hlýtur hún að hafa verið engill. Við getum bara öll sagt okkur það að hún var kölluð heim alltof snemma! Ég votta elsku Þóri og fjölskyldu alla mína dýpstu samúð.
Megi þú hvíla í friði elsku Þórey!
- Sigurgeir Sv. Gíslason | 20/01/06 13:20
|
|
Mummi, Ella, Rakel, Sara, Helga og Þórir. Mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Sigþór Sigurðsson. Sissó. | 20/01/06 13:24
|
|
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Guð geymi þig Þórey Guðmundsdóttir og hvíl í friði.
- Rúnar Jón Hermannsson | 20/01/06 13:32
|
|
þetta er ógeðslega ósangjarnt þú varst og ert BEST en nú ertu farinn og þú varst ekki orðin 18 ára og það er sko ÓSAMGJARNT....en já ég sakna þín ótrúlega MIKIÐ....ÞÚ ert besti körfu bolta þjálfari sem ég hef kinnst...guðblessi þig
- Katrín Emma | 20/01/06 13:32
|
|
Þeir sem guðirnir elska deyja ungir það eru orð að sönnu. Hún Þórey var yndisleg stúlka alltaf brosandi og svo hlý. Hún var svo mikil fyrirmynd í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Ég sakna hennar mjög mikið.
Elsku Mummi Þór, Elínborg, Þórir og systur megi guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg.
Megi minnig um yndislega stúlku lifa í hjörtum okkar.
- Didda Hjalta og fjölskylda. | 20/01/06 13:39
|
|
Ég þekkti Þóreyju því miður ekki, en veit hversu mikill sársauki fyllir því að missa einhvern nákominn..
En ég vil vota samúð minni til fjölskyldu og vinum Þóreyjar.
- Saga Ólafsdóttir | 20/01/06 13:45
|
|
þórey var og er BESTI þjálfari sem ég hef átt en það sem mér finnst verst er að þú hafir dáið allt í einu og hver á þá að þjálfa okkur???????????????? það er ekki hægt að fá betri þjálfara en þig ÞÚERT BESTI þjálfari sem ég hef átt... og ég hef alldrei þegt neinn svona mikið sem hefur dáið og þú náðir ekki að verða 18 ára og það finnst mér ósamgjarnt og ég meina það þú ert best!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
- Nína Dagrún Hermannsdóttir | 20/01/06 13:51
|
|
Elsku Þórey! Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég er orðlaus og full af spurningum. Afhverju varstu tekin svona snögglega frá öllum sem þótti svona vænt um þig. Afhverju er lífið svona ósanngjarnt? Þeir deyja ungir sem guðirnir elska, er eina svarið. Ég þekkti þig ekki mikið en það sem ég þekkti var yndislegt. Þú varst án efa ein yndislegasta manneskja sem til var. Þú vildir öllum vel og brostir alltaf þínu blíðasta. Þegar maður kom í stúdíóið og þú varst að vinna fann maður alltaf hlýju og byrjaði á því að spjalla við þig.
Þú varst frábær íþróttamaður og þjálfari. Man eitt sumarið þegar þú æfðir fótbolta með okkur stelpunum, þó þú værir nýbyrjuð varstu sko ekki á því að gefast upp. Þú varst alvöru.
...
Elsku Þórey okkar allra
Nú ertu farin til himsins hallra
Með fegurstu englunum horfiru niður
Meðan við óskum þess að friður sé með yður
Elsku Þórey okkar blíða
Nú verður tíminn lengur að líða
Aldrei munum við brosi þínu gleyma
Frá okkur öllum saknaðartárin streyma
-Valdís
- Valdís María Einarsdóttir | 20/01/06 13:54
|
|
Þann tíma sem ég þekkti þessa yndislegu stúlku, þá fór ekki á milli mála að þar var á ferðinni engill í mannsmynd.. Gleðin, og hlýjan sem umlykti hana skein svo innilega í gegn, og manni gat ekki liðið illa í kringum hana!!
Elsku Þórey, þú ert á betri stað núna, og eina ástæðan sem manni dettur í hug er það að Guð hafi vantað þessa hlýju sem fylgir þér!
Guð blessi þig þar sem þú ert á himnum!
Ég vil votta allri þinni fjölskyldu mínar dýpstu samúð, og vona að þið komist sterk í gegnum þetta
virðingarfyllst
Sigþór Snorrason
- Sigþór Snorrason | 20/01/06 13:55
|
|
Elsku fallega Þórey mín við eigum öll eftir að sakna þín alveg rosalega, líf okkar verður aldrey samt en við reynum að þrauka og standa saman, en ég vill þakka öllum fyrir Stuðningin!
ég veit að hannar verður sárt sakanað, þetta fallega bros mun alltaf lifa í minningunni okkar allra.
- Helga Kristín | 20/01/06 13:58
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar.
Steinunn DIljá Högnadóttir.
- Steinunn Diljá Högnadóttir | 20/01/06 14:02
|
|
Þegar ég heyrði að banaslys hefði orðið reyndi ég að hugga mig við það það þetta yrði pottþétt enginn nákominn mér, maður vonast auðvitað alltaf til þess.. en allt kom fyrir ekki.. Ein af mínum bestu vinkonum var hrifsuð frá mér, eins og ekkert annað væri sjálfsagaðara... þegar ég heyrði þetta, gat ég ekkert annað gert en að gráta og öskra, og vonast til að það myndi allt batna.
Ég sagði líka að ef að þetta hefðir verið þú, þá myndi þetta bjargast, þú ert svo ótrúlega sterk að ég var alveg viss að ég myndi fá að sjá þig daginn eftir.. en allt breyttist á svipstundu þegar ég fékk sönnun á þessu.. þá vissi ég að ég fengi ekki að sjá þig aftur..
Ég grét og grét svo sannarlega saknaðartárum. Allt sem við höfum talað um og hlegið saman, það var æðislegt að fá þið til að hlægja þar sem allt ljómaði ef þú brostir, þú varst einstaklega æsðileg manneskja sem var vinur vina sinna og alltaf til í að hjálpa öðrum. Þóreyjar verður sárt saknað..
við munum pottþétt halda afmæli fyrir þig í mars, það er bókað mál:)..
En allt sem við höfum gert saman, Þórey.. skemmtilega sumarbústaðarferðin, körfuboltaferðalögin, ó það er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma!.. ég gæti talað endalaust um það hvað ég sakna þín og hvað það er erfitt að fá ekki að sjá þig aftur.. þú verður alltaf í ofarlega í mínum huga. Ég mun sko aldrei, aldrei, aldrie gleyma þér og því sem við gerðum saman.
Elsku Þórey, ég vona að þú hafir það sem allra best þarna með ömmu þinni og afa, þeim sem þú varst búin að segja mér að þú saknaðir svo ótrúlega mikið!.. ég hlakka til að sjá þig:*:*
Kæra fjölskylda, ég votta ykkur mínum dýpstu samúðarkveðjur, verum bara sterk og þetta bjargast allt eins og hún Þórey okkar myndi segja!
Guð blessi ykkur :*:*
Þín vinkona að eilífu-
Halla Björg Ragnarsdóttir
- Halla Björg Ragnarsdóttir | 20/01/06 14:07
|
|
Elsku þórey mín..Það er svo sárt að hugsa til þess að þú ert farin bara horfin frá okkur! afhverju gerist þetta fyrir mannesku eins og þig ung stelpa í blóma lífsins þú vast alltaf svo góð við alla vildir öllum vel,alltaf brosandi og í góðu skapi bara yndisleg manneskja það er rétta orðið yfir þig.
Allavegana á ég bara frábærar minningar um þig þegar nafn þitt kemur upp í huga mér þá sé ég bara þessa fallegu yndislegu stelpu.
En ég mun aldrei gleyma þér minningarnar um þig munu alltaf vera til í mínu hjarta.
Megi þú hvíla í friði elsku Þórey mín og Guð geymi þig:*
- Dúna Arnórsdóttir | 20/01/06 14:07
|
|
mínar dýpstu samúðakveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar. megi þú hvíla í friði.
- Hólmfríður Magnúsdóttir | 20/01/06 14:15
|
|
Ég vill votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína innilegustu samúðarkveðjur! Þórey var engill í mannsmynd og það mun enginn gleyma brosi hennar og hlýju!
- Kristjana Margrét | 20/01/06 14:17
|
|
Ég votta vinum og ættingjum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Ég þekkti hana nú ekki neitt, en þar sem við búum í frekar litlu samfélagi þá var maður oft var við Þórey eins og t.d. í Samkaup og í Stúdíó Dan. Mér fannst hún svo áberandi yfirveguð, virtist vera mjög heilsteypt manneskja og umfram allt með mjög hlýtt viðmót.
Lífið getur verið svo ósanngjarnt...
- Rakel Guðbj. Magnúsdóttir | 20/01/06 14:17
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar. Megi hún hvíla í friði :(
- Guðný Björnsdóttir | 20/01/06 14:21
|
|
Elsku Þórey, ég hef reynt að finna réttu orðin til að heiðra minningu þína en þau virðast bara ekki koma. Það er erfitt að skirfa tilfinningar sínar niður þegar maður skilur þær ekki einu sinni sjálfur. Ég get bara ekki trúað því að þú sért farin, það er svo óraunverulegt. Þú varst svo yndisleg manneskja og nærvera þín svo notaleg, þú varst alltaf yfirveguð og brosandi. Það verður svo skrýtið að sjá þig ekki i skólanum, þótt ég viti að þú verðir alltaf hjá okkur og nærvera þín og góðar minningar munu hlýja okkur um hjartarætur. Hvíldu í friði elsku Þórey, megi guð geyma þig að eilífu.
Elsku Þórir, ég samhryggist þér svo innilega, ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að missa manneskju sem er svona náin manni, eins og þú sagðir - hinn helminginn. Guð gefi þér styrk og vaki yfir þér á þessum erfiðu tímum.
Ég vil votta Þóri & fjölskyldu, ættingjum, vinum mína og öllum sem þekktu hana dýpstu samúð.
- Birgitta Arngrímsdóttir. | 20/01/06 14:21
|
|
Ég vil votta öllum aðstandendum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur. †Megi minning hennar lifa um ókomna tíð†
- Ragnheiður K. | 20/01/06 14:22
|
|
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð.
- Rebekka Líf Karlsdóttir | 20/01/06 14:26
|
|
Elsku Þórey min af hverju þú!! Þú ert buin að snerta hjörtu okkar allra og berð svo mikla hlyju með þer sem við munum aldrei gleyma.
ÉG mun sakna þin svo það er ekki hægt að lýsa því!!
Megi englar vaka yfir þér!!Elsku Þórey okkar...
- Helena og fjölskylda | 20/01/06 14:29
|
|
Elsku Þórey, þegar ég fékk þessar hræðilegu fréttir í gær þá ætlaði ég ekki að trúa þessu, var að vona að þetta væri allt ein mistök!Svo þegar ég vaknaði í morgun varð ég að sannfæra mig aftur um þetta, en það var svo erfitt.. Ég man eftir því þegar ég kynntist þér fyrst. Það var þegar ég var í körfuboltanum og þurfti að fara að æfa með ykkur eldri stelpunum, það var mjög stressandi. En þú tókst á móti okkur með opnum örmum og hlýju brosi, þannig varstu alltaf.
En svo slitnaði upp úr kunningjaskapnum þegar ég hætti í körfunni. En svo var ég svo heppin að fá að kynnast þér aftur núna í vetur þegar ég byrjaði í MÍ. Ég þekkti þig ekki mjög vel, en það var ekki nauðsylegt að gera það til að finnast maður vera náinn þér, þú varst alltaf svo opin og hjartahlý og þannig mun ég muna eftir þér það sem eftir er.
Hvíldu í friði, elsku Þórey mín.
Ég vil votta samúð mína til fjölskyldu, vina og allra aðra aðstandenda Þóreyjar.
- Hugrún Ösp | 20/01/06 14:31
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum mínar dýpstu samhúðarkveðjur. Ég þekkti Þórey ekki neitt en hef heyrt fullt gott og fallegt um þessa sætu og góðu stelpu..
†Hvíldu í friði og guð geymi þig.†
- Nemi í Grunnskólanum á Ísafirði. 9.bekk | 20/01/06 14:40
|
|
Ég vil votta fjölskyldu, vinum og öðrum aðstandendum Þóreyja mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Hjalti Rúnar Oddsson | 20/01/06 14:40
|
|
Ég vil votta fjölskyldu, vinum og öðrum aðstandendum Þóreyja mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Hvíldu í friði.
- Silja Runólfsdóttir | 20/01/06 14:49
|
|
Erlsku Þórey, þú varst alltaf svo góð ! Af hverju þurftir þú að fara ? Þetta er svo ósamgjarnt , þú varst alltaf svo góð . Þegar ég vissi og þú hefðit lent í bílslysi og DÁIÐ var ég með sting í maganum. Alla nóttina líka. Þú varst alltaf svo góð , og ef maður vantaði eithvað gast þú hjálpað.
Guð blessi þig, og fjöldskyldu þína.
- Ísabella Ósk | 20/01/06 14:49
|
|
Við getum öll verið sammála um það að Þórey var yndisleg stelpa og eflaust margir sem litu upp til hennar vegna góðmensku og dugnaðar.
Megir þú hvíla í friði og vil ég votta Þori & fjölskyldu alla mína samúð.
- Bragi Þorsteinsson | 20/01/06 14:53
|
|
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar mér var sagt að Þórey væri farin var - Til hvers ??? Af hverju hún ??? Af hverju ekki frekar eitt að þeim fjölmörgu gamalmönnum sem bíður eftir að röðin komi að þeim. Tilgangurinn finnst manni enginn. Þvílík sóun á yndislega góðri, fallegri og brosmildri stelpu. Það eina sem mér dettur í hug er að það sé skortur á englum í himnaríki. Og að meiri þörf hafi verið á henni þar en hér. Því miður þá er það ekki á okkar valdi að ákveða hverjir fara eða hvenær, en mikið er það sárt og erfitt að þurfa að kyngja því. Ótalmargir þekktu Þórey, á einn eða annan hátt, og sitja nú eftir sárir og gramir, en glaðir með að hafa kynnst henni.
Óskiljanlegt þykir mér hvernig Þórir, tvíburabróðir hennar og vinur, gat fundið styrk til að skrifa hér fyrir neðan. Eins þjakaður af sorg og söknuði og hann hlýtur að vera, líkt og aðrir í Þóreyjar fjölskyldu- og vinahópi.
Fjölskyldu Þóreyjar, foreldrum og systkinum á ég að þakka stuðning og vináttu í mörg mörg ár. Sérstaklega síðustu nokkur ár. Ég myndi gera hvað sem er til að launa þeim greiðann ef ég bara gæti, en þegar svona sorg bankar á dyr, verður maður lítils megnugur.
Elsku fjölskylda ég sendi ykkur eins mikið af ljósi og orku og ég mögulega get ...
Elsku besta Þórey - hvíl í friði - engill
Minningarsíða eins og þessi þykir mér mikið og gott framtak. Það gefur fólki tækifæri til að votta samúð, tjá tilfinningar sínar og sýna að manni stendur ekki á sama.
- Rakel Guðfinns. | 20/01/06 14:54
|
|
Ég vil votta fjølskyldu og vinum Thóreyjar mína dýpstu samúd.
Ég kynntist Thórey í kørfuboltanum, og get ekki annad en velt thví fyrir mér hvernig thetta getur sked fyrir einhvern sem ég stórkostlega efast um ad hafi nokkurn tíman gert flugu mein. En lífid er ekki thví midur ekki sanngjarnt.
Megi minningin um Thórey lýsa ykkur leid í sorginni,
- Sesselja Gudjonsdottir | 20/01/06 14:55
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum þóreyjar mína dýpstu samúð! Megi þessi yndislega stelpa hvíla í friði!:(
- Þórdís Ösp | 20/01/06 14:56
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð. Þórey var frábær stelpa, og þó ég þekkti hana ekki mikið þá mun ég alltaf minnast hennar fyrir vingjarnleikann og brosið sem hún sendi mér og svo mörgum öðrum þegar við hittum hana. Hún var frábær manneskja og ég mun alltaf sjá eftir því að hafa ekki kynnst henni betur. Þeir sem guð elskar deyja ungir. Hvíldu í friði Þórey. Við munum ætíð minnast þín.
- Hulda Bjarnadóttir | 20/01/06 14:57
|
|
Þrátt fyrir að ég hafi ekki þekkt Þórey rosalega mikið var eins og þungu hlassi hefði verið varpað á mig í gær þegar ég heyrði að hún hefði látist í þessu hroðalega bílslysi. Fegin er ég þó að hafa fengið að kynnast jafn blíðri og góðri manneskju eins og Þórey var. Síðast þegar ég umgegst Þórey vorum við að spila saman bikarleik í körfubolta, þar, jafnt sem alltaf þegar maður sá Þórey var hún með bros á vör og ekkert nema jákvæðnin uppmáluð.
Og aldrei man ég eftir að hafa nokkurn tímann séð hana með svo mikið sem vott af öðrum svip á andlitinu en bros. Hvíl í friði elsku Þórey.
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur og jafn framt þakka fyrir að mér hafi verið leyft að kynnast Þórey þó ég hafi ekki kynnst henni meira en raun ber vitni.
- Þeir deyja ungir sem Guðirnir elska...!-
- Karitas S. Ingimarsdóttir | 20/01/06 15:04
|
|
Ég þekkti þig ekki en alltaf þegar ég sá þig eða heilsaði þér á göngunum fann ég hlýjuna streyma frá þér, þú varst svo ótrúlega vel gerð manneskja. Margar spurningar vakna núna, af hverju varstu tekin svo snemma til himna? Svarið hlýtur að vera að þeir deyi ungir sem guðirnir elska.
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar dýpstu samúð mína, við munum aldrei gleyma henni.
- Jóhann Frímann Rúnarsson | 20/01/06 15:04
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Þekkti hana ekki neitt, en þegar maður sá hana var hún alltaf brosandi og virtist mjög ánægð með lífið.
†Guð geymi þig†
- Esther Dröfn | 20/01/06 15:11
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum, bara öllum sem þekktu þessa frábæru manneskju samúðarkveðjur.
Það geta allir verið sammála um það frábærri manneskju er víst ekki hægt að kynnast.
- Bríet Ruth | 20/01/06 15:15
|
|
Það er svo skrítið að hugsa um þetta, að þú sért farin. Þó ég þekki þig ekkert lengur þá man ég samt eftir hvað þú varst alltaf svo lífsglöð og brosandi þegar við vorum í 7.bekk, og í hvert sinn sem ég sá þig þegar ég kom í heimsókn til ísafjarðar varstu með bros á vor. Ég társt hér á fullu þó ég þekkti þig ekki lengur, en það er bara svo ósangjart að sona frábær og glöð stelpa deyji!
En þú ert á góðum stað núna og mun ég alltaf muna eftir þér.
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúð!
- Olga Rut | 20/01/06 15:22
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar alla mína samúð. Megi guð styrkja ykkur á þessum tímum. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska! Þeir hafa greinilega elskað þig elsku Þórey.
- | 20/01/06 15:34
|
|
Já ég þekkti hana ekki mikið en hún kom oft heim til mín til þess að passa mig með minni Önnu Maríu og við spjölluðum mikið saman...Ég bara ætlaði ekki að trúa því að hún Þórey væri farin frá okkur þessi yndislega manneskja hún er sannkallaður engill í dulargervi...Ég get ekki sætt mig við það að svona yndisleg manneksja sé farin bara get það ekki...En elsku Þórey hvíldu í friði og guð geymi þig engill..Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar dýpstu samúð...†
- Elma | 20/01/06 15:47
|
|
Þórey var eingill í dulargerfi, þessi engill var alltaf galaður með bros á vör og kom öllum í gott skap.
Tárin hætta ekki að koma!þetta er svo mikil sorg! Við kynntumst Þóreyju fyrir þremur árum í gegnum körfuboltan við vissum strax að þetta væri góð manneskja því þegar við gátum ekki eitthvað sem hinar stelpurnar voru búnar að læra kom hún og hughreysti mann! Þórey átti alls ekki skilið að fara svona fljótt!
við munum alltaf minnast þín og minningarnar eiga eftir að blómstra í hjörtum okkar! Hvíldu í firði elsku Þórey okkar.
Við viljum votta fjölskyldu Þóreyjar okkar dýpstu samúð og megi Guð vera hjá þeim á þessum erfið tíma!
Kveðja Beta Bjarna og Tóta
- Elísabet Bjarnadóttir og Þórunn Halldórsdóttir | 20/01/06 15:49
|
|
Elsku þórey mín, ég trúi ekki að þú sért farin. hvar á ég að byrja, ég á svo margar minningar um þig sem ég mun geyma, þitt hlýja bros, góðmennskan og bara þú ert æðisleg... svo góð í körfu og leyndir ekkert smá á þér, sterk og ákveðin, komst mér svo oft á óvart, skemmtileg og alltaf til í að gera allt fyrir mann... Þegar ég sé myndina af þér hér að ofan þá kemur svona hlýja í hjartað mitt og maður brosir á móti, þetta sæta bros :), þín verður sárt saknað... ég mun aldrei gleyma þér.
Ég vil votta fjölskyldu þinni og vinum mínar dýpstu samúðarkveðju.
Það var mjög gaman að kynnast þér elsku þórey, og ég veit að guð mun passa þig :*
Þórkatla Sif
- Þórkatla Sif Albertsdóttir | 20/01/06 15:54
|
|
Guð blessi þig!!!!!!!
- Hekla | 20/01/06 15:55
|
|
Kæra Þórey,
það er ótrúlegt til þess að hugsa að þú sért farin frá okkur, þú varst alltaf svo hress og blíð, var með þér síðast í tíma núna á miðvikudaginn, þú varst svo hress og brosmild og sú minning mun lifa lengi..
man eftir þér í afgreiðslunni í stúdíó dan, spjallaði oft svo lengi við þig þar, og oft endaði það með því að ég fór ekkert inn að æfa, var bara frammi að spjalla, það var svo gott að tala við þig..
í hjörtum okkar allra varstu engill, þín verður sárt saknað, hvíldu í friði..†
Þórir, hin systkini Þóreyjar, foreldrar hennar, fjölskylda, vinir og allir sem eiga um sárt að binda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð.
- Brynja Huld | 20/01/06 16:13
|
|
Ég þekkti hana Þóreyju mjög lítið en maður þurfti ekki annað en að horfa á hana og maður sá hvað það geislaði af henni. Ég hef heyrt margt svo fallegt um hana. Hún var svo yndisleg manneskja.
Ég votta mínum innilegustu samúðarkveðjum til vina og fjölskyldu.
†Megi þú hvíla í friði†
- Guðbjörg S. | 20/01/06 16:19
|
|
Ég skil ekki afhverju? Svo ósanngjarnt að þessi unga, yndislega stelpa hafi verið tekin frá okkur, með framtíðina alla fyrir sér.
Þegar ég hugsa til þín, þá kemur ekkert nema bros upp í huga mér. Þú varst alltaf brosandi og glöð, í skólanum, vinnunni og ekki má gleyma körfuboltaferðalögunum. Ég fékk ekki tækifæri á því að kynnast þér mjög vel, en ég mun aldrei gleyma tíma mínum með þér.
Þínar nánustu vinkonur töluðu allar svo fallega til þín, sögðu þig alltaf svo jákvæða, brosandi og þú segðir aldrei neitt illt um neinn. Ég lít upp til þín og mun taka þig til fyrirmyndar, sterk, jákvæð, brosmild, hress og yndisleg stelpa, sem vildi öllum vel.
Ég vil votta mína dýpstu samúð til allra sem eiga um bágt að binda, fjölskyldu & vinir og aðrir aðstandendur.
Hvíldu í friði elsku Þórey
- Guðrún Agnes | 20/01/06 16:31
|
|
Elsku Þórey mín. Ég trúi ekki ennþá að þú sért farin, það getur ekki verið. Alltaf þegar maður sá þig þá gat maður ekki annað en brosað því þú og brosið þitt var svo fallegt og með smá glotti í, þú varst svo hamingjusöm. Ég er ennþá í sjokki yfir fréttunum sem maður fékk í gær, ég hef ekki hugsað um annað en þig síðan, og spurt mig, af hverju hún?? .en það gera víst allir og fáum engin svör. En nú hvílir þú í friði og vakir yfir okkur öllum. Þú munt ávalt vera í hjarta mínu!
† Guð geymi þig vel †
(ég vil votta fjölskyldu, vinum og öðrum aðstandendum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur)
- María Bjargey Davíðsdóttir | 20/01/06 16:32
|
|
þú varst BEST í heimi og að þú skulir deija svona óvænt og allar körfu bolta stelpurnar sakna þín ótrúlega mikið
- Nína Dagrún Hermannsdóttir | 20/01/06 16:40
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð. Ég þekkti þig eginlega ekki neitt en ég mun alltaf minnast þín með bros á vör og það geyslaði alltaf af þér af góðmennsku.
Megir þú hvíla í friði. †
- Bára Jónsdóttir | 20/01/06 16:40
|
|
Kæra Þórey.
Á svona stundu þá vantar manni orð. Ekki þekkti ég þig mikið, en ég var samt sem áður svo heppin að fá aðeins að kynnast þér. Þegar við vorum að æfa saman í fótbolta og svo þegar ég var formaður N.M.Í. Það klikkaði aldrei að þegar maður var nálægt þér fann maður hlýjuna sem þú sendir frá þér eins og strauma.
Það er eitthvað stórt hlutverk sem býður þín fyrir handan, það er eina skýringin sem ég get fundið á svona hræðilegum atburði.
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð og bið þess að Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiða tíma!
- Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir | 20/01/06 16:43
|
|
Ég vill votta fjölskyldu Þóreyar mína dýpstu samúð.
- Sverrir Guðmundur Harðarson. | 20/01/06 16:43
|
|
vá... þótt að ég þekti ekki Þórey, né fjölsku eða vini þá vil ég samt votta samúð mína og það er greynilegt að hún hafi verið falleg og frábær stelpa sem átti allt lífið framundan. en votta fjölskyldu og vinum alla mína samúð.
- vinkona Röggu Steinu (halldóra) | 20/01/06 16:45
|
|
Ég votta Fjölskyldu og Vinum Þóreyjar mína dýpstu Samúð
- Eva Alfreðsdóttir | 20/01/06 16:48
|
|
ótrúlegt hvað lífið getur verið ósanngjarnt. Þórey af öllum manneskjum, hún sem var svo ung og saklaus alltaf góð við alla og það geislaði ávallt af henni. hún mun lifa í minningum okkar allra og megi guð passa hana fyrir okkur þar til okkar tími kemur.
ég vil votta Þórir og fjöldskyldu og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. megi guð veita ykkur styrk til að komast í gegnum þessar erfiðu stundir.
- Rakel Ósk Jensdóttir | 20/01/06 16:49
|
|
Ég þekkti Þórey ekki mikið en það á engin skilið að fara svona snemma en eins og máltækið segir: þeir fara snamma sem guðirnir elska.
Ég vill votta fjölskyldu Þóreyjar dýpstu samúð mína.
Ég veit að þeir sem þekktu hana elskuðu hana innilega, allir á unglingastiginu í grunnskólannum grétu heilmikið fyrir hana Þórey þótt þeir hafi ekki þekkt hana en þau grétu samt það var bara nóg að vita hver hún var þá vissi maður strax að hún væri indisleg og frábær manneskja; kennarar vildu ekki láta krakkana læra og margir fóru heim bara af því að þau kenndu henni í grunnskólanum og það voru allir að syrgja í skólanum í dag.
Kveðja Marthen
Nemi í 9.bekk grunnskólans á Ísafirði
- Marthen Elvar Veigarsson Olsen | 20/01/06 16:52
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Guð verið með ykkur.
- Berglind B | 20/01/06 17:07
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Minning hennar mun lifa að eilífu í hjörtum okkar allra.
Guð blessi ykkur öll!
- Kristjana Þrastardóttir | 20/01/06 17:11
|
|
Þegar ég frétti af því að Þórey hefði verið í bílslysinu og hefði verið flutt upp á sjúkrahús hugsaði ég bara nei, ekki Þórey. Ekki Þórey. Enginn á skilið að deyja og þá allra síst Þórey.
Ég er einn af þeim sem var svo lukkulegur að hafa fengið að kynnast Þóreyu og getað kallað hana vinkonu mína. Það var ótrúlegt að kynnast henni því hversu vel sem maður kynnstist henni, þá sá maður aldrei neitt slæmt í fari hennar. Hún var bara góð og einlæg manneskja sem vildi engum illt. Alltaf þegar við töluðum um Þórey þá var það á góðum og jákvæðum nótum. Því það var það sem hún átti skilið. Hún átti alltaf allt það besta skilið.
Þegar ég mætti í minningarathöfn áðan í íþróttahúsið við Austurveg og sá fjöldan allan af stelpum sem voru að æfa, þá kom það mér ekkert á óvart. Það er ekki skrýtið að þessar stelpur hafi viljað æfa körfubolta fyrst að Þórey var að þjálfa. Betri þjálfara og fyrirmynd fyrir þessar ungu stelpur var ekki hægt að finna.
Ég votta samúð mína til fjölskldu Þóreyjar og öllum aðstandendum.
Hvíl í friði.
- Unnþór Jónsson | 20/01/06 17:11
|
|
Kæru vinir og fjölskylda Þóreyjar.
Ég frétti seint í gærkvöldi að það hefði orðið banaslys á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og að ung stúlka undir tvítugt hafði látist. Samstundis hélt ég að það hefði verið á Óshlíðinni og að viðkomandi stúlka væri einhver sem ég þekkti. En síðar frétti ég að það hefði verið Þórey og að slysið hefði orðið á Hnífsdalsveginum. Einhverneginn huggaði það mig ekki ekkert að vita að það hefði verið stúlka sem ég þekkti ekki. Ég vissi þó hver hún var og allir geta verið sammála um að hún bar af stúlkunum í skólanum. Hún var falleg og hlýjan stafaði af henni.
Mér finnst sárt að vita til þess að fullt af ungu fólki sem ég þekki sér á eftir vinkonu sinni í blóma lífsins svona stuttu eftir að við kvöddum aðra unga stúlku úr skólanum, elskulegu Sif. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð kæru vinir.
Kær kveðja,
- Ásta María Guðmundsdóttir | 20/01/06 17:12
|
|
Ég vil votta fjölskyldu, ættingjum og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Hjalti Rúnar Oddsson | 20/01/06 17:14
|
|
Elsku Þórey mín..Þú sem varst alltaf svo góð við alla og bara æði! Það er erfitt að vita að þú sért farin og ég trúi því ekki ennþá. En það fella tár þegar ég sé þessa minningargrein og geri mér grein fyrir að þú ert farin..Mun sakna þín ótrúlega þó að við höfum ekki hist mikið nema á röltinu undanfarið en það var alltaf æðsilegt að rabba við þig:) Hugsa til þess þegar við vorum litlar og voruð alltaf tvíburarnir í hnífsdal , ég og Sæsi og Þú og Þórir.. Man hvað mér fannst það skemmtilegt þegar við fórum frammí dal hjólandi og á fyrsta foss..ófáu " tvítví " leikirnir , snúsnú og allar samverustundir okkar..Gleymi þeim aldrei..Og það var alltaf gaman að vera í kringum þig.
Guð vill alltaf frábærustu stjörnurnar sínar aftur og tók þig frá okkur mjög snemma:( ..
Og ég er ekki ennþá að trúa því að ég sé að skrifa þetta , hélt að þessi dagur myndi aldrei koma.
Guð blessi þig elsku Þórey mín og hafðu það sem best þarna uppi. Þín verður sárt saknað:*
Votta öllum samúð mina:* ..
Kv.Sólveig Sigurjóna Gísladóttir
- Sólveig Sigurjóna Gísladóttir | 20/01/06 17:16
|
|
elsku þórey frænka mer finst þetta mjög óraunverulegt en eg veit bara ekki hvað á að segja.
einhvertíman verða allir að fara en ekki alltaf svona snemma ég trúði þessu ekki first þú varst alltaf svo góð við alla.
þú áttir margar góðar minningar hjá okkur en eg veit þú ert á betri stað núna.
ég man þegar eg heirði að einhver lenti í bílslisi en ég bara vissi ekki hver það var svo eg fór ekki heim strax.
þegar einn strákur í hnífsdal kom hann hlaupandi og sagði að það hefði orþið bílslis við sögðumst alveg vita það.
en hann sagðist vita hver þetta væri,maður var þá soldið forvitin og spurði svo hann svaraði og sagði þórey en maður trúði því ekki first og labaði heim til ömmu og mamma sagði mér allt.
síðan í skólanum daginn eftir var mentaskólinn að syrgja.og 10,bekkur.
hvíldu í friði
- Hálfdán | 20/01/06 17:20
|
|
elsku besta þórey mín:# ég veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja.. þegar ég er að hugsa um hvað ég eigi að skrifa, fer ég að hugsa, afhverju ég sé að rita hér minningu um þig, því þú átt eftir að hringja í mig og spurja hvort ég vilji koma með þér út, eða horfa á sjónvarpið. það er svo erfitt að skilja þetta, en þú varst sú manneskja sem margir mundi vilja vera.. alltaf í góðu skapi, og þessi hlýja sem fylgdi þér hvert fótspor.. það má segja að ég hafi verið heppin að fá að sjá þig í vondu skapi eða pirruð, því það var ekki algeng sjón... þegar ég byrja að rifja upp allt það góða sem við áttum saman sem var reyndar alltaf.. kemur svo mikið í hugan á mér, þú varst svo falleg og æðisleg, ég og sandra sátum með þér í bakaríinu sama dag og þú fórst frá okkur, þar varst þú að borða brownís, og drekka kók light, og þér fannst það svo gott, tókst litla bita í einu til að spara, en þú tímdir að gefa mér bita, og mér fannst þetta svo vont, að ég gat ekki einu sinni kingt.. og þú fórst bara að hlægja og skildir ekkert í mér... svo komstu í samkaup, og ég spurði þig, hvað á ekkert að fara í studio-ið, og þú svaraðir mér jú ég er að fara.. og brostir síðan til mín :# þetta bros er mér efst í huga, þú varst algjört yndi, svo lagið þórey mín, sem við sömdum, í kjötborðinu, eftir að hafa farið allnokkrar ferðir í frönskupottinn og nammibarinn, þú spurðir mig um daginn hvenær við ættum nú að fara gefa það út, og ég sagði það er nægur tími í það, en ég mun klára þetta lag elsku dúllan mín:#
svo á aðfangadag, keyrðum við út jólakortunum og pökkunum út saman.. það var svo gaman hjá okkur, þú varst að keyra nýjan bílinn þinn... og svo allar körfubolta minningarnar, þú ert búin að vera partur af mér í gegnum þær! við vorum búnar að komast að því að við vorum bestar í öllu, við tvær saman, í skotleikjum, í skólanum, á djamminu og mörgu fleira... og helst ef við tvær vorum saman í skotleikjum þá unnum við næstum því alltaf!
en ég get skrifað endlaust.. því við áttum svo margar góðar stundir elsku þórey min.. og svo talaðir þú svo mikið um afmælið þitt 25 mars, við vorum búnar að tala um að halda það saman.. því við eigum afmæli á svo stuttu millibili, en þórey mín, ég skal halda afmæli fyrir okkur báðar:# svo þegar við fengum loksins búningana, þá vorum við nú ekki lengi að finna nafn á þig en það vara angel, þú hefur allatíð verið engill, fallegasti engillinn.. en elsku þórey, ég mun aldrei gleyma þér, og þú munt alltaf eiga stóran part af hjarta mínu ég elska þig svo mikið og það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur, en þér er ætlað e-ð stórt og mikið hlutverk :#
og ég mun passa það að stelpurnar þínar sem þú talaðir mikið um, fá allt, og að þær verði jafn góðar og þú. :#
Elsku Ella bogga, Mummi, Þórir, Sara, Rakel og Helga Kristín og votta ykkur mína dýpstu samúð.
Ég ætla að láta síðustu orðin vera lagið sem við vorum byrjaðar að semja:#
“við erum tvær af klakanum
úr vestursveitini
sjóndaufar og bæklaðar
og til í hvað sem er
við vorum eitt sinn snillingar
en geitsið beilaði feit
þannig að við snérum okkur að efninu
og skunduðum upp á topp
við erum vinkonur
frá haus til tá........
.......................
elska þig að eilífu :#
þín guðbjörg #
- Guðbjörg | 20/01/06 17:21
|
|
Það er varla orð sem fá lýst þeim söknuði sem verður til af að missa þig Þórey mín. Ég er orðlaus og vill segja hér að þín verður sárt saknað.
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina á þessari stundu.
Gaui.Þ
- Guðjón M. Þorsteinsson | 20/01/06 17:22
|
|
Elsku Þórey, ég ætla að byrja á því að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman í studioinu flesta fimmtudaga í vetur, alltaf var maður stopp í heilu hálftímana að tala við þig um lífið og tilveruna, þú varst einstök;*
Guð blessi fjölskyldu Þóreyjar og vini.
Hvíl í friði elsku Þórey´:*
- Dagný Hermannsdóttir | 20/01/06 17:33
|
|
Þórey var æðisleg. geðveikt skemmtileg og alltaf brosandi. afhverju hún? afbjveju núna? hún var svo ung! þetta átti hún Þórey ekki skilið. þegar við fréttum þessar sorglegu fréttir þá bara grétum við :'( Við vonum að þér líði vel þarna sem þú ert og við vitum að þú horfir niður á okkur ! þú varst æðislegur körfubolta þjálfari og mjög góð í íþróttum ! Við söknum þín óendalega mikið og munum aldrei gleyma þér Þórey mín ! þú kenndir okkur margt í körfubolta og ég held áfram að æfa fyrir þig !
Guð blessi fjölskylduna..
- björk og helga ! | 20/01/06 17:33
|
|
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum,mínar dýpstu samhúðarkveðjur og ég á erfitt með að trúa því að þú sért ekki meðal okkar lengur:( Ekki í samkaup né stúdíóinu..
†Hvíl í friði og minning þín lifir með oss†
Guð geymi þig Þórey mín:*
Anna Lóa Gunnarsdóttir
Nemi Grunnskólans á ísafirði 9.bekk
- Anna Lóa Gunnarsdóttir | 20/01/06 17:40
|
|
You have left me with many memories;
I miss you everyday.
Sometimes I think of you,
Not more than today.
You'll never be forgotten,
In my heart you are there to stay.
I wish I could talk to you,
Where ever you may lay.
But that would take a miracle;
Each day I have to ask why,
And why I couldn't say goodbye.
I miss you so much;
I can't do it on my own.
I think of you constantly;
And I know you are not alone.
With that I want to say
I'll think of you everyday.
- | 20/01/06 17:41
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Við eigum aldrei eftir að gleyma þessari yndislegu stelpu.
-Kristín
- Kristín Ólafsdóttir | 20/01/06 17:45
|
|
Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt hana Þóreyju mikið...eiginlega ekki neitt, en það eru allir sem syrgja hana, hún var á vegi okkar daglega og var bara partur af degi hjá okkur öllum. Það er sárt að horfa uppá hana fara og hvað þá með þessum hætti, það þótti öllum vænt um hana, enda snerti hún okkur öll á einhvern hátt. Þegar að maður mætti henni úti á götu sá maður hvernig að það geislaði af henni ánægjan og hamingjan.
Þegar að ég sá þetta í fréttunum fékk ég áfall, ég ætlaði ekki að trúa því að svona góð og falleg stúlka hefði verin tekin frá okkur á þennann hátt. Í grunnskólanum var hennar sárt saknað og allir grétu í kór og féllust í faðma. Þá sá ég að þótt að Þórey væri horfin þá myndi hún sameina alla, nemendur og kennarar syrgja hana sárt, hennar verður alltaf minnst.
- Hanna (nemandi í 9.bekk) | 20/01/06 17:54
|
|
Maður veit ekki hvað hægt er að segja.. það er náttúrulega ekkert hægt að segja! Þórey systir mín er sú allra besta og hlýjasta manneskja sem ég hef á ævinni kynnst.. ég veit að því breytir enginn því hún var alveg einstök. Ég sé ekki hvernig í ósköpunum við fjölskyldan getum lifað með þessu.. hún var ljósið okkar og eins og við kölluðum hana stundum "gæludýrið" okkar :) En nú vantar stórann part í hjörtu okkar allra og við verðum að lifa með minninguna um yndislega, fallega og hlýja stúlku .. meðan ég er að skrifa þetta er ég enn að ýminda mér að ég fari nú að vakna upp af þessari marthröð..
Ég elska þig Þórey og þú munt alltaf vera lifandi í hjartanu okkar!
Þínar
Rakel og Jóna Lára
- Rakel Guðmundsdóttir | 20/01/06 17:59
|
|
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar. † Hvíl í friði Þórey †
- Ólína Adda Sigurðardóttir | 20/01/06 18:01
|
|
† Samhryggist öllum ættingjum og vinum †
- Þorgeir Egilsson | 20/01/06 18:15
|
|
Það voru þung spor í morgun inn í skólann og ekki síst í gamla íþróttahúsinu þar sem komið var saman allt körfuboltaliðið að minnast þessarar frábæru stelpu og votta ættingjum hennar og vinum sína dýpstu samúð. Þetta líf er ekki sanngjarnt. Af hverju þú??
Ég votta Þóri og fjölskyldu mína dýpstu samúð og Guð blessi þessa fjölskyldu.
- Hjalti Már Magnússon | 20/01/06 18:15
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Megir þú hvíla í friði.
- Alberta Gullveig Guðbjartsdóttir | 20/01/06 18:27
|
|
Elsku Ella Bogga, Mummi, Þórir, Sara, Rakel, Helga, og allir aðrir ættingjar og vinir Þóreyjar ég vil senda ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur við fráfall hennar. Hugur minn er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum, Guð veri með ykkur öllum um alla framtíð. Kveðja Fjóla Jónsdóttir og fjölskylda Þorlákshöfn
- Fjóla Jónsdóttir | 20/01/06 18:30
|
|
Ég votta Fjölskyldu og Vinum Þóreyjar mína dýpstu Samúð.
- Ingunn Fanney | 20/01/06 18:31
|
|
Samhryggist öllum ættingjum og vinum
- Birgir Olgeirsson | 20/01/06 18:34
|
|
mínar dýpstu samhúðarkeðjur til fjölskyldu og vina
- Jóhanna | 20/01/06 18:35
|
|
Úff .. þetta er svo óraunverulegt.. og að fá svona hringingu um að ein vinkona mín sé dáin, svona á ekki að ske. Maður vill bara ekki trúa því.. En maður veit ekki hvað maður á fyrr en misst hefur, og það er svo satt, ég vildi að ég hefði talaði meira við þig.. mðaur býst aldrei við svona, serstaklega ekki fyrir svona góða og frábæra stelpu einsog þig.. það var oft þín vegna að ég drusslaði mer á fætur til að mæta á æfingar.. því þú komst mer alltaf í svo gott skap og við létum alltaf einsog vitleysingar og hlóum. En núna mun það aldrei aftur, ekki með þér .. og ég vil ekki trúa því .. mér kvíður fyrir að fara vestur .. því þá þarf maður að trúa því að þú sért ekki þar.. ert ekki í stúdióinu .. eða að vinna í samkaup. Og allt það sem þú varst búnað plana að gera í sumar.. fá þér gat í naflann og allt þetta litla. það mun ekki gerast heldur. En ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna.. og vona að ég hitti þig þá aftur einhvertíman.
Ég votta mína dýpstu samúðir til þóris, Helgu, Söru, Rakeli, Elenborg og Guðmundi.
- Elísabet María Guðmundsdóttir | 20/01/06 18:37
|
|
ÞEir deyja ungir sem guðirnir elska, þetta er það fyrsta sem að ég fæ í hugann þegar ég sest hér niður til þess að skrifa nokkrar línur um þig Þórey. Ekki datt mér í hug að þurfa að gera þetta. En þín var meiri þörf hinu megin og ég vona að sá sem að tók þig frá okkur nýti sér ljúfmennsku þína, fallega brosið þitt, hlýhug þinn og allt það góða við þig. Það eina sem ég get sagt er að takk fyrir að hafa leift mér að kynnast þér í gegnum æskuna okkar.
Ég elska þig og sakna.
Elsku Guðmundur Þór, Elínborg, Rakel, Sara, Helga Kristín og Þórir, vinir og vandamenn megi guð styrkja ykkur í gegnum þessa djúpu sorg.
- Ásgerður Friðbjarnardóttir | 20/01/06 18:40
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð. Hvíldu í friði Þórey.
- Egill Þór Hallgrímsson | 20/01/06 18:40
|
|
Elsku frænka.
Orð fá ekki lýst þeirri ósanngirni og því óréttlæti að þú skulir kveðja þennan heim þegar þú áttir svo mikið framundan.
Lífið er ekki sanngjarnt, langt því frá.
Þórir, Mummi Þór, Ella, Sara, Rakel, Helga og fjölskyldur - ég vil votta ykkur öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur.
- Friðrik Ómarsson | 20/01/06 18:42
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Minning þín mun lifa í hjörtum okkar allra
- Tómas Emil Guðmundsson | 20/01/06 18:42
|
|
Ég votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Edda Katrín Einarsdóttir | 20/01/06 18:43
|
|
Elsku fjölskylda. Ég er alveg harmi sleginn eftir þessar fréttir sem mér barst í gær. Ég man svo vel eftir tvíburunum í Hnífsdal og þessari stóru fjölskyldu sem velkomnuðu alla inn á sitt heimili. Hugur minn er allur hjá ykkur núna. Elsku Þórir, Ella, Guðmundur, Helga Kristín, Sara og Rakel, ég sendi ykkur mínar samúðarkveðjur. Ég óska þess að þið fáið styrk frá hvort öðru til að komast í gegn um þetta hræðilega áfall. Það var mjög gaman að tala við hana þegar hún kom til mín í klippingu. Hún talaði svo vel um alla sína, og allir sem þekktu hana töluðu fallega um hana. Þórey var einstök stúlka og það er mikill missir að henni. Kveðja Sunenva Sigurðardóttir
- Sunneva Sigurðardóttir | 20/01/06 18:47
|
|
þú varts svo góð svo blíð svo fagleg fögur 17 ára gömul lífið er stúndum erfit það var leiðilegt að þú ert dáin ég græt í 1klukutíma
- heiða bára | 20/01/06 18:51
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og ættingjum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Ásgeir Guðmundsson | 20/01/06 19:14
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina. Megi guð styrkja ykkur í sorginni.
- Edda Jónsdóttir | 20/01/06 19:14
|
|
Þórey var yndisleg stelpa sem ég þekkti ágætlega og af þvi sem eg þekkti hana þa var hun æði skemmtileg og friðsæl.Hún átti þetta minnst skilið af öllum manneskjum i heiminum mér finnst svo leiðinlegt að þurfa horfast i augu við það að hafa misst hana það er svo skrytid hun þjalfadi mig i körfubolta og svo töluðum við um næstu æfingu sem kemur aldrei! Ég votta fjölskyldu og vinum hennar mina dýpstu samúð.
- Burkni | 20/01/06 19:14
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Guð verið með ykkur.
- Ásmundur Rangar Sveinsson | 20/01/06 19:22
|
|
Jáhhh... hvar er hægt að byrja á þessu, Þú varst æðislegasta stelpa í heiminum, það var hægt að sjá bros þitt langa veigi:'( sem sagt þú er engill í dulargevi:'( Þú áttir miklu betra enn þetta skilið:'( og maður trúir ekki að þú sért sá sem fór, maður grætur úr sér augun bara við að heyra nafn þitt og skrifa það og segja það:'( en Guð blessi þig og hvíldu í friði elsku Þórey mín(K) þín verður sárt saknað!:'(
Þeir sem deyja ungir sem guðirnir elska
-Jóhanna Hrönn
- Jóhanna Hrönn | 20/01/06 19:25
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina.
Megi guð vera með ykkur.
- Birgir Steinn Finnbjörnsson | 20/01/06 19:27
|
|
afhverju Þórey?.. ég gat ekki ýmdindað mér þetta enþá og hvað þá þegar pabbi hringdi í mig og sagði að ég þyrfti að bíða uppí skála... en ég get ekki sagt að ég þekkti þig mikið elsku þórey mín en allveg nó.. ég er glöð með að fá að hafa kynst þér eitthvað.. spjallið í stúdjóinu,samkaup og þegar ég var alltaf á puttanum þá tókst þú mig alltaf uppí.. það sem ég kynntist af þér var ekkert nema gott!! þú ert yndisleg og falleg manneskja og hlátur og bros alltaf til staðar hjá þér=) mikil var sorgin hjá okkur í 10 bekk í morgun... svo við lukum fysta tímanum en við munum öll sakna þín og brosins þíns elsku þórey:)
Eg vil fá að vota samúð mína til fjölskyldu,vina og kunninja Þóreyjar..
Blessuð sé minning þín elsku þórey okkar.. þú ert eingill og mund vaka yfir fjölskyldu þinni vinum og kunningjum
-ViktoríA G.í....
- ViktoríA .. | 20/01/06 19:31
|
|
Við viljum votta okkar dýpstu samúð,
megi hún hvíla í friði.
- Linda og Hrefna | 20/01/06 19:33
|
|
Ég veit ekki hvað skal segja. Þetta er allt svo óraunverulegt.
Þórey var frábær stelpa. Ég hef verið með henni í skóla í hátt í 10 ár og ég hef aldrei séð hana reiða eða pirraða. Hún var alltaf brosandi og glöð og þannig mun ég muna eftir henni um ókomna tíð.
Ég votta Þórir, fjölskyldu og vinum, mína dýpstu samúð.
† Megir þú hvíla í friði †
- Gísli Kristjánsson | 20/01/06 19:33
|
|
Vill votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur.
- Sigurvin Guðmundsson | 20/01/06 19:41
|
|
Vill votta fjölskyldu Þóreyjar mína mestu samúð hún hvílir á betri stað núna
- Einar Ægir | 20/01/06 19:45
|
|
Mikið getur lífið verið sárt og óskiljanlegt. Á svipstundu breytist ljós í dimmu og hlátur í grátur. Þú varst svo falleg og geislandi stelpa sem áttir alla framtíðina fyrir þér. Guð blessi þig og veiti fjölskyldu þinni og vinum styrk í þessari miklu sorg.
- Hafdís Sunna Hermannsdóttir | 20/01/06 19:46
|
|
Þetta var hrikaleg aðkoma að sjá bíl sem maður kannast við útí sjó, Og auðvitað vonaði maður að það væri búið að ná henni Þóreyju út þegar við komum,en Guð hefur greinilega verið á annari skoðun.
Ég vil votta fjölsk og vinum mínar dýfstu samúðar.
Árni Þór Einarsson
Slökkviliðs og Sjúkraflutningamaður.
- Árni Þór | 20/01/06 19:46
|
|
Elsku fjölskylda.
Okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu stundum. Ég á engin orð sem geta fengið ykkur til að líða betur. Megi guð vera með ykkur og veita ykkur styrk til að takast á við það sem framundan er.
Við erum með hugann hjá ykkur.
Margrét Halldórsdóttir og fjölskylda í Garðabæ.
- Margrét Halldórs | 20/01/06 19:54
|
|
† Elsku Þórey. Ég er enn ekki alveg búin að átta mig. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Farðu vel með þig fyrir handan, minning þín mun lifa áfram í hjörtum okkar allra. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð †
- Birna Pálsdóttir | 20/01/06 20:06
|
|
Ég naut þeirra forréttinda að kenna henni Þóryju í Grunnskólanum á Ísafirði og síðar að vinna með henni í Stúdíó Dan. Hún var frábær persónuleiki og yndisleg í alla staði og alltaf tilbúin að láta gott af sér leiða. Framtíðin virtist blasa svo björt við henni. En örlögin gripu sviplega í taumana.
Hugur okkar er hjá fjölskyldu hennar sem á nú um sárt að binda. Guð gefi ykkur styrk til að takast á við framtíðina.
Árni Heiðar og fjölskylda
- Árni Heiðar Ívarsson og fjölskylda | 20/01/06 20:06
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Megir þú hvíla í friði.
- Halldór Ingi Skarphéðinsson | 20/01/06 20:08
|
|
Guð geymi þig Þórey mín.. ég kynntist þér fyrst í gegnum körfuboltan og svo enn betur í studioinu.. það var skelfilegt að heyra þessar fréttir, það var hringt í mig og sagt mér að þetta hafi verið þú þá datt af mér andlitið.. Þú varst alltaf svo góð við alla í kringum þig, þegar ég og Anna komum á okkar fyrstu körfubolta æfingu þá varstu svo góð við okkur og bauðst okkur með opnum örmum.. þín verður sárt saknað.
ég samhryggist fjölskyldu, vinum og ættingjum..
megir þú hvíla í friði..
- Katerina Inga | 20/01/06 20:12
|
|
Elsku fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur og megi guð hjálpa ykkur í gegn um þessa erfiðu tíma, maður lærir að lifa með sorginni, en hún verður alltaf til staðar.
Stundum veltum við því fyrir okkur af hverju svona hlutir gerast
Ég á engin svör til.
En þó veit ég að guð lætur ykkur
ekki ganga ein í gegnum þetta
Hann myn vera með ykkur
alveg á leiðarenda.
Samúðakveðjur,
- Hulda Birna Albertsdóttir | 20/01/06 20:14
|
|
Elsku yndislega, fallega Þórey.
Mikid var sárt ad frétta af dauða þínum.
Að þú skildir hverfa svona snöggt a braut!Það eru engin ord, maður stirðnar bara í hjartanu. SVona ung, hjartahrein og haefileikarik stúlka sem lífid blasti vid skuli vera farin. Á þennan hraeðilega máta.
Við vorum nú ekki nánar heldur unnum saman síðastliðin vetur í Samkaupum. Þú varst alltaf svo ótrúlega blíd, yfirveguð og með þetta einstaka, bjarta bros þitt. Það gladdi mig alltaf.
'Eg sé þig svo lifandi fyrir mér, með stírurnar í augunum á laugardagsvakt, þú gast samt brosad og utgeislunin sem streymdi fra ter var svo sterk og hlý að ég finn enn fyrir henni núna.
Mikið er lífið óútreiknalegt og ósanngjarnt. Þú varst alltaf tilbuin að skipta við mig a vöktum og alltaf svo blíd.Ég er svo þakklát fyrir því að hafa fengið að njóta naerveru þinnar.
Þannig minnist ég þín elsku Þórey.
Guð geymi þig og þína nánustu á þessum hræðilega tíma. Megir þú hvíla í friði og í hjðrtum okkar allra að eilífu.
Mínar dýpstu samúðarkvedjur til fjölskyldu og vina.
- Anna Birta Tryggvadóttir | 20/01/06 20:14
|
|
Ég votta Þóri og fjölskyldu hans mína dýpstu samúð.
Þórey var yndisleg snót. Þó ég hef ekki þekkt hana lengi. Ég kom þarna alveg ný í MÍ sá hana alltaf brosandi þarna í skólanum, svo þegar ég byrjaði að æfa körfubolta þá kynntist ég henni. Hún var alltaf svoo glöð og ánægð með tilveruna að maður gat ekki annað en orðið sjálf glöð að vera í kringum hana. Ég get bara ekki trúað þessu, hún sem var svoo lífsglöð og sæt. Það var alltaf svoo gaman að sjá hana, þótt maður væri aðeins að versla í samkaup, byrjuðum alltaf að spjalla. Svo þegar við urðum saman í hóp í leikfimi, hvað við vorum alltaf að grínast eitthvað og hlæja.
Ég er geðveikt þakklát fyrir að hafa kynnst þér, bara að sjá bros þitt, þá færist bros yfir varir mínar. Þú ert algjört YNDI. Ég mun sakna þín, talaði nánast við þig á hverjum degi á msn. :)
En ég votta alla mína dýpstu samúð til allra sem þekktu hana.
Hún var/er svoo mikið yndi! :*
Megi guð og englarnir vaka yfir ykkur ;*
- Tinna Holt Victorsdóttir | 20/01/06 20:15
|
|
Engin orð fá lýst harmi mínum yfir fráfalli Þóreyjar. Ég fraus í sporunum þegar ég fékk fréttirnar, það er svo erfitt að trúa því að einhver svona kær manni og svona stórkosleg manneskja falli frá svona snemma.
Mörg fögur orð hafa verið sögð hér um Þórey og ég held að það sé fátt hægt að bæta við það sem sagt hefur. Hún var vinkona mín, Hlý og hjartagóð og algerlega ófær um að láta slæm orð falla um aðra manneskju. Hún var svo sannarlega engill hér á jörðu og ég er viss um að hún gætir okkar allra, líkt og áður.
Ég get ekkert sagt.
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til foreldra, systkina, ættingja og vinkvenna Þóreyjar, þetta er stúlka sem ekkert okkar mun nokkurntíman gleyma og sár missir.
Elísabet Rún
- Elísabet Rún Sigurðardóttir | 20/01/06 20:17
|
|
Það er eins gott að vera duglegur að segja fólki hvað maður elskar það mikið og hvers virði það er manni, því maður veit ALDREI!
Maður hugsar, af hverju hún en fær engin svör bara dofin augnaráð.
Hún sagði yfirleitt ekki mikið en sagði meira en þúsund orð með brosinu og augunum.
Votta fjölskyldu Þóreyjar og okkur öllum mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Hvíldu í fryði elsku Þórey
- Rannveig Hera | 20/01/06 20:17
|
|
Ég þekkti Þóreyju því miður ekki mjög vel, en ég vissi hver hún var. Hún virtist ófær um að vera annað en róleg og glaðlynd og það er ótrúlega fallegt að sjá hve margir skrifa svo marga fallega hluti um hana á þessari minningarsíðu.
Engillinn Þórey fór fyrr til himna en nokkur ætlaði og hennar verður sárt saknað.
Ég vil votta allri fjölskyldu hennar og vinum mína dýpstu samúð. Megi hún hvíla í friði.
- Helgi Hrafn Ólafsson | 20/01/06 20:26
|
|
'eg votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð. †hvíl í friði†
- Egill már, G.Í | 20/01/06 20:33
|
|
Vill votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur.
- Almar ingason | 20/01/06 20:33
|
|
Elsku Þórey mín.
mér er það ferskt í minni þegar við kynntumst fyrst. ég var 10ára og var að flytja útí hnífsdal. Þú varst ein af mínum fyrstu vinkonum og svo sú besta! Þú varst eina vinkona mín sem ég gatsagt allt! allt! og ég huxaði ekki um það í eina sek að þú myndir kjafta! þú varst vinur vina þinn og allra annara í raun.
ég man það líka núna í byrjun veturs.. Þér fannst það svo fyndið að ég þorði ekki í turbo bekkina í stúdíóinu... svo varð úr að þú komst með mér! og ekki bara einusinni! þarna sastuhjá mér, hlóst að mér og sagðir mer að allt væri í lagi.. þú lokaðir bekknum og skellihlóst af andköfunum mínum þegar vifturnar fóru í gang... Við töluðum um stráka... (sem var reyndar eitt algengasta umræðuefnið hjá okkur) Þú vasrt alltaf að segja að ég væri svo heppin, að ég fengi alla straka sem eg vildi.. það er ekki satt Þórey mín ég er bara frek og tek það sem ég vill.. þú ert rólegri, huxar allt til enda og bíður og vonar... svo á fyrstu körfuboltamótunum, í míníbolta.. við vorum svaka gellur! ég og þú! leitandi að sætum strákum til þess eins að hlæja :D
Elsku Þórey mín. þú er fallegasta manneskja sem ég veit um! að innan og utan. þegar ég huxa um þig huxa ég um bjarta brosið þitt! sem yljar hverjum manni! freknurnar sem þú hataðir . endalaus hógværð! aj Þórey að missa þig er vont fyrir allann heiminn! ég get með sanni sagt það að allir sem þig þekkja munu gráta þig! Það var svo fallegt heima hjá þér áðan, þú hefur öruglega séð það og huxað : ooohhh vá en fallegt! og það er bara fyrir þig!
-mannstu þegar við (ég) vorum i ljósum og við vorumað tala um hvað við töluðum lítið saman uppá síðkastið, ég bara að vinna og þú á fullu i skola, vinnu og körfu! við ættluðum a bæta þetta og verða aftur bestu vinkonur... fyrirgefðu Þórey að það varð ekki... En Þórey þú áttir alltaf eftir að segja mér afhverju þú fórst í burtu frá mér á annann íjólum ballinu! þegar við vorumað dansa .. þú bara hvarfst! en það var öruglega strákamál;)
ég get ekki huxað mér lífið án þín.. eitthvernveginn er ég ekki að trúa þessu.. mér finnst þú bara vera á sjúkrahusinu, einsog þegar þu varst með sykinguna i beininu þarna eftir Reyki í 7unda bekk... þetta reddast allt og þú kemur brosandi á næstu æfingu..
en það gerist ekki og að vita það er það versta í heimi!
Hafðu það gott hjá öllum hinum englunum Þórey mín, við söknum þín öll og huxum um þig alla daga!
PS ég veit að´í þínu himnaríki er fullt af berum, stæltum vin diesel-um , svo ég biðað heilsa og bið þig að geyma eitthverja eftir fyrir mig þegar ég kem til þín! ;) :*
- Birgittaróz | 20/01/06 20:50
|
|
Við viljum fá að senda fjölskyldu og vinum Þóreyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Takk fyrir að þjálfa mig í vetur.
Minning þín mun lifa um alla eilífð.
Guð blessi ykkur öll.
- Regína Huld og fjölskylda Suðureyri | 20/01/06 20:51
|
|
Söknuðurinn af þér er gífurlegur, við gleymum þér aldrei.
Ég votta fjölskyldu og vinum mikla samúð
Hvíldu í friði
- Bjarni Valgeirsson | 20/01/06 20:51
|
|
Sko, ég þekki þig ekki neitt, ég veit að þú ert að lesa þetta en mér líður samt svo rosalega illa yfir þessu. Guð blessi þig :)
*krossar sig*
- Smári F. | 20/01/06 20:52
|
|
mer fynst það leiðin legt að missa svona finan þjalfara sem hefur æft okkur í körfubolta á suðureyri en svona getur gerst einhvern timan en afhverju a þessum tima. við mættum a eins margar æfingar og við gatum þvi hun er frábær hun brosir blít og okkur fynst það frábært en. við soknum þin við munum hafa þig i hjarta okkar.
Guð blessi fjölskyldu þóreyjar og vini - við vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð..
- andri már og guðmundur leó og ingileifur steinar skjaldarsinir | 20/01/06 20:55
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar dýpstu samúðar.
- Hákon. | 20/01/06 20:55
|
|
Elsku Þórey þín verður sárt saknað.. Erfitt að þurfa skrifa svona minningarorð um unga stelpu sem var í blóma lífsins og átti allt eftir framundan.Þórey var alltaf bara Þórey og var ekkert að reyna að vera nein önnur en hún var. Bara hún sjálf og það elskuðu hana allir fyrir hennar stóra og góða hjarta. Guð er ekki alltaf sanngjarn og sannaðist það í gær. En hann vildi hafa þig hjá sér því þú vast sú besta sem hann gat fengið. Góðhjartaðasta og blíðasta manneskja sem ég hef hitt. Fáir á lífsleiðinni eiga eftir að geta gert jafn mörg góðverk og verið jafn góðir við alla eins og þú vast. En það er gott að hugsa um að þú sért núna komin á betri stað þar sem allir góðu englarnir passa þig. Það er svo skrítið að þú sért farin frá okkur á þessari jörð. Lífið án þín verður svo sannarlega öðruvísi því Þórey var alltaf svo góð og bara partur af lífinu. Hún lifði lífinu til fullnustu og hafði látið margt gott leiða af sér þegar hennar tími kom. En það verður stórt gat á lífi okkar allra þangað til við sjáumst hinum megin.. ég vil votta fjölskyldu þóreyjar og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Megir þú hvíla í friði elsku Þórey og megi guð geyma þig á blessa á himnum hjá sér. ég veit að þú fylgist með okkur og passar þá sem eiga erfitt á þessum sorgartímum.
- Margrét Heiða Magnúsdóttir | 20/01/06 20:58
|
|
Alltaf leiðinlegt að heyra þegar svona hlutir gerast við ungt fólk.
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
- Elliði Jónsson | 20/01/06 20:59
|
|
Það gerðist eitthvað svo hræðilegt í gær... Það fer ekki framhjá neinum. Sérstaklega þegar þú býrð hér á Vestfjörðum. Það er ein stelpa hér sem lenti í slysi, og vegna einhverjum ástæðum lifði hún ekki af... Þessi stelpa, Þórey, var með mér í íþróttum í skólanum í fyrra. Mér þykir það svo leitt að hafa ekki kynnst henni betur. Það tala allir mjög vel um hana og það er ekkert annað en bros og hlátur... og hversu yndisleg hún var. Mér finnst það svo leiðinlegt að þurfa að vera svo hreinskilin og segja að ég fann ekkert fyrir þessu... ég vil segja eitthvað en ég veit bara ekki hvað? Ég hef aldrei lent í því að missa einhvern sem er mér svo nákominn... ég veit bara ef það skyldi koma fyrir mig, þá myndi ég gráta óendanlega mikið. Ég get rétt svo ímyndað mér hvernig það er að vera í sporum fjölskyldu hennar...
Ég samhryggist ykkur.
- Liza Rose | 20/01/06 20:59
|
|
Ég kannski talaði ekki oft við Þóreyju en samt nógu oft til þess að sjá að þarna var hrein sál með hreina samvisku á ferð. Eftir þennan atburð veltur maður því fyrir sér að svona manneskjur eru bestu fyrirmyndir manns. Heilbrigður lífstíll var örugglega alltaf í fyrirrúmi. Hún var allmennileg við hvern þann sem var á vegi hennar.
megi hún hvíla í friði.
- Hákon D. Guðjónsson | 20/01/06 21:05
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Guð veri með þér
- Ásgeir G Guðbjartsson | 20/01/06 21:06
|
|
Mig langar að senda fjölskyldu Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur, ykkar missir er mikill.
- Sjöfn Kristinsdóttir, Hólum Hjaltadal | 20/01/06 21:07
|
|
Eg tekkti toreyu ekki.. en ad heyra svona frettir fekk mig til ad grata.. tetta er ekki sanngjarnt! Eg vil senda dypstu samudarkvedjur til fjolskyldu og vina!!!
kaer kvedja
- Danni | 20/01/06 21:10
|
|
Þórey var yndisleg stúlka sem færði hamingju til allra í kringum sig. Blíða brosið hennar fékk alla til að brosa líka!! Þín verður sárt saknað en frábærar minningar um þig munu lifa um ókomin ár.
Megir þú hvíla í friði og megi guð blessa þig og fjölskyldu þína!
Okkar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina!
- Stígur Berg og Begga. | 20/01/06 21:16
|
|
Kæri Þórir og fjölskylda.
Það er sárt þegar ungt fólk kveður þennan heim allt of snemma. Þórey var yndisleg stúlka í blóma lífsins og var hvers manns hugljúfi. Hún var alltaf brosandi hvort sem það var á kassa í Samkaup eða í Stúdíó Dan. Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg og hjálpi ykkur að líta glaðan dag að nýju.
- Guðný Stefanía, Jón Hálfdán íþróttakennarar og Stefán Freyr | 20/01/06 21:26
|
|
Ég votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð.
- Emil Pálsson | 20/01/06 21:33
|
|
elsku þórey mín, að þetta skuli hafa verið þú, ég trúi því ekki ennþá og ég vil hreinlega ekki trúa því, þú ljúfasta manneskja sem ég hef á ævinni hitt, þegar ég er að skrifa þetta og horfi á myndina hér fyrir ofan mig er það fyrsta sem eg hugsa um er brosið þitt og augun og fallegu freknurnar sem þú varst alltaf svo ósátt með, sem að mér fannst alltaf jafn sætar, og svo kvartaðiru alltaf yfir því þegar þú varst komin úr ljósum, æj freknurnar. Allar mínar minningar um þig eru góðar og eru þær alls ekki fáar,allt sem við höfum gert saman, öll skólaárin sem við höfum verið saman í skólanum, öll stelpupartyin sem við héldum, þegar við fóurm á pizza og Halla gerði sig að fífli ,það var uppáhalds pizzaferðin okkar, æj, ég get endalaust haldið áfram, nuna á þessari stundu vildi ég óska þess að ég hafi verið að æfa körfubolta svo ég hefði fengið enn betri góðar stundir með þer, allar þær stundir sem ég fékk með þer geymi ég í gullkassa í hjarta mér þú ert svo sannarlega engillinn í hópnum, við dýrkuðum þig alltaf svo mikið fyrir það hver þú varst, þú áttir eitthvað svo mikið í okkur og við áttum svo mikið í þer, þú gafst manni svo mikið af hjarta þínu með hlýju þinni og þessu fallega brosi sem að ég get ekki hætt að horfa á, þú varst án efa ein besta vinkona sem hægt var að eignast ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þer og njóta svona margra stunda með þer, góðra stunda. Þórey mín ég veit ekki hvernig við getum lifað án þín, en auðvitað gerum við allt fyrir þig og við verðum sterk og komum okkur áfram í lífinu og verðum allar roslega stórar og verðum duglegar í skólanum og vinnuni og stöndum með fjölskyldu þinni við gerum allt fyrir þig elsku ástin mín! ég lofa! :*
- Guðmunda Stefanía | 20/01/06 21:33
|
|
Sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu, ættingja og vina Þóreyjar í þeirra miklu sorg. Megi Guð vera með ykkur og styrkja.
- Guðmundur Þorkelsson | 20/01/06 21:35
|
|
Elsku Þórey mín, ég er enn ekki farin að átta mig á þessum mikla harmleik. Finnst þetta ennþá bara sem ein stór martröð sem ég bíð eftir að vakna upp við. Hugsa bara hvusslags rugl er þetta, ég á eftir að hitta Þórey í skólanum í næstu viku, þetta er allt í lagi. En því miður er svo ekki. Þú varst svo frábær stelpa, svo blíð og yfirveguð og alltaf brosandi! Það var bara þitt einkenni, þetta fallega bros...svo varstu líka bara svo rosalega góð, hef ekki kynnst betri manneskju. Við þekktumst þó ekki mikið, töluðum af og til saman í skólanum og vorum síðan saman í nokkrum tímum, get eflaust sagt að við vorum hinir ágætis kunningjar:) En ég gleymi aldrei hlýjunni sem þú gafst frá þér...þetta er bara svo alltof skrítið, eiginlega of skrítið til þess að geta verið satt. Ég man bara eftir því þegar við sátum við borðið þar sem við erum byrjaðar að sitja allar við, bara núna í fyrradag og þú, ásamt fleirum, voru að gera íslenskuverkefni, þar spjölluðum við aðeins og síðan í félagsfræði man ég eftir því að þú sast við hliðina á Remy og þið voruð að skoða skriftina hjá hvor annarri, sagðir að þín væri svo óskiljanleg og að mjög fáir skildu hana, ég leit þá við til þess að forvitnast aðeins um hana og ég verð nú bara að segja þú skrifaðir svo miklu betur en ég, varst með svona, hvað segir maður, þroskaða skrift. Svo á 1.des matnum, um daginn komstu til mín og sagðir mér að þú hefðir verið nýbúin að kaupa þér alveg ótrúlega flottan kjól í J.O.V og að þér hlakkaði svo til að geta notað hann um kvöldið og við enn fleiri tilefni, og það var satt þetta var frábær kjóll og þú varst svo ótrúlega falleg það kvöld, það skein svoleiðis af þér, þannig varst þú reyndar alltaf. En nú er eins og tilveran sé algjörlega búin að hrynja, ég bara skil þetta ekki, þú varst svo fullkomin manneskja, bæði í útliti sem og í persónuleika, þín verður svo sárt saknað. Ég held að það sé alveg óhætt að segja það að árgangurinn verður aldrei eins án þín, þú náðir alltaf að lífga upp á hlutina með brosi þínu og jákvæðni. En nú er tími til þess að kveðja elsku Þórey...ég er svo ánægð að geta sagst hafa þekkt svo frábæra manneskju sem þig, takk fyrir svo frábærar stundir. † Megi þú hvíla í friði og guð geymi þig vel;*
Ég vil votta Þóri og fjölskyldu og öllum hennar vinkonum og vinum mína dýpstu samúð, farið vel með ykkur.
- Arna Rannveig | 20/01/06 21:37
|
|
Ég var rétt byrjaður að kynnast henni og þekkti hana voða lítið , en ég þekkti hana nóg til að vita að hún er síðasta manneskjan sem átti þetta skilið , ég vann með henni og skemmtilegasti vinnudagurinn minn var annað hvert föstudagskvöld þegar ég var að vinna með henni , við töluðum saman um allt sem hægt var að tala um.
Þórey hugsaði um alla í kringum sig og enginn gat verið leiður í kringum hana , því hún var svo lífsglöð og sá til þess að allir væru glaðir í kringum hana.
Ég var í vinnunni þegar ég heyrði þetta , og mér brá svo mikið, ég gat ekki trúa þessu og get það ekki en. Hvernig gat svona lagað hent svona yndislega manneskju ?
Ég vil votta mína dýpstu samúðarkveðju til Þórirs og fjöldskyldu.
Megi þú hvíla í friði Þórey.
- Brynjar Þór | 20/01/06 21:50
|
|
Ég vil votta fjölskyldu, vinum og nánustu ættingjum mína dýpstu samnúð. Það er alltaf sárt að missa ástvin í blóma lífsins.
Meigi Þórey hvíla í friði
- Þóra Marý | 20/01/06 21:51
|
|
Mikill er missirinn.
Einstök stúlka tekinn frá okkur í blóma lífsins. Bæði vorum við hjónin svo heppinn að fá að kynnast Þóreyju í starfinu í KFÍ. Alveg einstök stúlka, góður félagi, hrein og bein, góðmennskan í gegn.
Á þessum erfiðu sorgarstundum viljum við senda foreldrum og systkynum Þóreyjar innilegar samúðarkveðjur.
Megi góður guð styrkja ykkur í sorg ykkar.
- Fjölskyldan Úlfsá | 20/01/06 22:04
|
|
Þessi yndislega stelpa var hrifsuð frá okkur í blóma lífsins, ég þekkti hana lítið sem ekkert en man eftir henni frá því ég var í Hnífsdal í heimsókn með Salóme, Hebu og fleirri úr þeirri fjölskyldu. síðan hitti ég hana Þórey í samkaup, og studioinu þar sem gleðin skein af henni, og alltaf var hún jafn falleg og fallegt bros sem fylgdi henni !!
Þetta er mikill missir og ég vil biðja Guð um að fylgja fjölskyldu hennar í þessari miklu og djúpu sorg sem að hefur gert ör í hjarta allra sem fengu að nálgast hana Þórey.
Þórir, Foreldrar, systkini, vinir og kunningjar Þóreyjar vil ég votta mína dýpstu samúð og guð leiði ykkur og passi ykkur í þessari sorg !
- Margrét Elly. | 20/01/06 22:12
|
|
Guð blessi þig elsku Þórey, vonandi fer vel um þig þarna uppi, þú átt það svo sannarlega skilið. Ég vil votta Þóri og fjölskyldu mína dýpstu samúð.
- Haraldur Jón Jóhannesson | 20/01/06 22:18
|
|
Ég votta hennar fjölskyldu og vandamönnum mínar innstu samúðarkveðjur. Ég veit hversu erfitt það er að missa einhvern í bílslysi. Guð geymi þessa ungu stelpu.
- Víkingur Ívar Einarsson | 20/01/06 22:20
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.
- Sandra María Arnardóttir | 20/01/06 22:20
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Minning um yndislega stelpu lifir í hjörtum okkar.
Anna Fía
- Anna Soffía Sigurlaugsdóttir | 20/01/06 22:22
|
|
Ég Þekkti Þóreyu ekki neitt aldrei séð hana né heyrt um hana en hún var þó manneskja eins og hver annar,Falleg stelpa ,mér finnst sorglegt að svona hlutir geta skéð, en ég Votta Fjöldskyldu Þóreyar og Vinum Mínar Dýpstu samúð og Megi Þórey Hvíla í Friði og Vaki Englar Alheimsins yfir henni
Ung Sem Lamb
Leikur sér,
tímin líður og
margt íllt getur
skéð, Guð kemur
og tekur barnið
frá þér, þú fellur
i sorg, allt svo
ömurlegt en vita
má að Vakir yfir
þér Barnið Þitt sem
fallið er þér Frá.
..::Björk::..
Takk Fyrir og Guð Geymi Þig :*
- Björk | 20/01/06 22:28
|
|
Þekkti hana ekki neitt en sem körfuboltaunnandi og spilari þá vil ég votta fjöldkyldu hennar og vinur mína dýpstu samúð. Þórey ég vona að þú hvílir í friði og megi Guð geyma þig.
- Villi | 20/01/06 22:42
|
|
Það er sárt að hugsa til þessa að Elsku Þórey mín að þú sért farin frá okkur aðeins 17 ára gömul í blómalífsins.
Sárt er að hugsa til þess að sjá þig ekki á göngum skólans aftur, í svörtu úlpuni þinni og gallabuxunum sem þú vast svo oft i og með falleg brosið þitt sem þú vast ávalt með á vör!
Helst minningin um þig sem kemur upp í hugan minn er sú að þegar ég og Dagny komum eitt sinn til þín í rauða húsið og ég sá hárið þitt og langaði svo rosalega að klippa mig eins og hárið þitt var, fór heim og grátbað mömmu um að fá að klippa mig eins og hárð þitt var:)
Elsku Þórey mín hvíldu í friði og guð geymi þig
Elsku Ella,Mummi,Rakel og Jóna Lára,Sara,Helga og fjölskylda og elsku Þórir guð meigi vera með ykkur á þessum erfiða tíma
- Salóme Halldórsdóttir | 20/01/06 22:48
|
|
Elsku Þórey, litli engill. Þú lifir í hugum og hjörtum okkar allra. Við munum ávallt finna fyrir hlýjunni sem þú barst ávallt með þér.
Elsku Mummi, Ella, Rakel, Sara, Helga og Þórir
fjöskyldur og vinir
Okkar dýpstu samúðarkveðjur.
- Ester og Stefán | 20/01/06 22:51
|
|
Ég trúi þessu bara alls ekki .. Þórey sem var alltaf svo góð og blíð, ég var að vinna með henni og ég hugsagði alltaf með mér .. yess ! þegar hún var að vinna því að hún var alveg virkilega góð við mig .. og það var alltaf gott að tala við hana ! Þetta er svo erfitt og ég er ekki búin að átta mig almennilega á þessu, held að ég geri það aldrei ! Það er ekkert sorlegara en þegar eitthver fer svona allt í einu. Það er eins og það sé eikkvað rifið af manni og maður getur ekkert gert í því :(
Ég votta fjöslkyldu og vinum Þóreyjar alla mína samúð !
- Elín Sveinsdóttir | 20/01/06 22:51
|
|
Elsku besta Þórey
þegar að síminn hringdi í gær og okkur var sagt að þú hefðir látið í bílslysi fannst mér eins og mér væri að dreyma slæma martröð og ég beið eftir að vakna og vita að þú væri á lífi en því miður er þetta satt.
Elsku Þórir, mummi ella, sara, rakel, Helga Kristín og fjölskyldur ég votta ykkur alla mína samúð og guð varveiti ykkur öll
Halldóra Frænka
- Halldóra Frænka | 20/01/06 22:54
|
|
Ég kemst ekki hjá því að hrista hausinn í hvert skipti sem ég hugsa um þetta, að Þórey sé virkilega farin. Ég vil bara ýta því burt, þetta getur ekki staðist! Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt hana mikið, en alveg nógu vel til að geta tekið undir það hversu góðhjörtuð, hlý og yndisleg manneskja hún raunverulega var. Aldrei hefði þetta hvarflað að mér, hún Þórey! ég er enn að reyna að móttaka þetta en þetta er bara of óraunverulegt, of ótrúlega óréttlátt!
Ég er hins vegar alveg viss um að hún er nú á góðum, eflaust betri stað en þessum, hún var svo dásamleg að annað er henni ekki samboðið.
Elsku Þórey
Bærinn liggur nú nánast í lamasessi, allir sem svo mikið sem þekktu til þín syrgja andlát þitt svo mikið og fátt annað en sorg og söknuður býr í hjörtum okkar. Bærinn er svo sannarlega ekki samur án þín! Ég segi alveg satt þegar ég segi að þú ert ein hlýjasta og vingjarnlegasta manneskja sem ég hef kynnst og bærinn virðist nú vera svo ósköp fátæklegur án þín. En fyrir vikið er þetta litla samfélag okkar samheldnara en nokkru sinni fyrr því allir hér glíma við söknuðinn sem fylgir fráhvarfi þínu og allir virðast viljugir til að bjóða hjálparhönd til hvers þess sem á henni þarf að halda:) Þetta var svo mikill missir að missa þig Þórey, eins dásamleg og þú ert!
Þórir, systur Þóreyjar, foreldrar hennar, ættingjar, vinir og allir þeir sem til hennar þekktu, ég votta ykkur alla mína dýpstu samúð og frá mínum dýpstu hjartarótum óska ég þess að guð gefi ykkur styrk og hjálpi ykkur á þessum erfiðu tímum. Ég byð að hann leggji blessun sína yfir ykkur og fylgi við hvert fótmál.
Virðingarfyllst
Katrín Elva Eiríksdóttir
- Katrín Elva Eiríksdóttir | 20/01/06 22:55
|
|
Því miður þekkti ég hana ekki, samhryggist fjölskyldu frá öllu mínu hjarta. Veit hvernig það er að missa ættingja. Hún er gullfalleg og þið megið vera stolt að hafa þekkt hana.
- Helgi | 20/01/06 22:56
|
|
Það situr djúpt eftir þegar svona ungt fólk lætur lífið í blóma lífsins.
Við vottum fjölskyldu og vinum Þóreyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Megi þú hvíla í friði Þórey †
- Davíð Sævar Sævarsson, Arnór Smári Jónsson og Sólrún Guðmundsdóttir | 20/01/06 22:59
|
|
elsku Þórey frænka
í gær þegar þegar að mamma sagði okkur að þú hefðir látið lífíð í bílslysi fórum við að gráta.. okkur fannst það ekki réttlát að svona ung stelpa væri farin. Okkur fannst þú alltaf svo skemmtileg þegar að við hittum þig þegar að við komum verstur í Hnífsdal.
Elsku Þórir Mummi þór Ella Sara Rakel Helga Kristín og fjölskyldur við sendum ykkur samúðarkveðjur
guð geymi ykkur
ykkar frændur Theodór Hrannar og Halldór Gústaf
- Theodór og Halldór | 20/01/06 23:02
|
|
ég þekkti ekki þórey neitt en ég vann með henni eitt sinni í verkefni í skólanum.. hún gerði ekkert nema að brosa og hlæja um það sem við vorum að vinna við.. það geislaði af þessari stúlku og henni á eftir að vera sárt saknað
hvílu í friði þórey...
og ég votta fjölskyldu hennar og vinum mína dýpstu samúð
- Arnar Jónsson | 20/01/06 23:03
|
|
Elsku Rakel og fjölskylda, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur.
- Ingibjörg Erna Jónsdóttir | 20/01/06 23:03
|
|
Það er svo sannarlega skrítið og fjarstætt raunveruleikanum að hún Þórey, sé farin. Farin fyrir fullt og allt. Svona elskuleg stúlka í blóma lífsins, brosmild og hjartahlý. Margar eru minningarnar og góðar eru þær. Við munum alltaf minnast þín elsku Þórey, okkar yndislegu tímum saman í KFÍ.
Sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur vil fjölskyldunnar í Hnífsdal, vina og ættingja.
- Íris og Pétur Már. | 20/01/06 23:30
|
|
Þótt ég sé látinn,
harmið mig ekki með tárum,
hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.
Ég er svo nærri,
að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur,
en þegar þið hlægjið og syngjið með glöðum hug
lyftist sál mín upp í móti til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur,
og ég tek þátt í gleði ykkar.
Er þið grátið græt ég, er þið hlægjið hlæ ég,
ég mun ætið vera hjá ykkur, styrkja ykkur og veita ykkur kærleika minn og nærveru.
When I think of angels:
When I think of angel - I think of you.
With your flaming red hair – and the things that you do
I heard you had left, no it could´nt be true
When I think of angel - I think of you
Good speed to you angel wherever you go
Althought you have left - I want you to know
Our heart´s full of sorrow, I won´t let it show
I´ll see you gain when it´s my time to go
When I think of angel - I think of you
With your flaming red hair – and the things that you do
I heard you had left, no it could´nt be true
When I think of angel - I think of you
Kristján Kristjánsson (KK)
Kæra Fjölskylda, megi guð og kærleikur styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum sem framundan eru hjá ykkur, guð blessi ykkur og varveiti,
ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiða tíma † Megi minningin um Þórey hlýja ykkur um ókomna framtíð†
- Páll Magnús | 20/01/06 23:33
|
|
Elsku Þórey frænka
í gær þegar Sigríður hringd og spurði eftir mömmu var hún eitthvað svo skýtin í röddinni og ég er von að strýða henni þegar að hún hringjir og er eitthvað skrýtin aðþví að þá er hún annaðhvort að gera eitthvað eða að flýta í gær þá var röddin hennar öðruvísi það var alveg eins og það hefði eitthvað dáið innra með henni og og 5 mínútum seinna sagði mamma mér að þú værir dáin en ég trúði henni ekki og stóð bara í þeirri trú að ég væri sofandi og beið eftir því að ég yrði vakin en svo þegar að ég áttaði mig á því að þú værir farin frá okkur srteymdu svo ótal minningar uppí huga minn og það er ein sem situr svo fast í huga mér, þegar að við vorum lítil og ég kom vestur hljóp ég alltaf beint í spítuhúsið að sourja eftir þér og Þórir og við lékum okkur alveg langt fram á kvöld úti í hafnabolta..
Það er ekkert sem maður gert eða sagt til að lækna þennann sársauka og söknuð sem fjölskyldan þín fer í gegnum núna en þú er komin á betri stað og ég vona að þér lýði vel og býðir eftir okkur öllum og takir vel á móti okkur þegar að við komum en þanngað til skaltu halda áfram að brosa niður til okkar. ljós þitt mun aldrei slokna í hjarta okkar guð blessi þig
elsku mummi ella þórir helga kristín sara rakel og fjölskyldur ég sendi ykkur alla mína samúð á þessum erfiðu tímum
ykkar frænka Birgitta ýr
- Birgitta | 20/01/06 23:39
|
|
When I think of angel
I think of you......
Þessi fallega setning kemur upp í hugann á mér þegar ég hugsa um þórey, því hún var svo sannarlega engill í mannsmynd. Hennar blíða bros, geislandi augu, hlýja hjarta og frábæra útgeislun fór ekki framhjá neinum sem á vegi hennar urðu, jafn yndislegri manneskju hef ég aldrei kynnst og er ég ákaflega þakklát fyrir það að hafa fengið að kynnast þessari frábæru sál.
Elsku Þórey minnig þín er ljós í lífi okkar hinna.
Elsku Þórir, fjölskylda og vinir ég votta ykkur mína dýpstu samúð.
- Indíana | 20/01/06 23:43
|
|
Sjálf þekkti ég Þórey ekki mikið, en vinkona mín, Elísabeth þekkti hana mjög vel. Í þau skipti sem ég hitti hana gaf hún í hvert skipti frá sér gleði og hlýju.
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar samúð.
- Þóra Dís Guðbjartsdóttir | 20/01/06 23:43
|
|
Kæra fjölskylda.
Þóreyjar verður sárt saknað.
Blíð og góð, róleg og brosmild.
Minnist körfuboltaferða. Landsmót; Best í vörninni og munið þriggja stiga körfurnar? Og foreldrarnir trylltust á áhorfendabekkjunum. Og var það ekki á Landsmótinu í Stykkishólmi,sem hún var sett á bekkinn með fjórðu villuna(spara þá fimmtu) og brosti þá þessi elska ekki bara blítt ?
Mínar innilegustu samúðarkveðjur.
- Guðrún Sigurðardóttir | 21/01/06 00:01
|
|
ég votta fjölskyldu þóreyju mínar innstu samúðar óskir. Hún var alveg yndisleg manneskja og góð í körfu og bara í öllu yfir leitt takk fyrir að kynna mig fyrir boltanum
- ein úr boltanum | 21/01/06 00:04
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar samúð
Hvíl í friði †
- Smári Alfreðsson | 21/01/06 00:26
|
|
Elsku Þórey Frænka
Það er ervit að trúa því að þú sért farin, það eru ótal spurningar sem koma upp og eingin getur svarað þeim.
Ég vildi ekki trúa því þegar afi Elli sagði mér að þú værir látin,
það var svo mikil gleði yfir þér þegar ég hitti þig í desember, þú geyslaðir öll af lífsgleði. En núna ertu farin :(
ég veit að amma og afi taka á móti þer og hjálpa þer að takast á við breitingarnar.
Takk fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst okkur, ég mun reyna að minnast þeirra með brosi.
Hvíldu í friði elsku Þórey
Mummi, Ella, Rakel, Sara, Helga og Þórir.
Mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Heba og fjölskylda
- Ingibjörg Heba | 21/01/06 00:33
|
|
það snerti mig djúpt þegar að ég frétti að stelpan sem hafði látist í bílslysi hafi verið jafn gömul og ég. en það tók enn meira á þegar að ég var að tala við Guðbjörgu frá Ísafirði (sem ég þekki örlítið) og hún sagði mér að þetta hefði verið vinkona sín og hefði spilað körfubolta við mig. ég man eftir Þórey hlaupandi í bláa búningnum sínum, hrifsa af manni boltann, hún var hörku körfuboltaleikmaður.
ég vil senda mínar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur frá mér. ég get ekki ímyndað mér hvernig ykkur líður en vil senda styrk minn til ykkar allra.
ég vil sérstaklega senda samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar.
- Arna Ingimundardóttir (tindastóll) | 21/01/06 00:37
|
|
Held að ég hafi bara aldrei á æfinni verið jafn lengi með gæsahúð sem ég fékk eftir að ég frétti þennan atburð.
Kæra þórey
Ég er glaður fyrir þessar fáu stundir sem við áttum saman, þó hefði ég vilja að þær hefðu verið fleirri.
Óska öllun vinum og vandamönnum Þóreyja dýpstu samúðar kveðjur
Kær Kveðja
- Baldur Þ.
- Baldur | 21/01/06 00:42
|
|
Votta fjölskyldu og aðstandendum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
- Axel Kárason | 21/01/06 00:48
|
|
Ég trúi ekki að þú hafir dáið, ég þekkti þig ekki mikið, hitti þig 2! þú varst tvíburi eins og ég og ég var ótrúlega feiminn við þig því mér fannst þú svo sæt eitthvað, ég man að ég sá þig svo aftur á unglingalandsmótinu og þú kallaðir til mín og roðnaðir þegar ég leit á þig því ég var lengi að virða þig fyrir mér.. ég man svo vel eftir þér! láttu þér líða vel og vonandi finnuru friðinn þarna einhverstaðar, mega næstu heimar gefa þér meira æfintýri en þessi gerði, sjáumst!
- Stefán Jón Ingólfsson | 21/01/06 00:52
|
|
Ég vil votta Þórir og fjölskyldu og vinum og öllum sem komu að þessari hjartahreinu og æðislegu stelpu allan minn styrk og samúð.
Megi þú hvíla í friði.
- Jón Ingi | 21/01/06 01:00
|
|
Úff .. Hvar á ég að byrja .. Ég er búin að hugsa um það núna í sólarhring hvað ég ætti að segja.. og enda alltaf á því sama .. Bara nákvæmlega það sem ég er að hugsa og hvernig mér líður..
Þegar það var hringt og mér sagt frá því að þú værir dáin þá bara var ég stjörf ..Ég vildi ekki trúa þessu .. Ég get bara ekki ímyndað mér að sjá þig ekki aftur ..
Brosið þitt og hlýlegu og fallegu augun þín.
Orð fá ekki lýst hversu yndisleg þú varst, ég þori varla að reyna að lýsa því hversu æðisleg þú varst af því það er ekki hægt að lýsa því nógu vel.
Þú varst alltaf góð og vinaleg við alla, brostir alltaf og varst alltaf hress. Þannig var Þórey.
Það er svo margt sem er minnistætt um þig í hjarta mínu.
Þegar ég byrjaði að æfa körfubolta og þú vast svo góð, vast ekkert bara að hugsa um að vinna og sendir alveg á mig þótt ég kynni ekki neitt og lést manni bara strax líða eins og einni af hópnum.
Einnig vorum við að æfa fótbolta saman eitthvað um eitt sumarið, vorum þá oft samferða hjólandi heim af æfingum innan úr firðinum.
Svo þegar við ætluðum að fara að stunda jóga saman, við fórum í nokkra tíma en það entist ekki lengi ..
En minnistæðast er auðvitað sumarið sem við vorum að vinna saman á Stekkjum og allan tíman sem ég var með Þóri. Þá kynntumst við líklegast best.
Það var eiginlega ótrúlegt hvað við gátum stundum látið dagana líða hratt og gert þá skemmtilegri með endalausu spjalli. Einnig gleymi ég seint þegar þú og Þórir elduðu uppáhaldsmatinn þinn (allavega þá) sem var tacco.
Ég man það bara eins og í gær .. Þið ætluðuð sko að sýna mér hvernig alvöru tacco væri .. Þið systkynin borðuðu endalaust af því og meira að segja gátuð þið ekki beðið eftir að klára vinnu daginn eftir til að fara heim að klára tacco-ið ykkar.
Ég gæti haldið svona áfram endalaust.. Fullt af góðum minningum.
Þú varst svo hlýr og góður persónuleiki, alltaf hægt að spjalla við þig um allt. T.d bara núna í jólafríinu þegar ég ætlaði að fara í stúdíóið að æfa og þú varst að vinna, ég fór aldrei inn, talaði bara við þig helling í staðin, aldrei hefði mér dottið í hug að það væri okkar síðasta spjall.
Ég er ekki að ná þessu .. Mér líður bara eins og næst þegar ég kem heim þá hitti ég þig bara og alltaf jafn falleg æðisleg segiru bara hress og kát: Hæ, hvernig er í rvk? .. Rétt eins og síðast .. En ég veit að það gerist ekki .. Það er engan vegin hægt að lýsa hvernig mér líður, ég er ekki bara að missa vinkonu sem ég er búin að þekkja í mörg mörg ár, heldur er líka manneskja sem mér þykir rosalega vænt um að missa svo mikið, systir sína.
Þín verður sárt saknað Þórey mín:*
Ég hef þó verið að hugga mig við það í dag að þú ert hjá fólki núna sem þykir líka svona svakalega vænt um þig eins og okkur. Ömmum þínum og öfum og bróðir mömmu þinnar sem þér langaði alltaf að hafa getað hitt og öllum öðrum þarna uppi á himnum, því þar ertu svo sannarlega. Við eigum eftir að hittast aftur! Ég trúi því af öllu hjarta elsku Þórey:*
Ég vil votta mínar dýpstu samúðarkveðjur til Þóris, Helgu Krístínar, Elmars, Söru, Rakelar, Mumma og Ellu. Einnig til systrabarna þinna sem eiga svo sannarlega eftir að fá að heyra um yndislegu fyrirmyndar frænku sína sem vildi öllum vel, þeirra Jónu Láru, Ásgeirs Þórs og Viktoríu Ýr. Og til allra annara aðstandenda.
- Guðrún Auður-
- Guðrún Auður | 21/01/06 01:10
|
|
Ég man eftir ykkur tvíburunum þegar þið voruð yngri og bjugguð á Bakkaveginum, í sömu götu og amma og afi bjuggu einu sinni í. Hvernig svo ung, hæfileikarík og falleg stúlka skuli allt í einu hafa verið kippt út úr lífinu á svona hræðilegan hátt er manni svo óskiljanlegt.
Ég votta fjölskyldu Þóreyjar,Þóri og öðrum aðstandendum mínar dýpstu samúðúðarkveðjur.
- Hildur Sigurðardóttir | 21/01/06 01:16
|
|
Þekkti þig ekki en vissi hver þú varst.
Svo falleg manneskja - svo góð sál.
Vildi ég hefði þekkt þig betur.
Hvíl í friði.
- Tómas | 21/01/06 01:17
|
|
Samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar.
það er hræðilegt að missa einhvern sem maður elska svona alltof snemma. meigir þú hvíla í friði
- Dagný Kristjánsdóttir | 21/01/06 01:28
|
|
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna!
Ég þekkti Þóreyju ekki neitt, en í svona samfélagi þar sem flestir þekkja flesta var ekki annað hægt en að taka eftir þessarri stúlku. Greinilegt að hún snerti mörg hjörtu sem nú eru skilin eftir með ósvaraðar spurningar... afhverju Þórey?
Því fær engin svarað! Þessi hjörtu, sem nú syrgja góða vinkonu, munu halda minningu Þóreyjar á lofti um ókomna tíð, því hún var einstök!
Kæra fjölskylda,
megi almættið gefa ykkur styrk til að takast á við sorgina sem fylgir því að missa elsku Þóreyju...
Mínar innilegustu samúðarkveðjur...
- Linda Björk Pétursdóttir | 21/01/06 01:33
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og ástvinum Þóreyjar samúð mína.
- Ástrún J. | 21/01/06 01:35
|
|
Eg vil votta fjöslyldu og vinum Þoreyjar minar dypstu samuðarkveðjur.
Megi Guð styrkja ykkur i sorginni.
- Tinna Hrund Hlynsdottir Hafberg | 21/01/06 01:37
|
|
Ég og við öll fjölskyldan viljum þakka ykkur fyrir þessi hlýju orð til okkar um hana Þóreyju okkar. Þórey var og er ennþá einstök sál og lifir minningin um hana í hjarta okkar.
Einnig vil ég votta vinum hennar samúð. Hún talaði mikið um vini sína og alltaf vel.Henni þótti mjög vænt um vinina og ekki síst litlu sætu stelpurnar sínar.
- Rakel Guðmundsdóttir og fjölskylda | 21/01/06 01:44
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar dýpstu samúðar.
- Jón Kristinn Guðbjartsson | 21/01/06 01:51
|
|
Calling all angels
I need you near to the ground
I miss you dearly
Can you hear me on your cloud?
All of my life
I've been waiting for someone to love
All of my life
I've been waiting for something to love
Calling all angels
I need you near to the ground
I have been kneeling
And praying to hear a sound
- | 21/01/06 02:09
|
|
Ég vil byrja á því að votta öllum ættingjum og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Ég er búinn að lesa allar færslurnar hér að ofan og tek undir allt sem þeir fyrrnefndu hafa ritað, Þórey var og er greinilega stór hluti af samfélaginu okkar og var brottfall hennar mikið reiðarslag fyrir alla, sérstaklega hennar nánustu ættingja og vini. Ég þekkti Þóreyju satt best að segja voðalega lítið, en útgeislunin frá henni var ólýsanleg. Það mesta sem ég hafði sagt við hana var hæ og bæ þegar hún afgreiddi mann í Samkaup, en svo man ég líka vel eftir því þegar hún bauðst til að skutla mér og félaga mínum til Ísafjarðar eftir að við áttum í vandræðum að redda okkur heim eftir ball út í Bolungarvík. Það fannst mér mjög fallega gert af henni þar sem við þekktum hana ekki neitt og lýsir það henni mjög vel - hún var svo góð við alla.
Ég veit ekki hvort ég þurfi að segja meira, það nægir að horfa á myndina af henni og þá veit maður af hverju Guð vildi fá hana aftur.
Vildi að ég hefði fengið að kynnast þér betur.
Hvíl í friði.
- Halldór Smárason | 21/01/06 02:16
|
|
Eigi stjörnum ofar
á ég þig að finna,
meðal bræðra minna
mín þú leitar, Guð.
Nær en blærinn, blómið,
barn á mínum armi,
ást í eigin barmi,
ertu hjá mér, Guð.
Hvar sem þrautir þjaka,
þig ég heyri biðja:
Viltu veikan styðja,
vera hjá mér þar?
Já, þinn vil ég vera,
vígja þér mitt hjarta,
láta ljós þitt bjarta
leiða, blessa mig.
- Brynja Huld | 21/01/06 02:17
|
|
Í fyrsta sinn sem ég byrjaði að æfa körfu hætti ég mánuði seinna.. en svo ári seinna þá byrjaði ég aftur og byrjaði þá að æfa með ykkur guðbjörgu og eruð þið stór ástæða fyrir því að ég hélt áfram. Þú stóðst alltaf með mér og í körfunni voru það bara ég þú og guðbjörg sem mér fannst körfuboltinn hjá mér snúast um við stóðum saman og mættum saman á allar æfingar.. byrjuðum svo að æfa með meistaraflokki og þótt það hafi ekki verið leikur einn þá stóðum við þrjár saman og komumst þannig í gegnum það! Út af því að ég var yngst þurfti ég alltaf að ganga frá boltunum eftir æfingu en þú komst og hjálpaðir mér á hverri einustu æfingu, þótt þú þyrftir þess ekki einu sinni vegna þess að þú varst ekki lengur yngsta.
Ég hitti þig nánast á hverju einasta kvöldi sem ég bjó á Ísafirði, þú mættir alltaf tímanlega og metnaður sem þú hafðir var ekki auðséður.
Þú hrósaðir öllum í hvert einasta skipti sem einhver gerði eitthvað vel og maður fann alltaf fyrir stuðning frá þér. Alltaf þegar ég hitti þig brostir þú þessu fallega englabrosi og mér leið svo vel í návist þinni.
Öll fjölskyldan þín eru stór hluti af körfuboltastarfinu á ísafirði og þið eruð svo yndisleg og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og Þóri svona vel.
Þú varst engill í dulargervi. Komst hingað og hjálpaðir okkur öllum sem þekktu þig og svo hefur guð sent eftir þér og vantað hjálp þína- þín bíður augljóslega stórt og mikið hlutverk þarna uppi..
Aftan á körfuboltabúningnum þínum stóð ‘angel’ já það var fyrsta nafnið sem okkur datt í hug fyrir þig þegar við völdum nöfnin aftan á nýju búningana okkar og það var engin tilviljun.
Þú varst vinur allra og áttir alveg ótrúlega ólíka vini því þú gafst öllum tækifæri á því að verða vinir þínir! Þú opnaðir hjarta þitt fyrir öllum
Ég trúi ekki að þú sért farin til himnaríkis og þegar ég les allar greinarnar og skoða myndir af þér þá brest ég í grát, þetta er bara of erfitt og lífið er alltof ósanngjarnt
Þegar þú fékkst sýkingu eftir að þú fórst á Reyki í 7.bekk og varst nær dauða heldur en lífi þá get ég aldrei þakkað guði nógu mikið fyrir að láta þig vera lengur með okkur því annars hefði ég aldrei kynnst þér og lífið mitt væri allt öðruvísi, ég væri allt öðruvísi! Ég veit þú munt vaka yfir mér og öllum sem þú þekkir
Eftir að ég heyrði fréttirnar gat ég ekki staðið í lappirnar, ég varð máttlaus og trúði þessi ekki!
Allt sem þú gerðir var fyrir aðra og það sannaði bara hvað þú varst mikill engill, þú átt eftir að standa þig vel þarna uppi og ég mun ætíð minnast þín!
Ég get gjörsamlega ekki hætt að skrifa um þig! En ætla að leyfa öðrum komast að hérna og veit þú ert með mér hvert sem ég fer, ég elska þig endalaust mikið og þú ert stór hluti af mér.
Við getum öll huggað okkur við þá tilhugsun um að á endanum munum við við hitta hana aftur hinum megin-
Elsku Þórir, Ella bogga, Mummi, Sara, Rakel, Helga Kristín og allir þeir sem þekktu Þóreyju ég votta ykkur mína dýpstu samúð
-Minning þín er sem ljós í lífi mínu, guð geymi þig Þórey mín
- Margrét Albertsdóttir | 21/01/06 02:26
|
|
Ég er ekki að skilja hvers vegna svona ung og falleg stúlka í blóma lífsins sé hrifsuð í burtu frá öllum sem hana elska á einu augabragði. Ég trúi Því að guð taki fyrst þá sem hann elskar mest og það sannast alveg hérna. Ég var nú ekki svo heppin að fá að kynnast henni Þórey en á svona litlum stað kannast maður við alla, og ég er ekki að trúa því að maður fái aldrei að sjá fallega brosið hennar aftur. Minnig um góða stúlku lifir í hörtum okkar allra. Ég vil votta fjölskyldu & vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúð á þessum erfiða tíma.
-Heiða-
- Heiða Dögg Guðmundsdóttir | 21/01/06 02:41
|
|
Af hverju Þórey ? Var það fyrsta sem ég hugsaði þegar að ég heyrði að þú værir fallin frá.
Við minningarathöfn KFÍ í dag áttaði ég mig á einu. Pabbi þinn sagði þig aldrei hafa talað illa um neinn, alltaf verið svo jákvæða og góð við allt og alla. Ég efast ekki um að þetta sé satt og þetta eru eiginleikar sem að ég hef sjaldan eða aldrei séð hjá einni manneskju.
Þú varst greinilega alveg einstök manneskja og þín verður sárt saknað.
Ég vil senda Þóri og fjölskyldu hans mínar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum.
- Gunnar A. Gunnarsson | 21/01/06 04:20
|
|
Ég vil byrja á því að votta öllum þeim sem næst stóðu Þórey, ættingjum og vinum mínar innilegustu og dýpstu samúðarkveðjur.
Þórey var stelpa sem flestir, ef ekki allir vissu hver var, en of fáir þekktu. Ég var því miður einn af þeim, en óska að svo hefði ekki verið eftir að hafa lesið allar færslurnar hér að ofan, því hún var greinilega nákvæmlega eins og blíða brosið hennar gaf til kynna - Ekkert nema hlýjan, væntumþykjan og vingjarnlegheitin. Það er því ekki að undra að allt bæjarfélagið eins og það leggur sig sé í lamasessi eftir missir sem slíkan. Ef ég hefði e-rntímann þurft að teikna mynd af engli, þá grunar mig að hún hefði ekki verið ólík Þórey.
Það er á svona stundum sem maður vonar að það sé til æðra afl, eitthverskonar Guð, og þá líf eftir dauðann - Því ef e-r á skilið annað tækifæri, þá er það manneskja eins og hún.
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Hvíl í friði, og blessuð sé minning þín.
- Hermann Andrason | 21/01/06 04:48
|
|
Elsku Þórey mín.
Ég er ennþá að vonast til þess að vakna af þessum hræðilega draumi. Veröldin gjörsamlega hrundi þegar Bæring bróðir sótti mig á æfingu og tjáði mér það að þú hefði dáið í bílslysi....ég gjörsamlega lamaðist. Hvernig getur Guð gert okkur þetta?....að taka svona góða og fallega stelpu frá okkur í blóma lífsins.
Ekki grunaði mig það að þegar ég sá þig um jólin að það yrði í síðasta skipti sem ég myndi hitta þig..
Ég held enn í vonina um að fá að hitta þig aftur...og ég veit að einn daginn fæ ég að gera það. Og ég veit að þú ert komin á góðan stað og hefur fengið stórt hlutverk þar.
Þú varst svo yndisleg og góð stelpa. Ég var svo heppin að fá að kynnast þér í körfunni heima á Ísafirði...alltaf svo jákvæð og góð. Ég trúi því ekki að þú sért bara farin frá okkur.
Ég mun alltaf hugsa til allra ferðanna okkar, æfinganna og allra samverustundanna. Þú varst alltaf svo jákvæð og góð. Mér hlýnar um hjartarætur bara við það að hugsa til þín, brosið þitt og allt...þetta gaf okkur svo mikið.
Ég veit það alla vega að þú munt alltaf eiga stórann hluta af hjarta mínu og ég mun alltaf hugsa til þín og ég veit að þú munt líta eftir okkur hérna niðri.
Elsku Mummi, Ella, Rakel, Sara, Helga og Þórir. Ég votta ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg.
- Sara Pálmadóttir | 21/01/06 09:16
|
|
"What we have done for ourselves alone dies with us; what we have done for others and the world remains and is immortal."
-Albert Pike
Eftir af Hafdis systir hringdi i mig med tarin i augunum og sagdi mer fra slysinu hef eg ekki getad haett ad hugsa um osanngirni lifsins, hvad tilveran i allri sinni dyrd getur verid dimm og grimm og tekid hlutina sem okkur tykir hvad vaenst um fra okkur. I Los Angeles var alveg jafn litid vit ad finna i tessum frettum og hja hverjum odrum heima a Islandi.
I ollum teim omurleika sem fylgir hraedilegu slysi sem tessu er erfitt ad hugsa um annad en tilgangsleysid, tilgangsleysi tess ad taka stelpu sem tessa i burtu tegar hun a allt lifid framundan.
Tegar eg skoda tessar rumar 220 faerslur a undan mer, fjolda teirra og innihald, fer eg ad hugsa. Torey skilur eftir sig arfleigd sem deyr aldrei, tad sem hun gaf folki og gerdi fyrir folkid i kringum sig deyr aldrei.
I stad tess ad minnast dauda hennar, er haegt ad minnast hennar a lifi og hvad hun gaf fra ser. Med brosum, hlatrum og augnablikum sem gefa lifinu tilgang.
Samudarkvedjur til KFI felagans Thorirs og fjolskyldu. Megi Gud hjalpa ykkur i gegnum tessa miklu sorg.
- Jon Gunnarsson | 21/01/06 11:00
|
|
haaaa????? sagði ég Þórey? Ég þekkti Þórey ekki mjög mikið en eitthvað má í gegnum systur mína og körfuboltann. Takk fyrir góðar stundir í lífinu ég samhryggist fjölskyldu hennar.Að missa svona góða stelpu úr lífi sínu er eins og allt sé tekið úr sambandi. Ég man eftir flugið þegar við fórum á mótið í Hafnafirði að við vorum að tala um hvort þú ætlaðir ekki að flytja til Reykjavíkur en þú sagðist ætla að flytja eftir tvö ár en svo verður ekki núna.†Ég óska fjölskyldu þinni og vinum mína alla
samúð†
Vyrðingarfyllst
Ívar Atli Sigurjónsson
- Ívar Atli | 21/01/06 11:31
|
|
Við viljum votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur.
- Rakel Helena og Doddi | 21/01/06 11:42
|
|
Þórey þín mun sárt saknað þú varst góð stelpa og þjálvari allir eru í sjokki þú varst bara 17 ára allir munu sakna þín.......Guð geimir þig þórey og vagtu yfir okkur öllum
kv.
Sigrún Gunndís
- Sigrún Gunndís Harðardóttir | 21/01/06 11:52
|
|
Ég vil Bara Votta samúð mína til fjölskyldunnar og vona að guð veiti ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Mér fanst þetta mjög skrítið og ósanngjarnt. Þekkti hana ekkert en vissi hver hun var og held að það hafi nú eiginlega allir vitað það. Annars þá var ég í gæludýrabúðinni og hún kom inn og var svo glöð og ánægð og var að kaupa mat handa fuglinum sínum Hún var svo ánægð Það skein bara brosið af henni. Svo Fór hún og eftir sirka 2-3 Tíma frétti ég bara að Þessi yndislega stelpa lést lífið í bílsysi. Mér brá ég fékk sjokk. Þótt að ég þekki hana ekkert.. En enginn á svona skilið. Og afhverju. Ahverju skeði þetta.. Svona æðisleg manneskja. Hún var allytaf í körfu. Kenndi bróður mínum körfu og var alltaf ánægð og alltaf að hjálpa öðrum en nú verð ég að hætta
Hvíl í friði Elsku Þórey. Og Votta fjölskyldu hennar og Vinum samúð mína..
- Freyja | 21/01/06 12:11
|
|
Hræðilegt reiðarslag!
Þessi stúlka var allra indælust, baráttu- og samúðarkveðjur til allra hennar aðstandenda.
- Friðlaugur Jónsson | 21/01/06 12:28
|
|
Maður skilur ekki hvernig í ósköpunum Guði datt í hug að taka þig svona unga. Þú áttir þetta alls ekki skilið og þegar ég frétti að þú værir dáin þá var það mikið áfall.
Ég þekkti þig lítið en samt sagðir þú alltaf hæ og brostir til mín þegar ég mætti þér :)
Ég mun líka alltaf muna eftir því þegar ég og Katerina ákváðum að byrja að æfa körfubolta í fyrra en vissum báðar að við hefðum ekki beinlínis mikla hæfileika... en þú hrósaðir okkur alltaf og sagðir að þetta myndi allt saman koma, og þú fékkst mann til þess að trúa því :) Þegar ég hugsa til þín núna þá sé ég brosandi andlit og finn hlýjuna streyma frá þér.
Ég vil votta Þóri og fjölskyldu mína dýpstu samúð og megi Guð veita ykkur þann styrk sem þið þarfnist í sorg ykkar †
Hvíl í friði og megi Guð geyma þig
- Anna Marzellíusardóttir | 21/01/06 12:31
|
|
Það er ósanngjarnt að svona góð og falleg stúlka sem á bjarta framtíð skuli fara frá okkur. Bjarta brosið hennar blasti við manni þegar hún afgreyddi mann í samkaup og þá strax vissi maður að hún var æðisleg stúlka.
† Ég vil votta Þóri, fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúð.
- Sunna Karen Einarsdóttir | 21/01/06 12:36
|
|
Við viljum votta fjölskyldu, aðstandendum og vinum Þóreyjar okkar dýpstu samúð.
- Rakel Helena og Doddi | 21/01/06 12:38
|
|
Það er sárt að sjá svona góða og fallega stúlku, sem átti bjarta framtím falla frá. Bros hennar fyllti hjarta margra og þó ég hafi ekki þekkt hana mikið þá fyllti bros hennar hjarta mitt þegar ég verslaði í samkaup, eða mætti henni úti á götu.
† Ég vil vottu Þóri, og fjölksyldu og vinum þóreyjar mína dýpstu samúð.
- | 21/01/06 12:40
|
|
Það er erfitt að skilja af hverju Guð tekur svona unga stelpu frá sínum nánustu. Þegar ég frétti að Þórey væri dáin var það mikið áfall.
Ég þekkti hana ekki mikið en samt brosti hún alltaf til mín og sagði hæ þegar ég mætti henni :) Það er það sem ég sé þegar ég hugsa til hennar, brosandi andlit.
Ég mun alltaf muna eftir því þegar ég og Katerina ákváðum að byrja að æfa körfubolta í fyrra, þótt við vissum reyndar báðar að við hefðum ekki beinlínis mikla hæfileika :) Þrátt fyrir það þá varst þú alltaf að hrósa okkur og hvetja okkur áfram og sagðir að þetta myndi allt saman koma....og þú fékkst mann til þess að trúa því.
Ég vil votta Þóri og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi Guð veita ykkur þann styrk sem þið þarfnist til þess að takast á við þessa miklu sorg.
Hvíl í friði Þórey †
- Anna Marzellíusardóttir | 21/01/06 12:44
|
|
Ég þekkti Þóreyju því miður ekki jafn vel og ég hefði viljað. Samt sem áður á ég minningar af henni sem að ég mun geyma eins og gull í hjarta mínu, enda var Þórey gull sem glói og mun glóa á meðan að við heiðrum minningu hennar og höldum öllum þeim minningum á lofti sem að vinir og aðstandendur eiga.
Elsku Þórir minn, ég get ekki lýst því hversu harmaslegin ég var þegar að ég fékk þessar fregnir, en hugur minn er eins og er ekki hérna hjá mér. Hann er einungis hjá þér! Hverja einustu mínútu hugsa ég til þín kæri vinur og ég sendi hlýjar hugsanir til þín stanslaust og vona að þér líði vel.
Ég votta fjölskyldu Þóreyjar, vinum, aðstandendum og öllum þeim að sem að þekktu hana mína dýpstu samúð.
Hugur minn er hjá ykkur.
- María Rut | 21/01/06 12:49
|
|
Ég þekki Þórey ekkert sérlega vel hef bara hitt hana a svona mótum.Hún var mjög góðhjörtuð maneskja ég græt þetta er svo sorglegt.Maður sér bros þitt birjar maður líka að brosa:'( en núna ertu farinn en eg mun aldrei gleima þér Þórey mín mundu að venda fjölskylduna þína og vini og ég ætla séstaglega að biðja þig að venda Jóhönnu Hrönn Helgadóttir hún er alveg í rústi yfir þessu þegar Jóhanna sagði mér inna msn að frænka mín var að deija þá brá mér rosalega:( en ef það er eivhver í veröldinni sem á þetta ekki skilið þá er það Þórey Guðmundsdóttir ég mun aldrei gleima þessu:( þú verður alltaf til ´þótt þú ert hja Guði þú ert engill:)
Ég samhrygist fjölskyldu Þóreyja vinum og séstalega Þórir:(
Hvíldu í friði elsku þórey mín
bless
- | 21/01/06 12:50
|
|
það er kannski rangt af mér að hugsa svona, en afhverju...? afhverju er það þú sem ferð en ekki t.d. ég...? 'Ég sem hef lent í svo mörgum hamförum og mörgum bílveltum að ég sé enn hér!? Þú sem hafðir allt og vildir alltaf gott af þér leiða, það er eitthvað sem ég held að ég mun aldrey skylja, því miður.
Þórey er manneskja sem að ég held að ef að allir hefðu fengið að kynnast henni væri heimurinn ekki eins og hann er nú. Hún var alltaf frísk og svo full af hamingju og lífsgleði þann tíma sem að við vorum saman, og sem að ég hefði viljað vera mykið lengur en varð úr. og ég veit að þar sem hún er núna mun hún halda áfram að hella sinni hamingju yfir heimin. Ég mun alltaf elska þig.
Ég vil votta samúð mína til Þóris og fjölskyldu hanns, og allra vina Þóreyjar.
- Guðjón Janus Guðjónsson | 21/01/06 12:54
|
|
Ég vill votta fjölskyldu og vinuum Þóreyjar Guðmundsdóttur mínar dýpstu samúðarkveðjur.
"Sá sem veitir mannkyninu fegurð er mikill velgerðarmaður þess.
Sá sem veitir því speki er meiri velgerðarmaðuur þess.
En sá sem veitir því hlátur er mestur velgerðarmaður þess."
Þórbergur Þórðarson
Megi minning Þóreyjar lifa í hjörtum okkar að eylífu á meðan hún kvílir í friði.
- Páll Janus Þórðarson | 21/01/06 12:55
|
|
Ég gleymi því aldrei þegar mér var sagt að þú værir dáin ég trúði því ekki og trúi því ekki ennþá. Maður spyr sig hver tilgangurinn sé með því að taka svona yndislega og lífsglaða stúlku í blóma lífsins frá okkur en vegir guðs eru órannsakanlegir.
Ég vil votta Mumma, Ellu, Rakel, Söru, Helgu og Þóri mína dýpstu samúð
Elsku Þórey guð geymi þig
og megir þú hvíla í friði +++
- Helga S Hjálmarsdóttir | 21/01/06 13:04
|
|
Kæra Elinborg og fjölskyla
'eg vil votta ykkur mina dypstu samúð.
Það er svo ósjangjart að hún þórey þurti að hverfa svona snögt frá okkur að maður veit ekki alveg hvernig maður á að taka því.
megi þú hvíla í friði þórey min.
- Berglind Aðalsteins. | 21/01/06 13:21
|
|
Já..Þetta er frekar ótrúlegt að svona góð manneskja skuli deyja svona ung.Ég þekkti Þóreyju ekki mikið..Maður man bara eftir hvernig hún brosti þegar að maður sá hana. Maður heyrði bara góðar sögur af Þóreyju.
Ég vil bara senda samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar, gangi ykkur vel að komast í gegnum þetta.
Hvíl í friði.
- | 21/01/06 13:22
|
|
það er kannski rangt af mér að hugsa svona, en afhverju...? afhverju er það þú sem ferð en ekki t.d. ég...? 'Ég sem hef lent í svo mörgum hamförum og mörgum bílveltum að ég sé enn hér!? Þú sem hafðir allt og vildir alltaf gott af þér leiða, það er eitthvað sem ég held að ég mun aldrey skylja, því miður.
Þórey er manneskja sem að ég held að ef að allir hefðu fengið að kynnast henni væri heimurinn ekki eins og hann er nú. Hún var alltaf frísk og svo full af hamingju og lífsgleði þann tíma sem að við vorum saman, og sem að ég hefði viljað vera mykið lengur en varð úr. og ég veit að þar sem hún er núna mun hún halda áfram að hella sinni hamingju yfir heimin. Ég mun alltaf elska þig.
Ég vil votta samúð mína til Þóris og fjölskyldu hanns, og allra vina Þóreyjar.
- Guðjón Janus Guðjónsson | 21/01/06 13:22
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina.
Megi guð vera með ykkur.
- Elísa Stefánsdóttir | 21/01/06 13:28
|
|
† Hæ. ég þekkti þessa stelpu ekki neitt en vinoknan mín, Björk þekkti hana soldið vel. ég votta allri fjölskylduni mína dýpstu samúð og Þórey, þú munt alltaf lifa í hjarta okkar og aldrei verða gleymd. Hvíldu í friði elsku þórey. (björk sigurðardóttir þýddi) †
Hvíldu í Friði <3
- † Stephanie Murphy † <3 | 21/01/06 13:39
|
|
Elsku Þórey. ég sakna þín ekkert smá mikið. ég mun aldrei gleyma brosinu þínu og hvernig þú varst alltaf hress og kát. þú varst góð í öllum íþróttum og bara í öllu. Þegar þessar sorgu fréttir komu til mín, þá bara grét ég :'( gat ekki hætt að gráta . Þú varst æðisleg manneskja og ég mun ALDREI gleyma þér elsku Þórey.
Ég vil votta Þóri, fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Björk Sigurðardóttir | 21/01/06 13:42
|
|
Við sendum fjölskyldu Þóreyjar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um góða stúlku lifir.
- Ingibjörg og Jakob, Króki 3. | 21/01/06 13:45
|
|
Ég vil votta félaga mínum honum Þóri og fjölskyldu hans mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi þig Þórey mín.
- Valur Sigurðsson | 21/01/06 13:48
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.
- Guðrún Stefánsdóttir | 21/01/06 13:54
|
|
Afhverju?? afhverju þufti hun að fara af ollum, hun var svo yndisleg og góð. ég þekkti hana ekki mikið en hun var engill og er það i dag. eg mun alltaf sakna þess að sja hana. hun var lifsglaðasta manneskja sem eg vissi um,
Ég vil óska öllum vinum og ættingjum hennar mínar dýpstu samúðaróskir. og Þórir, stattu þig.. ég veit hvernig það er að missa systkyni og hinn helminginn. Vonandi líður þér sem best Þórey. Ég mun alltaf minnast þín.
- Linda Rut Ásgeisd. | 21/01/06 14:06
|
|
Afhverju hún ? svona ung stulka í blóma lífsins sem var alltaf svo brosandi og geislandi falleg?? afhverju hún var það sem ég og örugglega MIKLU fleiri hugsuðum:(..þótt ég þekkti hana EKKERT þá hef ég bara heyrt að hún sé yndislegasta stelpan..
†Megi Þórey hvíla í friði;**†
Ég sendi fjölskyldu og öllum vinar Þóreyjar mínar bestu samúðarkveðjur;**
- Hafdís Elva | 21/01/06 14:07
|
|
Ég votta Þóri og fjólskyldu hans alla mína samúð, þetta er hræðilegur atburður sem gerðist en ég vona að þið komist í gegnum þetta og haldið ykkar striki í framtíðinni. Ég vona að Þórir haldi áfram í körfunni á fullu því hann er á greinlegri uppleið þar.
Megi Þórey hvíla í friði og votta ég öllum sem þekktu hana mína samúð.
- Árni Ragnarsson | 21/01/06 14:07
|
|
Ég þekkti hana Þóreyju ansi lítið, en ég vann með henni í samkaup, og það fór ekki á milli mála hvað þessi stelpa var hjartahrein og góð. Hún átti alls ekki skilið að deyja svona ung, og eina ástæðan fyrir dauða hennar er sú að Guð vildi fá hana tilbaka, því eins og stendur í öllum færslunum hér fyrir ofan þá var Þórey engill í dulargerfi, Það fór ekki á milli mála. Maður þurfti bara að labba framhjá henni úti á götu og sjá fallega brosið hennar, þá vissi maður að það var eitthvað sérstakt við hana:)
Í grunnskólanum á ísafirði í gær (föstudag) grétu margir, kennarar og nemendur, þó þeir þekktu þóreyju ekkert, bara að frétta af því að þessi stúlka sem átti þetta svo innilega ekki skilið, hefði látist.
Samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar.
- Katrín Þorkelsdóttir | 21/01/06 14:31
|
|
Elsku Þórey..
ég þekkti þig ekki mikið. En þú varst frábær þegar þú varst að æfa okkur í körfuboltanum.
stórt knús til fjöldskyldunar frá mér.
- Anna Þuríður Sigurðardóttir 10 ára(K.F.Í) | 21/01/06 14:36
|
|
Ég þekkti Þórey ekki mikið, en hef alla ævi vitað hver hún var og hvað hún var góð manneskja. Það er sárt að vita að maður muni ekki sjá hana oftar og maður spyr sig hvernig svona góð stelpa með alla ævina framundan gæti einhver tíman átt þetta skilið.
Mínar bestu samúðar hveðjur til fjölskyldu Þóreyjar og megi guð vera með ykkur á þessum sorgar tímum.
† Hvíldu í friði Þórey †
- Baldur Kristjánsson | 21/01/06 14:40
|
|
Ég finn hve sárt ég sakna,
hve sorgin hjartað sker.
Af sætum svefni að vakna,
en sjá þig ekki hér;
því svipur þinn á sveimi
í svefni birtist mér.
Í drauma dularheimi
ég dvaldi í nótt hjá þér.
(Káinn)
- | 21/01/06 14:47
|
|
Ég þekkti Þórey ekki mikið, en hef alla ævi vitað hver hún var og hvað hún var góð manneskja. Það er sárt að vita að maður muni ekki sjá hana oftar og maður spyr sig hvernig svona góð stelpa með alla ævina framundan gæti einhver tíman átt þetta skilið.
Mínar bestu samúðar hveðjur til fjölskyldu Þóreyjar og megi guð vera með ykkur á þessum sorgar tímum.
† Hvíldu í friði Þórey †
- Baldur Kristjánsson | 21/01/06 14:51
|
|
Ég vil byrja á því að votta öllum þeim sem næst stóðu Þórey, ættingjum og vinum mínar innilegustu og dýpstu samúðarkveðjur.
Þórey var stelpa sem flestir, ef ekki allir vissu hver var, en of fáir þekktu. Ég var því miður einn af þeim, en óska að svo hefði ekki verið eftir að hafa lesið allar færslurnar hér að ofan, því hún var greinilega nákvæmlega eins og blíða brosið hennar gaf til kynna - Ekkert nema hlýjan, væntumþykjan og vingjarnlegheitin. Það er því ekki að undra að allt bæjarfélagið eins og það leggur sig sé í lamasessi eftir missir sem slíkan. Ef ég hefði e-rntímann þurft að teikna mynd af engli, þá grunar mig að hún hefði ekki verið ólík Þórey.
Það er á svona stundum sem maður vonar að það sé til æðra afl, eitthverskonar Guð, og þá líf eftir dauðann - Því ef e-r á skilið annað tækifæri, þá er það manneskja eins og hún.
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Hvíl í friði, og blessuð sé minning þín.
- Hermann Andrason | 21/01/06 15:48
|
|
Ég votta fjölskydlu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur
- Þorkell Már Þrándarson | 21/01/06 16:07
|
|
Elsku Þórey, það er alltaf sárt að missa einhvern sem er í blóma lífsins. Og hvað þá gamlann bekkjarfélaga eins og þig.
Hægverska þín og gleði blasti alltaf við manni þegar þú varst annars vegar.
Vil ég votta fjölskyldu þinni og vinum samúð mína.
- Þröstur Þórisson | 21/01/06 16:35
|
|
Elsku Þórey!
Mikið er erfitt að sætta sig við það að þú sért tekin svona alltof ung frá okkur. Þú sem varst svo væn og góð stelpa og áttir bjarta framtíð. Það væri auðvelt að lifa í þessum heimi ef allir hefðu það hjartalag sem Guð gaf þér. Minningarnar um þig geymum við þétt við hjarta okkar. Mér er efst í huga er við komum eitt sinn vestur. Þú hefur verið um 6 ára og hafðir mikið dálæti á því að perla. Listaverkin voru orðin ansi mörg en þú varst svo gjafmild og gafst þau öll. Einnig fylgdi þetta fallega bros þegar þú gafst okkur eitt af verkunum og brosið varð feimnislegt þegar ég dáðist af því hversu fallegt þetta væri. Svo langar mig að minnast þín er ég sat á móti þér í erfisdrykkjunni hennar Ömmu þann 19 mars sl. Þarna varstu svo falleg, með þetta ómótstæðilega bros og hjartahlýja þín var einstök. Ég fór að hæla því hversu fallega perlufesti þú hefðir um hálsinn og sagðir þú, að þú bærir þessa festi Ömmu til heiðurs. Ekki þurfti að segja meira því að við vissum það báðar að Amma mætti alltaf með perlufesti ef hún var mjög fín. Þetta fannst mér lýsa þér vel. Manngæskan og virðingin sem þú sýndir öllum sem voru í kringum þig.
Guð veri með þér elsku Þórey okkar. Megi Guð styrkja fjölskyldu og vini þína til að takast á við þessa miklu sorg.
Elsku Þórir,Mummi Þór,Ella,Sara,Rakel,Helga Kristín og fjölskyldur. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
- Lína,Halldór,Ólöf,Herdís og Hallmar | 21/01/06 17:17
|
|
Þórey var eins allir seigja einstaklega góð manneskja og alltaf brosandi.
Ég votta Þórir, Guðmundi, fjölskyldu og vinum, mína dýpstu samúð.
- Óskar Ágúst Albertsson | 21/01/06 17:21
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum
- Sólveig | 21/01/06 17:24
|
|
Ég samhrygist innilega .
Það er sárt að missa ástvin . Það veit ég, það hefur gerst hjá mér.
það er sárt en þótt þú missi eithvern er hann enn hjá þér í huga og hjarta
- Hólmfríður María /nemandi | 21/01/06 17:47
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúðar og baráttu kveðjur. Það verður erfitt að ná sér eftir svona, en vitið það að Þórey vakir yfir ykkur og verður með ykkur í hjörtum ykkar.
- Atli Freyr Guðmundsson | 21/01/06 18:05
|
|
Elsku Þórey.
Ég trúi ekki enn að þú sért farin frá okkur, en ég mun alltaf minnast þín sem yndislegustu manneskju sem ég hef kynnst. Í skólanum gat maður alltaf treyst á að fá þetta fallega bros frá þér sem yljaði manni í hjartanu....þú þurtfir aldrei að segja neitt við mann því brosið þitt sagði manni allt :)
Þú varst alltaf svo góð við alla enda áttu líka marga vini sem þykir svo vænt um þig og eiga eftir að sakna þín mjög mikið. Skólinn verður ekki eins án þín. Þú varst mér sem skólasystir og vinkona þótt ég hefði viljað fá að kynnast þér miklu betur.
Ég mun aldrei gleyma deginum sem þú fórst. Við löbbuðum saman fram í anddyri því það var ekki íslenska og við báðar mjög ánægðar með það, svo stóðum við í dálítinn tíma og töluðum saman. Það síðasta sem þú sagðir við mig var, bless og brostir þessu fallega brosi til mín :) ég mun aldrei gleyma því :* og á leiðinni út hugsaði ég hversu góð manneskja þú værir sem ég væri heppinn að þekkja :)
Elsku Þórey ég vona að þér líði vel þarna uppi og gætir okkra allra sem þurfa á því að halda. Hvíldu í friði.
Ég votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð á þessum erfiða tíma.
- Sigrún Jónína Sigurðardóttir | 21/01/06 18:11
|
|
Ég þekkti hana því miður ekki mjög vel en ég vissi alltaf hver þú varst þegar það var minnst á þig. Þú varst fallega stelpan með fallega og hlýja brosið. Ég man að móðir mín sagði fyrir stuttu að ég hafði verið góður vinur þinn í leikskóla og það finnst mér gott að vita að ég hafi verið góður vinur.
Ég votta mína dýpstu samúð til fjöldskyldu Þóreyjar og megi guð vera með ykkur á þessum erfiða tíma
- Emil Ragnarsson | 21/01/06 18:14
|
|
það var erfitt að átta sig á að þetta hafi skeð. ég á ekkert nema góðar minningar um Þórey frænku, hún var góð manneskja og kvílir nú hjá guði með ömmu og afa.
- Erla | 21/01/06 18:36
|
|
ég vil votta þóri og fjölskyldu
mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Snorri Hinriksson | 21/01/06 18:40
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreeyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur
- Ingibjörg | 21/01/06 18:44
|
|
það er bara ótrúlegt að þórey dó hún var besti þjálfari í heimi og var alltaf svo góð við mig það er ekki samgaft að þórey dó það er ekki hægt að ímynda sér það.
- Málfríður Arna | 21/01/06 18:45
|
|
Ég þekkti Þóreyju ekki neitt. Sá þessa hræðilegu frétt í sjónvarpinu.
Ég vil óska vinum&vandamönnum innilegar samúðarkveðjur.
Hvíldu í friði Þórey :(
Sjöfn Ólafsdóttir
- Sjöfn Ólafsdóttir | 21/01/06 18:48
|
|
Kæra fjölskylda, vil votta ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur. Og vona að guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum sem framundan eru.
Elsku Þórey, vona að englarnir á himnum taki eins vel á móti þér og þú átt skilið.
- Arna Lind Arnórsdóttir | 21/01/06 18:49
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur
- Ingibjörg | 21/01/06 18:49
|
|
mér finnst enn eitthvað svo skrítið að hugsa til þess að hún Þórey sé farin, mér finnst eins og það hafi verið í gær sem að ég sagði henni frá því að litla systir mín ætti afmæli á miðvikudeginum var, en hún var að þjálfa hana í körfu.
ég á einnig góðar minningar úr skólanum þar sem að við töluðum oft saman í frímínútum, en ég man að ég var að sýna henni hvernig ætti að teikna anime fígúrur, og hún var svo stolt af því þegar hún var búin að teikna kall :)
við eigum öll eftir að sakna hennar
ég vil votta Þórir og fjölskyldunni hennar samúð mína
- Ragnhildur Inga Sveinsdóttir | 21/01/06 18:50
|
|
Elsku Þórey. í mínum augum varstu yndislegasta manneskja sem ég hef nokkurtíman hitt og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að þekkja þig, æfa með þér körfubolta, hangið með þér og Elisabeth og verið nærri þér því að þú gast alltaf fengið mann til að brosa. þú varst alltaf svo hlý og góð og stóst alltaf við bakið á manni. örugglega besti vinur sem hægt er að hugsa sér.
Rétt áður en mamma hringdi í mig og sagði mér þessar hörmungarfréttir var ég að segja kærastanum mínum frá því þegar við áttum að fá búninga í KFÍ (í svona sjöundasta skipti) og við vorum að velja hvað átti að standa aftan á þeim og við vorum alveg fastar á því stelpurnar að aftan á þínum ætti að standa "Angel". af því að það kom bara ekkert annað til greina, þú varst og ert engill í mínum augum og verður það alltaf og ég mun sakna þess svo að hitta ekki á þig fyrir utan stúdíóið eða þú að afgreiða mig í samkaup, hafðir alltaf eitthvað skemmtilegt að segja!
þú lifir í hjarta mínu að eilífu eins og allar minningarnar sem núna eru gylltar.
megir þú hvíla í friði og ég votta fjölskyldu þinni og öllum sem stóðu þér nær mína dýpstu samúð.
- Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir | 21/01/06 18:55
|
|
Þórey var litla frænka mín og er það mér mjög algjörlega óraunverulegt að hún sé ekki meðal okkar lengur. Þessi stelpa sem átti framtíðina fyrir sér var með hjarta úr gulli og fallegasta bros sem ég hef séð.
Þórey var svo sannarlega engill í mannsmynd.
Ég get ekki réttlátt brotthvarf hennar á annan máta en að þessi staður sé bara ekki nógu góður fyrir hana og að hennar hafi beðið eitthvað annað og betra annars staðar.
- Anna María | 21/01/06 19:00
|
|
Þóey var besti kennari í HEIMI!!!
(þótt ég var bara að æfa í smá stund)
en ég ætla að halda áfram (eða bara kannski)
þótt þórey sé ekki á staðnum!
- Laufey Lóa | 21/01/06 19:07
|
|
Sorgin er djúp í hjarta allra Ísfirðinga þessa dagana. Hversu ósanngjarnt er þegar ungt og efnilegt fólk hverfur frá okkur í blóma lífsins.
Ég vil fyrir hönd Sundfélagsins Vestra votta samúð okkar, með hlýjum hugsunum til fjölskyldu, vina og íþróttafélags Þóreyjar KFÍ.
Guð gefi ykkur allan þann styrk sem þarf á stundum sem þessum.
Sigríður Hreinsdóttir
Formaður Vestra
- Sigríður Hreinsdóttir | 21/01/06 19:09
|
|
Elsku Elínborg, Guðmundur, Rakel, Sara, Helga Kristín og Þórir. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra.
Guð blessi minningu Þóreyjar
Jóhanna Þorvarðardóttir og fjölskylda
Fanný Margrét Bjarnardóttir og fjölskylda
- Jóhanna og Fanný | 21/01/06 19:22
|
|
Elsku besta Þórey mín, ég trúi því ekki að ég sé að fara skrifa bréf til þín vegna fráfalls þíns. Það virðist svo óraunverulegt, og ég hef beðið með það í 2 daga með að skrifa hérna inn, ég hef hreinlega bara ekki fengið mig til þess ennþá. En hér er ég nú og orð mín fá engu lýst hversu mikið ég sakna þín, hversu mikið ég elska þig. Ég er svo dofin, ég er svo tóm, ég finn ekki fyrir neinu, ég finn bara tómleikann og einmanaleikann í hjarta mínu. "Stóra" frænka mín Þórey Guðmundsdóttir, horfin á braut meðal englanna og ég er ekki að fara sjá hana í bráð. Það poppar margt upp í hausinn á manni á svona stundu, þar á meðal minningarnar, æskan mín í heild sinni og unglingsárin, öll mín 17 ár úti í þessum stóra heimi. Helst man ég þó eftir því að mamma sendi mig í leikskóla í Hnífsdalnum bara til að ég gæti verið með þér og Þóri frænda, þetta voru yndislegir tímar. Á hverri helgi komu ég og mamma og einstaka sinnum Lísa systir í heimsókn til ykkar á Bakkaveginn. Og voru þá ófáir mömmó leikirnir, en þá líka playmo og fleiri góðir teknir. En oft fengum við Þóri með okkur í alls kyns vitleysu og oftast fékk hann að vera pabbinn. Gleymi aldrei hvernig herbergið ykkar leit út þá, skrítið að Dagný búi í því núna, en samt svo fallegt og örugglega gott fyrir hana að vita að Þórey frænka hafi eytt æsku sinni í því. Síðan við 5 ára aldur fór ég í leikskóla á Ísafirði til að kynnast einhverjum krökkum sem ég myndi þá vera með í 1.bekk, þá kynntist ég Guðbjörgu um leið og urðum við perluvinkonur frá fyrsta degi. Hún og við allar söknum þín svo mikið, sorgin er svo mikil en minningarnar um þig svo margar ! Ég sit hérna með mynd af þér í hendinni frá því í barnaafmæli hjá mér, á henni vorum við 12 ára og auðvitað fullt hús af krökkum eins og alltaf:) - en tárin renna bara niður og ég ræð ekki við það en ég sakna þín svo mikið. En gaman þótti mér nú þegar Hnífsdælingarnir voru sendir í skóla á Ísafirði, þá fékk ég þig og Þóri aftur til mín og mikið var ég glöð. Við spjölluðum strax saman en vináttan dofnaði en þrátt fyrir það vorum við sko alltaf vinkonur. Í unglingadeildinni urðum við aftur perluvinkonur, mér þótti svo gaman í 9 og 10 bekk, árgangurinn '88 var svo samheldinn og góð eining, máttum engan missa úr þessum stórkostlega hóp! Í menntaskólann við héldum og þar hélst hópurinn sem best saman en alltaf einhverjir sem fara í sitthvorar áttirnar, en við allar stelpurnar vorum svona, eining, vorum bara allar vinkonur. Í menntaskólanum voru mörg böllin þar sem við hittumst og dönsuðum saman og sungum hástafa, þar á meðal skrallið,1.des og 6.ágúst sem standa líklegast hæst uppúr hjá mér! Elsku Þórey mín, þetta er svo erfiður tími, svo erfiðar stundir, en mikið þótti mér fallegt að sjá hversu marga þú átt að, þú ert elskuð af svo mörgum, átt hundruði vina og og ættingja sem þú gerðir aldrei neinn greinarmun á, aldrei dæmdiru neinn eftir lífsháttum þeirra, aldrei, ekki neitt. Þú fannst alltaf eitthvað fallegt við hvern og einn og það var einn af þínum bestu kostum! Ég lít svo upp til þín, ég vildi óska þess að ég gæti verið eins og þú, ég ætla að reyna mitt besta að halda uppi minningu þinni og heiðra þig á hverjum degi í hjarta mínu. Þú ert ein bestasta vinkona sem nokkur hefur og getur átt í gegnum tíðina, og þú ert svo góð fyrirmynd fyrir litlu stelpurnar í körfuboltanum, og sem fyrir allt og alla í heiminum. Elsku Þórey mín, ég elska þig að eilífu, kæra frænka mín ég hlakka til að sjá þig síðar. Það er bara svo ofsalega erfitt að kveðja:(
Elsku Þórir minn langbesti félagi, Elenborg, Guðmundur, Sara, Rakel, Helga, ástvinir og fjölskylda allt í kring, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð og megi guð vera hjá ykkur á þessu erfiðu stundum, þið eruð efst í huga mínum.
Með kærri kveðju frá frænku þinni og vinkonu
Vala Karen Viðarsdóttir
- Vala Karen Viðarsdóttir | 21/01/06 19:39
|
|
Look at the stars,
Look how they shine for you,
And everything you do,
Yeah they were all yellow,
I came along
I wrote a song for you
And all the things you do
And it was called yellow
So then I took my turn
Oh all the things I've done
And it was all yellow
Your skin
Oh yeah your skin and bones
Turn into something beautiful
D'you know you know I love you so
You know I love you so
I swam across
I jumped across for you
Oh all the things you do
Cause you were all yellow
I drew a line
I drew a line for you
Oh what a thing to do
And it was all yellow
Your skin
Oh yeah your skin and bones
Turn into something beautiful
D'you know for you i bleed myself dry
For you i bleed myself dry
Its true look how they shine for you
look how they shine for you
look how they shine for you
look how they shine for you
look how they shine for you
look how they shine
look at the stars look how they shine for you
Þegar ég heyri þetta lag þá sé ég brosið þitt, þegar þú varst að afgreiða fólk í samkaup..
Guð blessi þig og fjölskyldu þína†
- | 21/01/06 19:40
|
|
Elsku fjölskylda. Mínar dýpstu samúðarkveðjur vegna fráfalls ykkar yndislegu dóttur Þóreyju. Megi englar guðs vaka yfir ykkur og færa ykkur styrk á erfiðum tíma.
Gabríela Aðalbjörnsdóttir og fjölskylda
- Gabríela Aðalbjörnsdóttir | 21/01/06 19:43
|
|
Ekki þekkti ég Þóreyju vel, en veit samt hversu yndisleg þessi stúlka var.
Ég votta fjölskyldu hennar og vinum allar mínar samúðarkveðjur.
Megir þú hvíla í friði †
- Ólafía Kristjánsdóttir | 21/01/06 19:44
|
|
Ég vill votta Fjölskyldu og vinum samúð
†Hvíldu í friði†
- Jón Kristinn | 21/01/06 19:47
|
|
Við vottum fjölskyldu og vinum samúð okkar.
Blessuð sé minnig Þóreyjar og megi hún hvíla í friði†
- Elsa, Erla og Lilja | 21/01/06 19:50
|
|
Ég vil votta mína dýpstu samúðarkveðju til allra sem þekktu Þórey. Ég þekki hana reyndar ekki, en mig langaði bara að segja ykkur sem þekktuð hana að ég samhryggist rosalega. Ég hlakka ekki til þegar kemur að mínum tíma að missa eitthvern svona nákominn mér og vona ég að það eigi aldrei eftir að koma fyrir. Megi þú hvíla í friði Þórey :)
- Emma | 21/01/06 19:53
|
|
Elsku Þórey mín, þú sem varst alltaf svo brosmild og góð. Það er skrítið að hugsa til þess að fá aldrei að sjá brosið þitt, og finna ekki fyrir hlýjunni sem þú sendir frá þér aftur. Þú varst svo sannarlega engill, engill í dulargervi. Þú varst yndisleg manneskja, manneskja sem allir hefðu átt að þekkja. Þú tókst öllum svo vel, enda áttiru stóran og breiðan vinahóp. Ég tel mig vera heppna að hafa fengið að kynnast þér. Þú munt ávallt vera ofarlega í huga mér og mér mun alltaf þykja vænt um þig.
Elsku Þórir og fjölskylda, ég votta ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Hvíldu í friði, Þórey mín.
- Birna Hlín Hilmarsdóttir | 21/01/06 19:57
|
|
Við þekktum Þóreyju ekki vel,en miðað við allar sögurnar þá vitum við að hún var hjartahlý stelpa,góð,hjálpsöm og algjör engill og núna finnst okkur eins og við hefðum þekkt hana eitthvað,en því miður fengum við ekki tækifæri á því að kynnast henni.
Við viljum votta Þóri og fjölskyldu okkar dýpstu samúðar kveðjur
Megi Þórey hvíla í friði.
- Aldís og Maja | 21/01/06 20:00
|
|
Ég þekkti Þóreyju ekkert en ég vil votta ættingjum og vinum hennar dýpstu samúð mína. Ég lenti í því að missa góðan vin í bílslysi fyrir nokkrum árum sem dó líka á átjánda ári þannig að ég skil vel hvað þið eruð að ganga í gegnum.
- Páll Ásgrímur Jónsson | 21/01/06 20:08
|
|
Elsku Þórey frænka mín, þetta er svo ósanngjarnt, þú sem áttir allt lífið framundan. En það er sagt að þeir sem fara snemma, hafa það betra hinum megin, og að guð þarfnist þeirra:) Honum vantaði þessa brosandi jákvæðu stelpu. Þórey var þessi frænka mín sem maður leit upp til, vegna hún var alltaf bjartsýn, jákvæð, brosandi, talaði aldrei illa um neinn, hún var, já svona bara engill í "dulagervi"
Ég vil votta Ellu, Gumma, Söru, Rakeli, Helgu Kristínu og Þóri samúð mína
Ég hugsa til ykkar
megi þú hvíla í friði.
- Esther Judith og fjölsk. | 21/01/06 20:19
|
|
Votta fjölskyldu og aðstandendum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
- Arnar Ingi Ingvarsson | 21/01/06 20:35
|
|
Þeir deyja ungir sem guðinir elska,það er sárt að hugsa til þess að svona góð og falleg stelpa sé farin.Þitt bros mun lifa í minningu allra um ókomna tíð.
Við viljum votta fjölskyldu Þóreyjar hinar dýpstu samhúðarkveðjur megi guð vera með ykkur.
Megi þú hvíla í friði elsku Þórey.
- Marta Páls og Elín Hólm | 21/01/06 20:41
|
|
Oh, hvað það er erfitt að setjast niður og skrifa þessi orð.....
Þórey mín, ég get bara ekki ímyndað mér að þetta sé satt. Ég skil bara ekki að svona hlutir skuli gerast. Ég veit ekki hvað ég get sagt.
Þú varst svo yndisleg stelpa. Aldei hef ég hitt manneskju sem var jafn lífsglöð, jákvæð og frábær og þú. Þú varst svo róleg og tókst öllu sem kom upp í hendur þér með jafnaðargeði.
Það fyrsta sem kemur upp í huga mér þegar ég hugsa um þig er brosið þitt. Þú hafðir svo fallegt og einstakt bros. Ég man að í hvert skipti sem þú brostir, og það var oft, þá gat ég ekki annað en starað á brosið. Það var svo fallegt og heillandi.
Elsku Þórey mín, þú munt lifa í hjörtum og huga þeirra sem þú snertir. Þín verður sárt saknað en þú munt aldrei gleymast.
Fjölskyldu Þóreyjar og vinum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.
I´ll be seeing you
In every lovely summer´s day;
In every thing that´s light and gay.
I´ll always think of you that way.
(Billie Holiday)
- Bryndís Guðmundsdóttir | 21/01/06 21:21
|
|
Kæra fjölskylda ég vil votta ykkur sem og vinum Þóreyjar samúðarkveðju mína. Ég kynntist Þóreyju í gegnum körfuboltann, yndisleg manneskja sem auðvelt var að kynnast þrátt..
- Katrín Sveina, Tindastól | 21/01/06 21:32
|
|
Ég trúi ekki að svona lagað geti gerst!!! Ef svona góð manneskja einsog Þórey deyr, þá spyr maður sig hvað hef ég gert til að eiga skilið að lifa??? Það sem ég veit er að Þórey átti það svo sannarlega ekki skilið. Hún var alltaf góð við alla og vildi engum illt. Ég var að æfa með henni körfubolta í smá tíma og fékk að kynnast henni smá og ég þakka Guði fyrir það. Þórey var yndisleg manneskja og ég á eftir að sakna hennar mikið eins og svo margir aðrir. Ég vil votta fjölskyldu hennar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
- Ástey | 21/01/06 21:42
|
|
Elsku Þórey mín ég trúi því varla að þú sért farin það var svo notalegt þegar þú komst í dyrnar til mín með þitt blíða bros og hafðir alltaf tíma til að stoppa og spjalla við mig. Ég trúi því að það verði tekið vel á móti þér elsku vinan mín. Guð styrki foreldra þína og syskyni í þessum sára missi. Þín frænka Bogga.
- Ósk Sigurborg Kristjánsdótti | 21/01/06 21:44
|
|
Elsku Þórey.. Afhverju þú? þegar stórt er spurt er lítið um svör, eins og akkurat í þessu tilviki! Þú sem ert fallegasta persóna sem ég hef kynnst svo góð og glaðvær og alltaf með opna arma tilbúin að hjálpa öllum. Það eru orð með sönnu "Þeir deyja ungir sem guðirnir elska" og hann hefur greinilega þurft á fallegasta englinum sínum að halda. Ég kveð þig með sorg í hjarta en hugga mig við allar góðu stundirnar sem ég átti með þér. Hvíl í friði engillinn minn. Ég mun alltaf geyma þig og fallega brosið þitt í hjartanu mínu!! Elsku Þórir og fjölskylda ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum!
- Eva María | 21/01/06 21:55
|
|
Elsku Þórey mín ég trúi því varla að þú sért farin það var svo notalegt þegar þú komst í dyrnar til mín með þitt blíða bros og hafðir alltaf tíma til að stoppa og spjalla við mig. Ég trúi því að það verði tekið vel á móti þér elsku vinan mín. Guð styrki foreldra þína og syskyni í þessum sára missi. Þín frænka Bogga.
- Ósk Sigurborg Kristjánsdótti | 21/01/06 22:03
|
|
Elsku Þórey, það er sárt að vita að þú sért farin frá þér. Þú komst stundum og þjálfaðir okkur fyrir Þórir bróður þinn. Þannig þekkti ég þig, í gegnum KFÍ. Þú hjálpaðir Þórir líka þegar við fórum á mót og varst með okkur. Ég gleymi því aldrei, þú varst alltaf brosandi þá. Á því móti gafstu mér pening, það sýnir bara hvað þú varst góðhjörtuð.
Þú kenndir mér líka í körfuboltanum að þegar ég tek víti þá á ég alltaf að standa einu skrefi aftar en línan því þá getur maður hoppað. Ég mun alltaf muna þetta og hugsa til þín þegar ég tek víti.
Elsku Þórey megi englarnir vaka yfir þér og geyma þig vel þarna uppi.
Elsku Þórir ég votta þér mína dýpstu samúð og fjölskyldu þinni.
- Ívar Þór Ottósson | 21/01/06 22:17
|
|
Mamma hún Þórey er dáin er það fyrsta sem ég heyrði um slysið en fyrstu fréttir á vefblöðunum var á þá leið að um alvarlegt slys hafi orðið og vonin varð yfirsterkari. Raunin varð önnur og sorg heltók alla íbúa þessa bæjar. það var ekkert skrítið því flestir þekkja einhverja úr þesari yndislegu fjölskyldu. Flestir hafa einhvern tímann átt samskipti við þessa fallegu og brosmildu stúlku yfir kassann í Samkaup, eða fylgst með henni sem leikmanni eða þjálfara í KFÍ.
Mínar minningar um þórey ná held ég allt til hennar bernsku, man eftir því þegar Ella sagði mér að það væri von á tvíburum, man eftir tvíburunum litlum og ekki síst þar sem Kristjana var jafnaldi þeirra og leikfélagi, bæði á leikskólanum og einnig þar fyrir utan. Ég minnist Þóreyjar fyrir hægversku hennar, hlýju, fallega brosinu, þrautseigju hennar og góðmennsku. Ég man eftir körfuboltamótunum hér heima og heiman þar sem hún sýndi og sannaði að hún var ekki bara frábær leikmaður heldur einnig frábær félagi. Stundum varð hún næstum ósýnileg svo hæglát og hæversk var hún en kom svo með einhvern gullmolann, einhverja brellu eða skoraði flotta körfu. Ég man eftir henni á landsmótinu í Stykkishólmi þar sem hún átti svo frábæra leiki. Hvar sem hún var hvort sem það var á sjúkrahúsinu sl sumar, Samkaup,Stúdíóinu eða bara með stelpunum þá lýsti hún upp tilveruna með fallega brosinu og spjallinu.
Elsku Ella, Mummi, Þórir, Sara, Rakel, Helga Kristín og systkynabörn Ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð og megi guð almáttugur veita ykkur styrk.
Elsku Þórey mín þakka þér fyrir góð kynni og megi þú hvíla í friði.
- Halldóra Karlsdóttir | 21/01/06 22:30
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð. Hvíldu í friði Þórey
- Lilja Björk | 21/01/06 22:40
|
|
hun þorey var yndisleg stelpa þó eg þekkti hana ekki mikið hun passaði litlu systir mína alltaf og ég vil votta fjölskyldu hennar og vinum samúð mína
- siggi | 21/01/06 22:52
|
|
Ég næ þessu bara ekki ennþá. Þegar eg fekk frettirnar fyrst, starði eg bara fram fyrir mig og vonaði svo mikið einhver væri að koma að klípa mig eða mamma að koma að segja mer að eg hefði 2 minutur til að hafa mig til fyrir skolan. En það hefur ekki gerst ennþa. eg var bara nýbuin að kynnast elsku þórey þegar þetta hræðilega slys atti ser staðar. En eg gæti ekki verið meira þakklátari að hafa kynnst þer þvi þú varst svo brosmild og jákvæð. Alltaf þegar þu komst að versla i samkaup hja mer og sagði mer fra hvað þu attir svakalega úturpakkaðn dag fyrir höndum varstu svo róleg yfir þvi og sagðir þetta bara brosandi og tókst að líta að björtu hliðina við þetta allt saman. Eg man þegar eg var að vinna með þer eina kvöldvaktina i samkaup fyrsta sinn sem eg var að vinna með þegar eg var frekar feimin fyrst en svo komstu bara til min að tala og stoppaðir ekki.=) eg vildi oska svo sart að þu værir ennþa talandi við mig. Þegar eg las þessar um 290 minningargreinar táraðist eg bara endalaust og er ennþa að þegar eg skrifa þessi orð hér. Eg se þig ennþa fyrir mer þegar eg sa þig seinast a þriðjudaginn i svörtu ulpunni þinni bara að kaupa einn lítinn banana sem við gerðum báðar grín af hvað þu hlytir að vera osakplega svöng.=) Eg vildi oska lika að eg hefði fengið að kynnast þer miklu betur. Mer finnst þetta ennþa svo oraunverulegt eg vona alltaf að a morgun eigi eg eftir að sja þig labba inni hamraborg eða samkaup eða bara einhver staðar i bænum með bros a vör =). En því miður verður svo ekki. ég vil svo bara taka undir allt það fallega sem að fólk hefur skrifað her að ofan. Þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra aður en þig og þu varst svo sannarlega vinur vina þinni sem að sast bara a brosinu einu og varst meira en tilbuin til að eignast fleiri vini. Þú varst ein su duglegasta manneskja sem eg hef nokkurn timan kynnst og munt verða ein af minum fjölmörgu fyrirmyndum. Þú fórst alltof fljótt frá okkur en ert nuna a betri stað.
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu Þóreyjar, vina og kunningja.
Blessuð sé minning þín og guð geymi þig að eilífu †
Elísabet Ósk
- Elísabet Ósk Ólafsdóttir | 21/01/06 22:57
|
|
Viljum votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Megi þú hvíla í friði.
- Inga og Sandra | 21/01/06 23:10
|
|
Kæra fjölskylda, ég lít á það sem forréttindi að fá að hafa fengið að þekkja Þórey.
Elsku Ella, Mummi Þór, Rakel, Sara, Helga, Þórir og fjölskylda, ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur og vona að Guð styrki ykkur í sorg ykkar.
- Elín Ólafsdóttir | 21/01/06 23:50
|
|
Samhryggist innilega
- Bergrós | 22/01/06 00:07
|
|
Það er fulloft sem maður er minntur á hve hamingjan getur verið fallvölt og örlögin grimm. Þetta er ein af þeim stundum. Það var sem allur kraftur væri úr manni dreginn þegar maður fékk þessar hræðilegu fréttir á fimmtudaginn.
Ég kynntist Þóreyju bæði sem kennari við grunnskólann og einnig í starfi mínu hjá KFÍ. Þórey var ekki alltaf sú háværasta en hennar fallega nærvera sagði meira en mörg orð. Hún var ein af þessum manneskjum sem einungis þurfti að líta á til að skynja að þar fór góð sál.
Kæri Þórir, það eru þungar byrðar sem lagðar eru á þínar herðar svo snemma á lífsleiðinni en ég veit af mínum kynnum af þér að þú kemur til með að axla þær og halda ótrauður áfram. Fetaðu sterkur áfram lífsins veg í þeirri vissu að "hinn helmingurinn" þinn fylgir þér eftir hvert fótspor brosandi, vakir yfir þér og gætir þín alltaf.
Guðmundur, Ella, Sara, Rakel, Helga og Þórir, við vottum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hrafn, Maríanna og Mikael Máni
- Hrafn Kristjánsson | 22/01/06 00:11
|
|
Það er á stundum sem þessari sem maður gerir sér grein fyrir hversu hverfult lífið getur verið. Margar spurningar vakna en fátt verður um svör. Kannski áttar maður sig á því að ekki skuli taka tilveruna sem jafn sjálfsögðum hlut og raun ber vitni.
Við höfum þekkt Þóreyju og fjölskyldu hennar í nokkur ár og þá einkum í gegnum körfuboltann. Það hefur stundum verið sagt að skapgerð foreldra endurspeglist í börnum þeirra og það á svo sannarlega við í tilviki Þóreyjar. Hún var jákvæðnin uppmáluð, geðgóð, brosmild og ávallt reiðubúin til að aðstoða þegar á þurfti að halda. Oftar en ekki voru það óskemmtileg störf innan KFÍ sem hún tók að sér, en hún taldi það ekki eftir sér. Við gætum í raun sagt nákvæmlega það sama um hinn helminginn hennar, hann Þóri en þar er sami ljúflingur á ferð.
Hvað körfuboltann varðaði, þá var Þórey afar metnaðarfull og oftar en ekki driffjöðurin í því að hvetja aðrar stelpur til að koma á æfingar hvort sem var í unglingaflokki eða meistaraflokki. Eins og sjá má á skrifum hér að ofan þá hefur hún líka sem þjálfari greinilega náð til margra yngri iðkenda en það er ekki á færi hvers sem er.
Elsku Mummi, Elínborg, Sara, Rakel, Helga, Þórir, aðrir aðstandendur og vinir.
Hugur okkar er hjá ykkur og óskum við þess innilega að samheldni ykkar geri ykkur kleift að vinna úr sorginni.
Minningin um yndislega stúlku lifir í hjörtum okkar.
Baldur Ingi, Helga Salóme og strákarnir.
- Baldur og Helga | 22/01/06 01:27
|
|
Afhverju þarf lífið að vera svona ósanngjarnt? Afhverju er svona góð, heiðarleg og yndæl vinkona og félagi tekin frá okkur? þú sem gerðir engum mein, þú vildir aðeins það besta fyrir alla. Ég get bara ekki trúað þessu, að þú sért farin frá okkur. Þegar ég hugsa um þig kemur alltaf upp sú mynd af fyrirmyndar stelpu sem smitaði frá sér með gleði, hlýju,dugnað og heiðarleika. Persónuleiki þinn var engum líkur. Þú varst og ert með þann persónuleika sem ég lít upp til og vill hafa þrátt fyrir að ég sé tvem árum eldri. Betri fyrirmynd getur maður ekki fundið sér.
Elsku Guðmundur, Ella, Sara, Rakel, Helga, Þórir og aðrir ættingjar, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi Guð hjálpa ykkur að komast í gegnum þessa þungu sorg.
- Gunnar Ingi Elvarsson | 22/01/06 01:31
|
|
Elsku Þórey.
Það er synd að þú skildir hafa þurft að yfirgefa okkur svona snemma, ég vildi óska að heimurinn væri ekki svona ósangjarn en svona er hann víst!
ég vill vota fjölskyldu Þóreyjarn, hennar vinum og ættingjum, mína dýpstu samúðar kveðju.
En ég vill benda ykkur á sálm í biblíunni sem hljóðar svona
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. (sálm. 23:1)
Þessi sálmur hjálpaði mér mikið, Ég vona að hann getti hjálpað ykkur jafn mikið ef ekki meira.
- Ásgeir Hólm Sævarsson | 22/01/06 01:51
|
|
Ég þekkti Þóreyju lítið en var aðeins farinn að kynnast henni. Maður sá strax hversu indæl og góð hún var! Og að hún skuli vera tekin í burtu svona er bara svo ótrúlegt... maður vill ekki trúa þessu.
Ég vill senda Guðmundi, Ellu, Söru, Rakeli, Helgu og Þóri mínar dýpstu samúðarkveðjur!
- Guðmundur Geir Einarsson | 22/01/06 02:23
|
|
Af hverju ? Af hvejru hún ? Af hverju svona ? Þegar stórt er spurt er lítið um svör, en sagt er að þeir deyji ungir sem guðirnir elska og það hlýtur að vera svarið fyrir okkur.
Ég var svo heppin að fá að kynnast Þórey ágætlega, ég veit ekki hvað mörg fimmtudagskvöld í haust þegar við gláptum á Bachelor í stúdíóinu og ræddum þau mál og einnig bara um alla heima og geima. Það var alltaf svo gott að tala við Þórey, hún var einstök og verður sárt saknað af öllum sem hana þekktu.
Elsku Þórir, fjölskylda & vinir, ég votta ykkur mína dúpstu samúð og meigi guð hjálpa ykkur og styrkja á erfiðisstundum sem þessari.
Minning um frábæra stelpu mun lifa í hjörtum okkar allra um ókomna tíð.
Hvíl í fryði elsku Þórey
- Arna María Hálfdánardóttir | 22/01/06 05:09
|
|
Tears in Heaven
Would you know my name
if I saw you in heaven
Would it be the same
if I saw you in heaven
I must be strong
they'll carry on
cause I know I don't belong
here in heaven
Would you hold my hand
if I saw you in heaven
Would you help me stand
if I saw you in heaven
I'll find my way
through night and day
cause I know I just can't stay
here in heaven
Time can bring you down
Time can bend your knees
Time can break your heart
Have you begging "please"
(begging "please")
Beyond the door
there's peace I'm sure
and I know there'll be no more
tears in heaven
Would you know my name
if I saw you in heaven
Would you be the same
if I saw you in heaven
I must be strong
and carry on
cause I know I don't belong
here in heaven
(Eric Clapton)
- Ísafjörður | 22/01/06 05:33
|
|
hvernig bara gat þetta gerst það bara lætur mig fara að gráta ef ég keyri fram hjá staðnum.
hvíldu í friði elsku þórey
- | 22/01/06 09:51
|
|
Ég ætla að byrja á því að senda mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda Þóreyjar.
Ég var svo heppin að fá að kynnast Þóreyju, ég þjálfaði hana fyrstu árin sín í körfuboltanum og minnist hennar með sárum söknuði.
Hún var alltaf mætt á réttum tíma, tilbúin í að leggja sig alla fram en þó alltaf róleg og yfirveguð. Það var yndislegt að leiða þennan hóp svo til fyrstu skrefin í körfuboltanum. Ég fylgdist með ykkur þroskast sem leikmenn og svo sem ungar fallegar stelpur sem deildu hugsunum sínum um stráka og annað skemmtilegt. Ég minnist þess þegar við vorum að vakna í keppnisferðunum og Þórey var alltaf svo mygluð þegar hún vaknaði og við hlógum saman að því hvernig hárið hennar stóð út í loftið. Hún hló náttúrulega líka og dreif sig á fætur.
Elsku stelpurnar mínar það skrítið að hugsa til þess að Þórey sé ekki lengur hluti af þessum öfluga hópi. Missir okkar allra er svo sannarlega mikill og við grátum.
- Tinna Björk Sigmundsdóttir | 22/01/06 10:07
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Minningin um góða stelpu mun lifa.
- Sigríður Guðjónsdóttir | 22/01/06 11:37
|
|
Elsku Helga Kristín,Sara,Rakel,Þórir,Mummi og Ella Bogga. Hugsa til ykkar.
Engir dagar koma aftur
en fegurð þeirra lifir hjá þér
eins og ljós í rökkri
eins og blóm á fjalli.
Þórarinn Guðmundsson.
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra.
Ragnh.Ása
- Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir | 22/01/06 11:46
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Þórey þín verður sárt saknað.
- Kristján Þór | 22/01/06 12:59
|
|
Það er mjög erfitt að sætta sig við hluti sem þessa, erfitt að missa góða stelpu sem aldrei gerði neinum neitt. Skapaði aldrei vandræði og var alltaf brosandi og öllum fannst gott að umgangast. Guð blessi fjölskyldu Þóreyjar og vini hennar.
Ég vil votta ykkur öllum mína dýpstu samúð.
- Patrycja Wittstock | 22/01/06 13:09
|
|
Vil votta öllum aðstandendum þessarar yndislegu stúlku sem fór alltof fljótt frá okkur hinum mínar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur.
Megið þið finna styrk til að sigrast á sorginni.
- Þór Sveinsson | 22/01/06 14:11
|
|
Ég votta ykkur samúð mína því ég veit hvernig er að missa einhvern nákominn... og það er ekki auðvelt... Ég hitti Þórey um daginn í sjoppu í garðabænum af öllum stöðum og heislaði uppá hana... en ég er ekki að fatta þetta... þessi efnilega umhyggjusama stúlka... ég kemst ekki yfir þetta.. þegar ég frétti af þessu fékk ég sting í hjartað því að svona mikill engill ætti ekki að þurfa að fara svona frá okkur... :( hinstu samúð frá Garðabænum... :(
- Bjarki Bárðarson | 22/01/06 14:20
|
|
ég þekki Þórey ekki mikkið en en ég mann þegar Þóreykom heim fyst með Birgittu Roz og hvað hún Bosti mikkið hún Þórey var indisleg maneskja í heimi ég votta Samúð mína til allra vina og Fjólskildu Þóreyjar
- Díana Ösp | 22/01/06 14:25
|
|
Ég votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð veiti ykkur styrk á þessum erfiða tíma.
- Anna Lára | 22/01/06 14:35
|
|
Ég þekkti Þórey ekki mikið, en það tók minna en sekúndu að átta sig á hve mikilvæg og ótrúlega góð manneskja hún er þegar litið var á alla í kring um sig.
Söknuður
sál mína kvelur
minn kæri vinur
þú ei lengur hér
á jörðu dvelur
þinni lífsgöngu
ei ætlað var
lengri veg
sárt er því að taka
vildi að þú værir
ennþá hér
Nú þú leið þína
hefur lagt
yfir móðuna miklu
með vissu ég veit
þar þú mætt hefur
móttökum góðum
þar hlýtur nú að vera
glatt á hjalla
þannig ávalt það var
er þú mættir með
brosið þitt bjarta
Þú einstaka sál
hafðir að geyma
þér ég aldrei
mun gleyma
minningin um þig er
björt og mikil
hér á jörðu niðri
hún áfram lifir
í hjarta mínu
þinn stað þú ætíð
munt eiga
Jónína Sesselja Gísladóttir
1969-
Megir þú hvíla í friði. Dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar.
- Bára | 22/01/06 14:48
|
|
þetta er svo sorglegt að svona góð stelpa sé bara farin ég þekkkti hana ekki enn ég hafði bara stundum hitt hana og hún avr alltaf brosandi.. bara yndisleg enn við viljum bara votta fjölskyldu Þóreyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur og meigiði vera sterk í gengnum þetta Guð geymi ykkur
- Linda Hilmirs og | 22/01/06 15:04
|
|
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð.
- Ína Kristín | 22/01/06 15:08
|
|
Ég þekkti Þórey voða lítið, man sammt soldið eftir henni.Ég vil votta fjölskyldu og vinum mína dýpstu samúðarkveðju. Guð og englarnir geymi ykkur öll.
Kv.Lydía Björk
- Lydía Björk Guðmundsdóttir | 22/01/06 15:17
|
|
Það er sárt til þess að hugsa að svona skemmtileg og frábær stelpa eins og Þórey sé farin frá okkur. Hún var alltaf til í að hjálpa manni, mér er nú hugsa til þess þegar Sara systir hennar passaði Marín Birtu fyrir mig meðan ég var að vinna næturvakt og Sara þurfti að skreppa aðeins frá var ekkert eins sjálfsagt hjá Þórey að passa hana á meðan.......svona var hún, allt svo sjálfsagt og frábært.
Það sem maður sá þegar Þórey mætti á æfingu var alltaf bros og hlýja. Hún var svo dugleg og til í að hjálpa öllum.
Með söknuði kveðjum við þig Þórey mín.
Kveðja Helga Sif og Marín Birta.
- | 22/01/06 15:35
|
|
Ég á mjög erfitt með að átta mig á þessu og get bara ekki hætt að hugsa um þetta, þetta er svo óréttlátt.
Ég þekkti þig þegar við vorum yngri þú bjóst fyrir ofan ömmu (Gerðu) í Hnífsdal, ég sá þig á hverjum degi labba í gegnum garðinn hennar ömmu á leið heim þegar ég var hjá henni á sumrin, vorum oft saman í leikjum og ýmislegt með krökkunum í dalnum. Vildi að maður gæti spólað til baka og breytt því sem á ekki að gerast, en svo er víst ekki, ég gelymi þér aldrei.
Ég votta fjölskyldu þinni og öllum sem hafa hlotist sú forréttindi að hafa kynnst þér samúð mína og megir þú hvíla í friði.
Samúðarkveðja Gerður jóhannesdóttir
- Gerður Jóhannesdóttir | 22/01/06 15:41
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Ég þekkti Þórey ekki mikið en þekkti þó. Ég þjálfaði hana einstaka sinnum og hafði gaman að. Þegar ég heyrði fréttirnar féllu nokkur tár, af því mér finnst það svo ósanngjarnt, ekki bara að svona ung manneskja skuli þurfa að hverfa, heldur svona yndisleg líka.
Það sást á henni langa leið hvað hún var góð í sér.
Mágkona mín kenndi henni og sagði að það væri mikil eftirsjá meðal kennaranna eins og hjá öllum sem eitthvað þekktu hana. Við spiluðum með sorgarbönd í gær til minningar um þig. Það hefði verið mun skemmtilegra að spila á móti þér og gömlu félögunum mínum en það er víst ekki hægt að ráða neinu um það.
Þið litlu englar sem Þórey var að þjálfa haldið endilega áfram að æfa og spilið af stolti og ánægju fyrir hana því hún mun áfram fylgjast með ykkur.
- Fjóla Þór AK. | 22/01/06 15:47
|
|
Elsku Helga Kristin,Sara,Rakel,Þorir,Guðmundur og Elinborg
Sendum ykkur okkar dypstu samuðarkveðjur megi guð vera með ykkur a þessum erfuðu timum
Johanna Þorðardottir ,Bjarni Viggosson og synir.
- johanna | 22/01/06 16:08
|
|
Vil ég votta fjölskyldu, ættingjum og vinum Þóreyjar mína dýpstu samúð. Megi ljós og birta minningana fylla hjörtu ykkar á efiðum timum.
Guð geymi þig
- Helga Sigriður Úlfardóttir | 22/01/06 16:28
|
|
Kæra frænka, ég reyndi margoft að byrja að skrifa hérna hvernig mér leið við það að heyra að þú hefðir látið lífið í hræðilegu slysi, en ég er bara þannig búinn til að ég á mun auðveldara að tjá mig með töluðum orðum en skirfuðum, svo þú verður bara að hlusta á mig þegar ég byð bænir fyrir þér. :) Það var sárt að frétta að þú hefir farið svona snögglega og á jafn hræðilegan hátt, en ég veit að þangað sem þú ert komin núna, er allt miklu betra.
Öll mín samúð hvílir með fjölskyldu þinni og allar mínar bænir beinast að þeim.
Guð varðveiti þig og blessi. Guð vaki yfir fjölskyldu þinni og verndi hana.
- Óskar Pétur Sævarsson | 22/01/06 16:50
|
|
Það er svo sárt að hugsa til þess að Guð geti tekið manneskju frá okkur svo fyrirvara laust. Skilið svona marga eftir með óteljandi spurningar í hausnum og í svo mikilli sorg. En þegar fólk stendur saman, huggar hvort annað og styður þá verður þetta óneitanlega ofurlítið auðveldara því það er alltaf gott að eiga góða að. Margir voru svo heppnir að hafa átt Þórey að og hún er og verður áfram með þeim:* Það er gott að vita að engill eins og Þórey vaki yfir öllum. Enginn er betri en hún.
Maður þurfti ekki að hafa þekkt þig lengi elsku Þórey til að sjá hvernig manneskja þú varst. Alltaf svo rosalega góðhjörtuð og vildir öllum vel, jákvæðnin og brosmildin í fyrirrúmi. Það var alltaf gaman að hitta þig og eitt bros frá þér hlýjaði manni virkilega um hjartarætur. Þú varst svo yndisleg elsku Þórey.
Minning þín mun lifa í hjörtum okkar allra.
Hvíl í friði elsku Þórey.
Guð blessi fjölskyldu Þóreyjar og vini, nánustu ættingja og alla sem eitthvað þekktu til hennar.
Elsku Þórir minn, foreldrar og systur megi Guð vera með ykkur. Ég sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur til ykkrar allra.
- Ásthildur | 22/01/06 18:19
|
|
Elsku Þórey
Þú varst í miðjum blóma lífsins þegar að þú varst tekinn frá okkur. afhverju er heimurinn svona ósanngjarn?
Við vitum að þér mun líða vel í himnaríki þar sem þú gettur farið að týna ber með Ömmu og afa með enga fötu, en fyrir okkur hinn eigum við eftir að varðveita minningarnar um þig vel þar sem þú varst svo frábær og yndisleg manneskja.
við viljum votta Mumma, Ellu, Söru, Rakel, Helgu, Þórir og fjölskyldu, okkar dýpstu samúð.
- Sævar, Selma, Óskar Pétur og Ásgeir Hólm | 22/01/06 18:57
|
|
Þegar ég heyrði að ung stúlka í blóma lífsins hefði dáið, þá brast ég í grát. Það var svo ekki fyrr en daginn eftir að mér var sagt að það hefði verið Þórey litla systir Helgu, Söru og Rakelar, hvað mér leið illa ég var hálf dofin allan daginn og gat ekki hætt að hugsa til fjölskyldu hennar og vina.
Ég missti mömmu mína þegar ég var 16 ára og svo bróðir minn þegar ég var 19 ára (hann hefði orðið 27 ára þá um sumarið). Við erum 6 systkinin og ég veit ekki hvar ég væri í dag ef við hefðum ekki fengið styrk og hlýju á þeim tíma frá hvort öðru.
Ég man líka hvað allir í bænum stóðu vel við bakið á okkur, og það gleður mig að það sé líka staðið svona vel við bakið á ykkur. Ég veit að þetta eru erfiðir tímar en ég veit líka að minningin um Þórey mun lifa í hjörtum okkar allra og ég vona að þið getið notað ykkur styrk okkar allra til þess að komast yfir þessa erfiðu fyrstu daga og séð ljósið við enda þeirra.
Megi minning Þóreyar lifa um ókomna tíð, og munum að lífið er það dýrmætasta sem við eigum.
Samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina.
- Erna Björk, Guðmundur, Lára Margrét og Rúnar Ingi. | 22/01/06 19:06
|
|
Maður hreinlega trúir þessu ekki ennþá, þetta er eins og martröð sem er að gerast, maður mann eftir því þegar maður sá þig hvort sem það var í íþróttarhúsinu með körfuboltanum í hendinni eða í mötuneytinu þá varstu alltaf svo hamingjusöm og alltaf brosandi, aldrei sást að neitt væri að trufla þig. Þú varst svo yndisleg manneskja og þér verður aldrei gleymt.
Hvíl í friði
Ég vil votta Þóri, Rakel, Helgu, Söru, Mumma og Elenborg mína dýpstu samúð.
- Daníel Þór Midgley | 22/01/06 19:50
|
|
mínar dýpstu samúðakveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar. megi þú hvíla í friði.
- Ína Kristín | 22/01/06 19:52
|
|
ég sakna þín ótrúlega mikið og þú varst BEST... og þú náðir ekki að verða 18 ára og það er ósangjarnt..ójá þú varst besti körfubolta kjennari sem ég hef átt
- Nína Dagrún Hermannsdóttir | 22/01/06 19:54
|
|
†Ég votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð. og meigji Þórey hvíla í friði†
- ólafur Njáll | 22/01/06 20:04
|
|
Ég vill votta öllum sem eiga um sárt að binda mína dýpstu samúðarkveðju.
Þórey breytti lífi margra og mun þannig lifa í hjörtum fólks að eilífu!
- Guðrún | 22/01/06 20:08
|
|
Ég vil votta fjöldskyldu og vinum Þóreyjar dýpstu samúðarkveðjur.
- Dagmar Halldórsdóttir & Fjöldskylda | 22/01/06 20:20
|
|
Elsku mummi og ellabogga innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls dóttir ykkar.
- Gunnar Finnsson & dætur | 22/01/06 20:22
|
|
Enginn orð enginn skrif geta skýrt eða sýnt hversu sárt þetta er, ég get bara ekki komið réttu orðunum hér inn um svona atburð, við munum aldrei skilja þetta.Ef ég gæti myndi ég nú bara standa hjá Mumma,Ellu,Söru,Rakel,Helgu ,Og Þóri ALLTAF tilbúin til knúsa þau þegar þau þurfa á því að halda....
Ég sendi ykkur mínar dýbstu samúðarkveðjur og megi guð geyma þessa litlu fallegu stelpu.
- Kolbrún Fjóla Arnarsdótir | 22/01/06 20:24
|
|
Elsku Þórey,
Í haust varð ég svo glöð þegar ég vissi að þú yrðir körfuboltaþjálfarinn minn. Núna er sárt að missa þig Þórey því að þú varst besti körfu bolta kennari í HHHHHHHHHHHHEEEEEEEEEEEEMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIIIIIIIIIIIIII.
Þú komst öllum í gott skap og þú varst skemmtileg og vildir engum illt.
Ég vildi að þetta hefði ekki gerst.
Ég skil bara ekki af hverju þetta gerðist.
Ég elska þig alla ævi.
Kær kveðja, þín Eva Margrét
- Eva Margrét | 22/01/06 20:40
|
|
Elsku Þórey,
þú ert besti körfuboltaþjálfari í öllum heimi. Ég sakna þín ótrúlega mikið. Ég lofa þér að ég ætla halda áfram að vera dugleg í körfubolta og ég ætla aldrei að hætta. Ég ætla líka að vera góð við alla, alveg eins og þú.
Þín Linda Marín
- Linda Marín | 22/01/06 20:57
|
|
Það er svo margt sem að flýgur í gegnum huga minn núna.
ég hef aldrei þolað kveðju stundir. Sérstaklega þegar maður hefur ekki tækifæri til að segja bæbæ, sjáumst. ég hef aldrei upplifað svona margar tilfinningar í einu. Mér finnst eins og ég brosi gegnum tárin því ég brosi á meðan ég hugsa um þig. Þetta er í fyrsta sinn sem ég ræð ekki við tárinn og þau leka bara stöðugt niður kinnarnar á mér.
þegar ég byrjaði í körfuboltanum með þér og stelpunum þá gafstu alltaf á mig þó svo að ég væri nýbyrjuð og kynni ekki neitt. Jafnvel á Unglingalandsmótinu þá sendirðu til mín.
á fimmtudaginn síðasta var ég á leiðinni út í bolungar vík í tónlistarskólann. Þá sá ég slysstaðin þar sem guð kom og sótti þig.
Þegar ég kem heim aftur segja Dúna og vala mér á msn að þú hafir verið í bílnum. Ég trúði því alsekki það var svo langt frá því að vera rökrétt. ég bjóst við að þegar þú myndir fara þá myndir þú fara með englahjörð sem væri jafn sæt og falleg og þú (sem er nú mjög erfitt að finna)á hvítum hestvagni upp til himna og bros þitt er eitt af mörgum ástæðum fyrir því að guð sótti þig. Veistu kannski fórstu svoleiðis þórey mín.
Ég man alltaf að þú talaðir alltaf við mig eftir körfuboltaæfingar. ég þekkti enga af ykkur þegar ég byrjaði og þú varst svo góð við mig. ég ætlaði alltaf að þakka þér fyrir það og mig vantar svo að hlaupa til þin og segja þér það og knúsa þig fyrir að hafa verið svona góð við mig.
það sem að þetta hefur kennt mér er það að nú ætla ég aldrei að bíða með að þakka einhverjum fyrir að vera góður við mig eða jafn yndislegur. Því það varst þú og það fyrsta sem ég ætla að gera þegar ég hitti þig aftur er að þakka þér fyrir það og spila körfubolta við þig.
Ég veit afhverju guð vildi fá þig aftur. Guð vill alltaf bestu stjörnurnar sínar aftur. það eru svo margar ástæður fyrir því að hann vildi fá þig. Þú átt eftir að vera vinsæl þar sem þú ert núna.
Bless bless Þórey mín og takk fyrir tækifærið sem þú gafst mér í körfunni.
Þegar einhver deyr, breytist ský í engil,
engillinn flýgur til að segja Guði
að nú skuli setja annað blóm á kodda.
Fugl kemur skilaboðunum til heimsins
og syngur hljóða bæn
sem fær regnið til að gráta.
Fólk hverfur en fer í raun aldrei,
andarnir halda áfram,
þeir setja sólina í rúmið,
vekja grasið og snúa jörðinni í hringi.
Stundum sérðu andanna að degi til
dansandi á skýjunum þegar þeir eiga vera sofandi.
Þeir mála regnbogann og sólsetrið,
þeir berja sjónum að bjarginu,
þeir kasta hrapandi stjörnum og hlusta á óskir okkar.
Og þegar þeir syngja söngva vindsins
hvísla þeir til okkar;
"Ekki sakna mín of mikið, útsýnið er frábært og mér líður vel.
Ég votta öllum sem hún brosti til sem hún gaf eitthvað af sér sem eru í körfunni sem þekktu hana sem eru fjölskyldunni hennar alla mína samúð og hversu heppinn þau voru að sjá engil sem var ekki einu sinni í dulargervi
- Sædís | 22/01/06 21:29
|
|
við viljum votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð veiti ykkur styrk á þessum erfiða tíma
Siggi, Ragga, Birna og Bríet
- Sigurður Erlingsson | 22/01/06 21:41
|
|
Það er sárt að missa svona góða manneskju eins og Þórey hún var góð við allt og alla og allir elskuðu þessa manneskju hun atti alls ekki skilið að deyja reyndar a það eingin skilið sérstaglega alls ekki þu ert það sem heldur þessum heimi saman þu ert skemmtunin þu ert brosið þu ert allt þu ert guð i minum augum þu ert allt i minum augum þu ert blíð þú ert góð þú ert skemtileg þu ert bara frabær manneskja en þegar eg heirði broður minn segja að þu hafir lent i slysi og daið eg for að grata leit utum gluggan minn og sa það en eg truði því ekki og trui þvi ekki en og mer langar alls ekki að trua þvi guð blessi þig fjolskyldu og vini við vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð.
Megir þú hvíla í friði Þórey
- Grunnskóla nemandi | 22/01/06 21:56
|
|
- - -
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því sem kemur
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki-
(Tómas Guðmundsson)
Elskulega fjölskylda, elsku Þórir minn. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg. Minnig Þóreyjar mun lifa um ókomna tíð.
- Helga Margrét | 22/01/06 22:59
|
|
†Til þín†
Til þin er ljúft að láta hugann reika
um litla stund
Hjá þér er kærst að hvíla sálu veika
og kælda lund.
Úr minningum og munablómum smáum
ég mynda brú,
Að andans tignar hugarlöndum háum,
þann heim átt þú.
Þar rís einn tindur hæst úr hugans djúpi,
en hulinn snjá.
Að sjá það allt, sem enn er faldað hjúpi,
það er mín þrá.
Ólína Andrésdóttir.
Vil votta öllum sem þekktu hana mína dýpstu samúð, fjölskyldu, vinum, ættingjum bara öllum ! Það er alltaf sárt þegar svona kemur fyrir, sárt og óskiljanlegt.
Af öllu sem ég hef lesið hérna þá sé ég bara að Þórey var yndisleg stelpa sem vildi öllum gott !
Ég þekkti hana ekki, því miður, en við kepptum oft á móti henni í yngriflokkunum, ég og stelpurnar í Þór á ak.
Ég missti besta vin minn 05.12.2004. Ljóðið að ofan hjálpaði mér mikið í gegnum þann langa tíma sem tók mig að jafna mig. Þannig að ég get aðeins gert mér grein fyrir því hvað þið eruð öll að ganga í gegnum núna, þótt hvert og eitt atvik sé sérstakt og aldrei eins. Ég vona að þið finnið fljótt aftur brosið og hamingjuna, og sálarfrið til að sætta ykkur við þetta. Verið dugleg að hjálpa hvort öðru í gegnum þennan hrikalega atburð, annars komist þið aldrei af. =( :*. Ég veit að það á aldrei neinn eftir að jafna sig að fullu, en sársaukinn á eftir að réna.
Við stelpurnar í Þór spiluðum með sorgarbönd á laugardaginn til minningar um þig Þórey. Hvíldu í friði.
Megi guð og englar gæta þín og vaka yfir sálu þinni.
Guð geymi ykkur öll :* †
- Sigga Árdal. Þór Akureyri. | 22/01/06 23:13
|
|
Kæra Þórey
Ég þekkti þig ekkert en vissi vel hver þú varst , Það vissu allir hver þú varst þú varst.
Það er svo sjálfsagður hlutur að sjá þig í Samkaup brosandi við kassan en nú sjáum við það aldrei aftur. Þegar mér var sagt að það hafði bíll oltið út í sjó vonaði ég innilega að enginn hafði dáið. Svo þegar mér var sagt að þetta værir þú og að þú hafðir dáið þá láku tárinn niður kinnarnar á mér án þess að ég gæti engu ráðið um það. Svo í skólanum á föstudaginn grétu allir og syrgðu þig þótt allir reyndu að hugga alla og hugsa að þú hefðir ekki viljað alla gráta yfir þér en það huggaði engann því staðreyndin blasti bláköld fyrir framan okkur þú varst arinn og við mundum aldrei sjá þig aftur í samkaup brosandi við kassan og segja með þinni engla rödd : Góðan daginn eða í stúdíóinnu brosandi. Þú varst sannkallaður Engill í mannsmynd og minning þín lifir í hjörtum okkar allra.
Kæra fjölskylda , vinir og kunningjar Þóreyjar ég vil votta ykkur mína innilegustu samúðar kveðjur megi guð styrkja ykkur í ykkar missi.
- Nemandi í grunnskólanum | 22/01/06 23:19
|
|
Ég þekkti þig ekki neitt Þórey, en af öllum þeim hlýju og fallegu orðum sem koma frá vinum þínum og öðrum sem þekktu þig hefur verið frábær og falleg sál..
Votta fjölskyldu, vinum og öðrum mína dýpstu samúð og meigi þú hvíla í friði kæra Þórey.
- María Sigurrós | 22/01/06 23:21
|
|
Kæra fjölskylda, ég vil votta ykkur mína dýpstu samúð við fráfall litla engilsins ykkar.
Ekki þekkti ég Þórey, en ég held að allir hafi vitað hver hún var, því ekki er hægt að mæta engli án þess að verða dolfallin. Þannig virkaði hún á mig, hreinasti engill.
Vertu sæl fallega stelpa.
- Auður Guðjónsd. og Lárus Daníelsson | 22/01/06 23:22
|
|
Það sem lífið getur verið ósanngjarnt stundum :(
Kæra fjölskylda, sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur vegna fráfalls Þóreyjar. Megi þið finna styrk í hvoru öðru til að vinna ykkur úr þessari miklu sorg.
- Arna Vigdís og fjölsk. | 22/01/06 23:42
|
|
Ég veit ekki hvað skal segja - þessa fallegu stelpu þekkti ég ekkert en ég hef samt vitað af henni frá því hún fæddist og fyllst með henni úr fjarlægð því ég var svo stolt af nafninu hennar. Lék mér stundum við eldri systur hennar á árum áður og man þegar mamma sagði mér eftir að tvíburarnir fæddust að þau hétu Þórey og Þórir - þá 9 ára og alveg viss um að það væri í höfuðið á mér... og ekki skemmdi fyrir að góður vinur minn hét Þórir.
Fjölskyldu Þóreyjar vil ég vott samúð mína og bið góðan guð að stykja þau í þessari miklu sorg.
Megir þú hvíla í friði Þórey
Þórey - Þingeyri
- Þórey Sjöfn Sigurðardóttir | 22/01/06 23:43
|
|
Elsku fjölskylda sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur. Bið Guð um að vera með ykkur og umvefja ykkur í kærleika sínum á þessum erfiðu tímum.
- Hulda Björk Gunnlaugsdóttir | 23/01/06 00:15
|
|
Ég þekkti þig ekki mikið en ég fattaði hver þú varst þegar ég sá myndirna.
þetta var ekki gott að þú skildir fara svona snemma,og ég vona bara að þér líði vel þarna hjá guði og meigi hann vernda þig.
þetta var hræðilegt slis hjá sona ungru stelpu.
og ég votta öllum sem þekktu þig mína ynstu samúð,
hvíldu í friði og megi guð blessa þig.
- Lilja Kristín Gísladóttir | 23/01/06 00:21
|
|
Elsku samstarfsfélagi okkar, vinkona og kunningi.
Við fyrstu sýn virtist þú mjög feimin, en komst okkur á óvart með æðislega persónuleikanum þínum og brosinu, og ekki má gleyma forvitninni þinni og fyndnu kommentunum. Þú barst af í hópnum eins og glitrandi engill alveg sama á hvaða tíma dags það var þú varst alltaf brosandi. Alveg sama hvar maður var í vinnuni maður gleymdi sér alltaf á spjalli við þig. Hver man ekki eftir þegar þú mættir ofurhress á laugardagsvaktirnar með stírurnar í augunum samt varstu alltaf svo sæt og í góðu skapi. Við minnumst þess þegar þú sast á kassanum í of stórri eða of þröngri rauðri samkaups flíspeysu brosandi að vanda.
Þín verður sárt saknað og minning þín mun lifa í hjörtum okkar um ókomna framtíð.
-Engill í mannsmynd-
Brosið þitt lýsti allt upp
Ljóminn geislað’af þér
Þín nærvera var svo góð
En nú ertu ei lengur hér
Þú varst ávallt sem engill
Sem kom til að gleðja
Og tókst það með sanni
En þurftir að kveðja.
Við getum þó alltaf minnst
Þín með gleði tárum
Því ekkert var slæmt með þér
Með þér var engin í sárum.
Núna ertu á æðri stað
Sem ber ýmsa nýja siði
Elsku þórey okkar
Megir þú hvíla í friði.
Ólöf Dröfn.S ‘06
Elsku Þórir og fjölskylda við vottum ykkur innilegar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum og megi Guð styrkja ykkur.
Krakkarnir í Samkaup
- | 23/01/06 00:34
|
|
Það er ekki orðum lýsandi hvað mér brá við það að heyra hvað hafði gerst þann 19. janúar sl. og minna brá mér nú ekki þegar mér var sagt hverja Guð vildi fá aftur til sín í engla skaran. Ég þekkti Þóreyu eiginlega ekki neitt, en ég á það þó í minningabankanum þegar hún og Guðbjörg komu til mín og Bjössa á busaballi MÍ og vildu endilega taka mynd af okkur þremur og ætlaði síðan að selja hana á fljúgandi háu verði þegar við værum orðnir frægir. Ég held að myndin myndi aðallega rjúka í verði vegna útgeislunar hennar á myndinni.
Ég votta Þóri, fjölskyldu og vinum alla mína dýpstu samúð.
- Brynjólfur Óli | 23/01/06 01:52
|
|
Vá, þú hlýtur að hafa verið algjör engill, hrikalegt að missa svona unga stelpu með alla þessa framtíð.
Vil veita fjölskyldu Þóreyjar mína samúð og að þeim gangi vel á þessum erfiðu tímum.
Rest In Peace.
- Kristinn Rúnar Kristinsson | 23/01/06 04:25
|
|
Kæra fjölskylda við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum engla Guðs að vaka yfir ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum.
- Þuríður Katrín, Jón Páll og börn | 23/01/06 09:10
|
|
LÍTIL KVEÐJA.
Þeir segja mig látna, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem að mun ykkur gleðja.
vil senda fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar innilegustu samúðarkveðjur, megi guð gefa ykkur styrk á þessum erfiða tíma.
- Beggý og fjölsk. | 23/01/06 09:34
|
|
Elsku Mummi Þór og Elínborg, við viljjum votta ykkur og fjölskyldu okkar dýpstu samúðarkveðjur
- Friðbjörn og fjölskylda | 23/01/06 11:15
|
|
Elsku Þórey, hörmulegt bílslys átti sér stað síðasta fimmtudag og þar var líf þitt tekið frá þér, og okkur öllum sem þótti vænt um þig. Einhvers staðar segir, þeir deyja ungir sem guðirnir elska, og er það hárrétt, ég held að allir hafi elskað þig.
Ekki þekkti ég þig mikið, en ég er glöð að hafa fengið að kynnast þér samt sem áður. Við vorum nú að vinna saman, stundum á mánudögum og svo áttum við alltaf laugardagsvaktina saman, sú vakt var nú aldrei í uppáhaldi en þú gerðir hana bærilega elsku Þórey mín, við áttum mörg skemmtileg spjöll, núna síðast varstu að tala um afmælið þitt, hverjum þú ættir að bjóða og svona, og komst mér upp á lagið að borða billys pizzur sem mér þóttu svo vondar en núna finnst mér þær mjög góðar, allt þér að þakka. :)
Ég á ótal litlar en merkilegar minningar frá þér sem munu lifa í hjarta mínu um ókomna framtíð. Þín verður sárt saknað, ég vona að þú sért komin á betri stað núna og fylgist með okkur hinum.
Ég votta fjölskyldu Þóreyjar alla mína samúð, megi guð vera með ykkur á þessari sorgarstundu.
Hvíl í friði elsku Þórey.
- Elísa Björt Guðjónsdóttir | 23/01/06 11:29
|
|
Ég þekkti Þórey ekkert þannig mætti kalla þekkja...Ég þekkti nú sboldið til hennar þar sem Sara systir hennar er vinkona systur minnar. Hún var með mér í kór þegar ég bjó á ísafirði og sama árgang í GÍ. Mamma mín sagði mér að það hefði orðið banaslys á hnífsdalsveginum og ég hugsaði ,,Þetta er pottþétt einhver fæddur "88! " Ég hugsaði til allra skólafélaganna gömlu en ég hugsaði þar sem ég vissi að þórey byggi í Hnífsdal að ég vonaði að þetta hafi ekki verið hún. Systir mín hryngdi síðan með þær fréttir að það hafi verið þórey. Ég trúði því ekki frekar en hver annar.
Allt sem ég hef heyrt af þér var hvað þú varst yndisleg stelpa og vildir öllum vel og Engill er greinilega það orð sem lýsir þér best!
Ég skila minni mestu samúð til fjölskyldu og vina Þóreyjar
Þetta var ótímabært :'(
- Sigrún Baldursdóttir | 23/01/06 12:06
|
|
Þeir sem guðirnir elska deyja ungir, en minningin um yndislega stelpu lifir áfrarm í hugum okkar og hjörtum. Elsku Mummi Þór, Ella, Sara, Rakel, Helga Kristín og Þórir mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Margrét Brynja Jónsdóttir.
- Margrét Brynja Jónsdóttir. | 23/01/06 13:10
|
|
Elsku Þórey, eg vona að guð passi þig vel,þú varst besti þjálfari í heimi.Sakna þín mjög mikið. Þinn nemandi Aldís Huld
- Aldís Huld Höskuldsóttir | 23/01/06 14:16
|
|
Kæra fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum.
Ásthildur Gestsdóttir og fjölskylda
- Ásthildur Gestsdóttir | 23/01/06 14:54
|
|
Kæra Þórey
ég þekkti þig ekki mikið en ætla að setja samt smá hér inná.
Það er eitthvað svo sjálfsagt að sjá þig í Samkaup með fallega brosið þitt alltaf svo fín og sæt sama hvar þú varst. En auðvitað er það ekki sjálfsagt eins og allt annað í heiminum. Við sjáum það ekki fyrr en núna þegar sona er komið fyrir okkur. Þegar mér var sagt að þú værir dáinn fór ég að gráta óstöðvandi....
Kæra fjölskylda Þóreyjar innilegar samúðarkveðjur til ykkar og vina Þóreyjar...
- Grunnskóla nemandi | 23/01/06 15:12
|
|
Þórey þú vast láng besti körfubolta kenari í öllum heiminum við söknum þín sárt og þú vast eingill með skærasta geislabauginn.Þú Vast góð og átir skilið að lifa og ég hef haft góðar stundir með þér ég skil ekki afkverju Guð tók þig þú vast góð og allir í skólanum töluðu um þessar sorgar frétir.
sakna þín
- Ingibjörg Gísladóttir 12 ára | 23/01/06 15:36
|
|
Mér finst svo sorglegt þegar ég les þetta, vinkona stóru systir minnar er frænka hennar,svona ung stelpa! þetta er bara ekki sangjart... ég votta fjöldskyldu og vinum og öðrum aðstendum innilega samúð!
- Fídes | 23/01/06 16:35
|
|
Bestu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar sem var tekin burt alltof alltof snemma. Megi guð vera með ykkur um ókomna framtíð.
- Torfi Geir Símonarson | 23/01/06 16:43
|
|
Vottum fjölskyldu Þóreyjar og vinum okkar dýpstu samúð.
Kveðja
Óli Hjálmars, Þóranna og Arnar Freyr
- | 23/01/06 17:58
|
|
Afhverju Þórey? spyr mig alltaf að þessu.. þetta var hin ljúfasta stelpa sem gerði engum neitt. Talaði svo vel um allt og alla. Ég þekkti hana svo sem ekki það mikið en það sem ég þekkti af henni var bara gott. Ég talaði mjög oft við hana á skólaböllunum og í stúdíóinu. Það var alltaf gaman að tala við hana. En ég mun aldrei gleyma henni Þórey og hlýja brosinu hennar.
Ég vil votta Þóri,fjölskyldu og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur
Hvíl í friði Þórey†
- Lára Rán | 23/01/06 18:33
|
|
,,Þótt ég sé látin, harmið mig ekki með tárum,
hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.
Ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur,
þótt látna mig haldið.
En þegar þið hlægið og syngið með góðum hug,
sál mín lyftist upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur,
og ég, þótt látin sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu..."
- | 23/01/06 19:03
|
|
Ég vill votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar innilegustu samúðarkveðjur hún átti þetta sýst af öllum skilið....†
- Anna Portia | 23/01/06 19:20
|
|
Í dag klukkan sex, komu krakkarnir í íþróttafélaginu Stefni ásamt foreldrum sínum saman í kirkjunni á Suðureyri. Þar áttum við fallega bæna- og samverustund þar sem við kveiktum á kertum og minntumst Þóreyjar. Það er ljóst að Þórey náði vel til barnanna og náði að mynda góð tengsl við þau þrátt fyrir að hafa ekki verið þjálfari þeirra lengi.
Minningin um brosmilda og góða stúlku lifir á meðal okkar.
Vottum aðstandendum Þóreyjar, foreldrum og systkinum innilegar samúðarkveðjur vegna sviplegs fráfalls hennar.
Svava Rán Valgeirsdóttir
Formaður íþróttafélagsins Stefnis á Suðureyri
- Svava Rán Valgeirsdóttir | 23/01/06 19:25
|
|
Þórey var mjög skemmtileg og góð við krakkana og náði að kveikja áhuga þeirra á körfuboltanum og gerði það með skemmtilegum leikjum og þrautum.
Guð blessi minningu Þóreyjar
- Valgeir Skorri og Hrafnkell Hugi | 23/01/06 19:29
|
|
Elsku Ella, Mummi Þór og fjölskylda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð og gæfan styrkja ykkur í framtíðinni. Kveðja Unnsteinn og Guðrún
- Guðrún Jónsdóttir og fjölsk | 23/01/06 19:59
|
|
Þórey kynntist ég aðeins í gegnum Helgu Kristínu systir Þóreyjar og Alexíu Ýr dóttur mína sem æfði körfubolta hjá henni. Það sem ég tók eftir hvað hún var falleg, góð við stelpurnar sínar (í körfub), hugulsöm, þolinmóð og alltaf brosandi.
Enda leit Alexía upp til hennar.
Er sárasta sorg okkar mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H)
Elsku Helga Kristín, Sara, Rakel, Þórir, Elínborg, Guðmundur og aðrir aðstandendur, okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Bylgja Hrönn Karlsdóttir, Hilmar Skúli Hjartarson og fjölsk
- Bylgja Hrönn Karlsdóttir | 23/01/06 20:11
|
|
Kæra fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra.
Guð veri með ykkur.
Ómar Helga,Karen og börn
- Ómar Helgason og fjölskylda | 23/01/06 20:23
|
|
Við viljum votta okkar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar Mummi, Ella, Rakel, Sara, Helga Kristin og Þórir.
Megi guð vera með ykkur á þessum erfiða tíma!
Meigi þú hvíla í friði elsku Þórey
- Halldór Magnússon og fjölskylda | 23/01/06 21:04
|
|
Ég vil votta Mumma, Ellu, Rakel,Söru, Helgu og Þóri mínar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erfiða tíma.
Megi þú hvíla í friði elsku frænka :*
- Björn Elías Halldórsson | 23/01/06 21:08
|
|
Við viljum votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar samúð. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.
Halla María og Doddi
- Halla María Halldórsdóttir | 23/01/06 21:10
|
|
Elsku Þórey þú varst besti körfuboltaþjálfari í öllum heiminum. Sakna þín, sofðu rótt.
Alexía Ýr Ísaksdóttir
- Alexía Ýr Ísaksdóttir | 23/01/06 21:16
|
|
guð blessi ykkur oll
- moli | 23/01/06 23:24
|
|
Elsku Þórey
Ég vil þakka þér fyrir það sem þú gerðir fyrir stelpuna mína .. þú kveiktir hjá henni ástríðu fyrir körfubolta og hún er ákveðin í að halda áfram þó að hún sakni þín mikið og skilur ekki hversvegna þú varst kölluð heim svona snemma á lífsleiðinni.
Þú áorkaðir svo miklu svona ung - og þessar stelpur verða minnisvarði um kappið, áhugann og góðmennsku þína.
Sjálf þekkti ég þig ekki .. ekki persónulega en auðvitað hafði ég tekið eftir brosinu þínu í Samkaup og í Stúdíó Dan - maður þyrfti að vera blindur til að hafa ekki tekið eftir þessu fallega brosi.
Ég votta fjölskyldu þinni, vinum þínum og öllum sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls Þóreyjar alla mína samúð.
Megi góðar vættir hugga ykkur og fylgja á þessum erfiðu stundum.
- Gerður og Sædís Birta | 24/01/06 02:48
|
|
Mikið er þetta hrillilega ósngært.
Elsku Mummu, Ella, Þórir, Sara ,Helga Kristín og Rakel.
Ég vill votta ykkur mína mestu samúð.
Guð geymi þig Þórey
- Ingimar Finnbjörnsson | 24/01/06 09:52
|
|
Kæra fjölskylda, ættingjar og vinir Þóreyjar vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hugur okkar er hjá ykkur.
Hafdís Vera og fjölskylda
- Hafdís Vera Emilsdóttir | 24/01/06 13:58
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúð og megi guð styrkja ykkur á þessum tímum.
Elsku Þórey hvíl í friði.
- Karl Kristján Pálsson | 24/01/06 14:03
|
|
†Ég votta fjölskyldu Þóreyjar mína dýpstu samúð. Og meigji Þórey hvíla í friði†
- Anton Helgi | 24/01/06 14:21
|
|
Við vorum ansi mörg frá 7-13 ára saman á sumrin, við vorum öll kvöld úti í leikjum fram á nótt.Þórey var alltaf þessi rólega í gríslingahópnum, þetta var yndislegur tími og Þórey kemur alltaf til með að vera hltui af mínum sumar minningum úr Dalnu.
Ég vil votta Þórir og fjölskyldu hans mína dýpstu samúð.
- Sissú | 24/01/06 16:05
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar.
Megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum.
Kristín Guðnadóttir,Heimir Tryggvason og fjölskylda.
- Kristín Guðnadóttir | 24/01/06 16:42
|
|
Elsku Þórey mín. Hvernig getur svona lagað gerst??
Ég man alltaf hve gaman var með þér og Þóri og öllum krökkunum í dalnum í öllum leikjunum sem við fórum í:) Alltaf varstu ofurróleg og brosandi og aldrei tapsár:) annað en sumir:) Við vorum nágrannar í mörg ár og ég á margar góðar minningar bæði með þér og systkinum.
Elsku Þórir,Mummi,Ella, Sara, Rakel og Helga Kristín megi guð vera með ykkur.
Hvíl í friði elsku Þórey mín.
- Amy Melissa Reynisdóttir | 24/01/06 16:53
|
|
þórey, já þú varst og ert besta skinn og ég mun alltaf muna hvað þú varst glöð hvort sem það var rigning og fúllt, en þú varst brosandi! sama á hverju stóð...en þetta er skrítið þekkti þig voða lítið en heilsuðumst stundum útá götu og þú sérstaklega með bros á vör og allir munu þekkja þig í hjörtum sem glöðustu...guð tók stjörnu og það ljúfustu!! maður spyr sig bara hvernig gat þetta gerst manneskja sem að gerði engum né neinum neitt.
ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyar alla mína dýpstu samúð og þú munnt alltaf geimast í hjörtum okkar allra yndi. hvíldu í friði elsku þórey.
- fanney | 24/01/06 17:20
|
|
ÉG verð nu bara að minnast hennar Þóreyjar hér Það sem ég þekkti af henni =* Ég man þegar ég hitti hana Þórey og Guðbjörgu fyst, ég var algjör kjáni lilla systir hennar írisar sem var að æfa með Þórey körfu ..! Mætti ég þarna á körfuboltaæfingu á ísafirði þekkti engan nema írisi og pétur fór svona kjánahrollur um mig..:) En allavegana eftir æfinguna inní klefanum þá var ég svo feimin talaði ekkert við stelpurnar en síðan kom Þórey og Guðbjörg og spurðu mig hvort ég vildi koma og kynnast þeim eða kíkja út með þeim gjellum og þær sögðu lika að ég mætti koma á æfingu með þeim í 10 flokk.!! Þarna voru fystu kynni min við Þórey vildi bara deila þessu með ykkur, hversu góð og hugrökk hún var!? Þetta hlýtur að vera erfiður tími fyrir ykkur a'ð missa svona "frábæra" stelpu sem vildi öllum vel=** Minar bestu samúðar kveðjur til Þóris og fjölskyldu=)
- Rósa Kristín Indriðadóttir | 24/01/06 17:46
|
|
jæja ég þekkti hana þórey ekki mikið enn hafði samt séð hana labba um og svona ég votta innilega samúð frá mér og fjölskyldunni minni það er hræðilegt að fara svona ungur og að missa einhvern svona ungan frá sér enn guð blessi hana þórey og vini og ættingja
- Anna María | 24/01/06 17:50
|
|
†Ég votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum mína dýpstu samúð. Og meigi Þórey hvíla í friði og ég vona að Guð geymi hana†
- Anita | 24/01/06 17:57
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum :*
- Lilja Björk | 24/01/06 18:28
|
|
Elsku litla yndislega frænka! Við erum bara ekki að ná þessu enn að þú skulir ekki vera hjá okkur. Lífið getur svo sannarlega verið grimmt, að taka þig Þórey mín sem alltaf var í góðu skapi með ljómandi bros hvar sem við hittumst. Nú rifjast upp allar stundirnar sem við hittumst og minningarnar ylja manni um hjartarætur. Elsku elsku Þórey mín ég veit þú lýsir upp himnana núna og vakir yfir okkur öllum! Ég veit að amma Sara passar vel upp á þig! † Hvíldu í friði litla sæta frænka †
Elsku Ella, Gummi, Sara, Rakel, Helga og Þórir Við bíðum eftir að geta faðmað ykkur og styrkt.
Helgi Aage og fjölskylda!
- Helgi Aage Torfason | 24/01/06 18:55
|
|
Elsku Þórey! ég er ekki ennþá að trúa því að þú sért farin...hvernig getur heimurinn verið svona ósanngjarn!! Þú varst bara 17, næstum að verða 18, áttir allt lífið frammundan!!
Þú varst svo frábær stelpa, góð og yndisleg við alla, alltaf brosandi!..ég hef aldrei séð þig reiða eða í fýlu, og fæ víst aldrei...
En ég man svo vel þegar þú byrjaðir að vinna í samkaup, mér fannst þú alltaf vera svo feimin, en þegar ég kynntist þér þá varst þú það bara alls ekkert. Það var alltaf svo gaman að vinna með þér, meira að segja sunnudagskvöldvaktirnar voru fljótar að líða þegar maður gat verið að spjalla við þig.
Ég man líka þegar ég kom á eina körfuboltaæfingu með hildi, þú varst svo góð!..ég kunni varla að drippla bolta, en þú sagðir að ég gæti þetta alveg!...ég mætti ekki á fleiri æfingar en hugsaði samt stundum um það, hildur var nefnilega alltaf að tala um hvað það væri gaman og að þú og þórir væruð alltaf að kenna henni eitthvað nýtt.
Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og vera með þér,þó að ég hefði viljað kynnast þér svo miklu miklu betur..þú áttir ekki skilið að fara svona fljótt!!
Ég sakna þín mjög mikið og mun alltaf muna eftir þér, megir þú hvíla í friði†
Elsku Þórir og fjölskylda ég votta ykkur mína dýpstu samúð, líka til allra þeirra sem þekktu þessa yndislegu stelpu!
- Anna María Guðjónsdóttir | 24/01/06 20:35
|
|
Ég þekkti hana Þórey ekki neitt en það tekur mig sárt að sjá svo unga stúlku tekna frá okkur með þessum hætti.
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar og öllum sem hana þekktu mínar samúðarkveðjur.
- Eyjólfur Hannesson | 24/01/06 21:31
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum Þóreyjar mínar dýpstu samúðarkveðjur.Elsku Þórey Guð blessi þig og mininguna þína.
- Þóra Baldursdóttir og fjölskylda | 24/01/06 22:01
|
|
Ég votta ykkur mína innilegustu samúð.
Guð veri með ykkur og styrki ykkur á þessum erfiða tíma.
- SEB | 24/01/06 23:37
|
|
R.I.P Þórey Guðmundsdóttir R.I.P
- Marinó Oddur | 24/01/06 23:40
|
|
Elsku Mummi Þór og fjölskylda. Guð styrkji ykkur í ykkar mikla missi. Samúðar kveðja Einar og Dabba Patró.
- Einar Jónsson | 25/01/06 00:44
|
|
Ég vill votta öllum sem eiga um sárt að binda mína dýpstu samúðarkveðju. meigji Þórey hvíla í friði†
- Róbert Alexander Chylinski | 25/01/06 09:24
|
|
Þú varst góð körfuboltakennari leðinlegt að þetta skuli geta gerst fyrir þig.
ps.Við söknum þín öll á Suðreyri.
- Jóhann Alexander og Jóhann Sigurðsson | 25/01/06 14:57
|
|
Ung og falleg stúlka hvarf frá okkur skyndilega og mikið svakalega er það erfitt,og aldrei á maður eftir að skilja svona því miður,Elsku Mummi,Ella,Sara,Rakel,Helga og Þórir megi guð og gæfa varðveita ykkur á þessum erfiðum timamótum
† Elsku Þórey hvil í friði †
Braga Ósk
- Braga og fjöldskylda | 25/01/06 18:49
|
|
Mig skortir orð. Það er svo margt sem mig langar til að segja, en samt finn ég svo sárt til þess hversu lítils megnug orðin eru og hve mikið vantar upp á að þau geti tjáð allar þær hugsanir og tilfinningar sem fara um hugann núna. Útkoman verður bara þetta fátæklega:
Hjartanlegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Þóreyjar og vina.
- Herdís M. Hübner | 25/01/06 20:02
|
|
Ég sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu Þóreyjar Guð gefi ykkur styrk í sorginni og ykkar mikla missi......
Eftir standa fallegar minningar um stúlkuna ykkar sem á stuttri ævi stráði í kringum sig brosum birtu og yl hvert sem hún fór.
Vinkonur vinir skólafélagar og samstarfsfólk Þóreyjar ég votta ykkur einnig samúð mína ég veit að fráfall hennar var ykkur þungbært, verið góð hvort við annað og haldið minningu Þóreyjar á lofti því hún var frábær fyrirmynd.
- Kolbrún Sverrisdóttir | 25/01/06 21:16
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda Þóreyjar. Megi minning hennar lifa um ókomna tíð.
Samúðarkveðjur
UMF. Kormákur, Hvammstanga
- UMF. Kormákur | 26/01/06 00:18
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og ástvinum Þóreyjar mína dýpstu samúð.
Virðingarfyllst
Alexandra Klonowski
- Alexandra Klonowski | 26/01/06 02:20
|
|
Ég vil votta fjölskyldu, vinum og öðrum aðstandendum Þóreyja mínar dýpstu samúðarkveðjur.
†Megi þú hvíla í friði†
- Tryggvi svanbjörnsson | 26/01/06 15:01
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum samúðarkveðjur
- Sigrún Skaftadóttir | 26/01/06 15:30
|
|
Innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra.
- Anna María Sveinsdóttir | 26/01/06 15:59
|
|
Elsku Þórey mín.
Ég á til svo margar góðar minningar um þig, þú varst alltaf svo lífsglöð og til í allt og brostir svo fallega út í heiminn til okkar allra og það er erfitt að hugsa til þess að fá aldrei að sjá þetta yndislega bros þitt aftur.
Ég minnist þín sérstaklega í Samkaup þar sem við hittumst oft fyrir utan fimm mínútur í sex á föstudagskvöldum og vissum ekkert hvot okkar ætti að vinna.
Ég votta fjöslskyldu Þóreyjar mínar dýpstu samúð, og megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum.
- Dagný Sveins | 26/01/06 18:48
|
|
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu Þóreyjar, vina og kunningja.
Blessuð sé minning þín og guð geymi þig †
- Kristný Pétursdóttir | 26/01/06 19:56
|
|
Elsku Þórey mín.
Mikið getur lífið verið óréttlátt þegar að ung og falleg stúlka er tekin frá okkur. Við skilin eftir með ótal spurningar en engin svör, mikil sorg ríkir yfir en við verðum að reyna að standa saman og vera sterk.
Mikið finnst mér, ég vera heppin að hafa fengið að kynnast þér, þú varst svo æðisleg, hreint ótrúlega skemmtileg og þetta bros, sem að yljaði manni um hjartarætur þegar maður hitti þig. Alltaf varst þú brosandi. Þegar við hittumst hvort sem það var í skólanum, úti á götu eða á fótboltaæfingum þegar við æfðum saman spjölluðum við um heima og geima. Þú varst alltaf svo róleg og yfirveguð og gafst þér tíma í að spjalla.
Ég mun alltaf geyma minninguna um þig í hjarta mínu og ég vona að þér líði vel á þeim stað sem að þú ert komin á núna.
Elsku Þórir, fjölskylda og vinir ég vil votta ykkur mína dýpstu samúðarkveðjur og megi guð veita ykkur styrk á þessari erfiðu stundu.
Megi minning hennar lifa um ókomna tíð†
- Helga Guðrún Magnúsdóttir | 26/01/06 21:08
|
|
Elsku Þórey þú varst alltaf svo brosmild, sæt og góð. Ég man eftir æskuárunum í Hnífsdal þegar við lékum okkur langt fram á kvöld, alla daga í alls konar leikjum.
Elsku fjölskylda ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur.
Guð geymi þig elsku Þórey
- Jóna Valgerður Kristjánsdóttir | 26/01/06 21:30
|
|
Yeah... this right hear... goes out to everyone who has lost someone they
truly love
Seems like yesterday we used to rock the show
I laced the track, you locked the flow
So far from hangin on the block for dough
Notorious, they got to know that
Life ain't always what it seem to be (uh-uh)
Words can't express what you mean to me
Even though you're gone, we still a team
Through your family, I'll fulfill your dreams (that's right)
In the future, can't wait to see
If you open up the gates for me
Reminisce some time, the night they took my friend (uh-huh)
Try to black it out, but it plays again
When it's real, feelings hard to conceal
Can't imagine all the pain I feel
Give anything to hear half your breath (half your breath)
I know you still living your life, after death
Every step I take, every move I make
Every single day, every time I pray
I'll be missing you
Thinkin of the day, when you went away
What a life to take, what a bond to break
I'll be missing you
I miss you Big
It's kinda hard with you not around (yeah)
Know you in heaven smilin down (eheh)
Watchin us while we pray for you
Every day we pray for you
Til the day we meet again
In my heart is where I'll keep you friend
Memories give me the strength I need (uh-huh) to proceed
Strength I need to believe
My thoughts Big I just can't define (can't define)
Wish I could turn back the hands of time
Us in the 6, shop for new clothes and kicks
You and me taking flicks
Makin hits, stages they receive you on
I still can't believe you're gone (can't believe you're gone)
Give anything to hear half your breath (half your breath)
I know you still living you're life, after death
Every step I take, every move I make
Every single day, every time I pray
I'll be missing you
Thinkin of the day, when you went away
What a life to take, what a bond to break
I'll be missing you
Somebody tell me why
One black morning
When this life is over
I know
I'll see your face
Every night I pray, every step I take
Every move I make, every single day
Every night I pray, every step I take
Every day that passes
Every move I make, every single day
Is a day that I get closer
To seeing you again
Every night I pray, every step I take
We miss you Big... and we won't stop
Every move I make, every single day
Cause we can't stop... that's right
Every night I pray, every step I take
Every move I make, every single day
We miss you Big
Every step I take, every move I make
Every single day, every time I pray
I'll be missing you
Thinkin of the day, when you went away
What a life to take, what a bond to break
I'll be missing you
- Tota | 26/01/06 21:33
|
|
Elsku Þórey. Ég trúi þessu ekki. Ég trúi því ekki að lífið skuli geta verið svona endalaust óréttlátt! En sumt í þessu lífi er manni einfaldlega ekki ættlað að skilja, eins og þetta að svona ung og yndisleg stelpa eins og þú skulir þurfa að kveðja svona fljótt.
Fyrsta minningin sem ég á um þig er falleg og mér þykir svo ótrúlega vænt um hana. Ég vil þakka þér fyrir allan þann skilning sem þú sýndir mér þá. Þessa minningu, ásamt öllum hinum, mun ég geyma í hjarta mínu um alla framtíð og minnast þín sem einum af þeim englum sem maður er stundum svo heppinn að mæta á lífsleiðinni.
Guð geymi þig.
Ég vil votta fjölskyldu Þóreyjar og vinum mína dýpstu, dýpstu samúð og megi Guð styðja ykkur í sorginni.
- Guðbjört Lóa | 26/01/06 21:58
|
|
Kæra fjölskylda, vinir og ættingjar.
Ég vil votta ykkur öllum mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Það er mikill missir fyrir alla að missa svona dásamlega og lífsglaða stúlku.
Þórey mun alltaf lifa í hjörtum okkar
- Áslaug Inga Barðadóttir | 27/01/06 09:52
|
|
Kæra fjölskylda sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðju og megi Guð vera með ykkur
Rúna Oddur og synir
- Rúna | 27/01/06 09:53
|
|
Það var mér og minni fjölskyldu mikið lán að fá tækifæri til þess að kynnast þér elsku Þórey mín. Þó svo að það hafi ekki verið langur timi þá skildir þú eftir í hjarta okkar og sál þær tilfinningar gagnvart þér og fjölskyldu þinni sem ekki er hægt að koma orðum að og verða okkur mikill fjársjóður. Hvíl þú í friði elskan okkar.
Elsku vinir. Mummi,Ella og fjölskylda.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur.
- Bjarni Kristinn Þorsteinsson. Borgarnesi | 27/01/06 12:16
|
|
Við vottum fjölskyldu þóreyjar okkar dýpstu samúð.
- Pétur þór og Berglind karen | 27/01/06 15:32
|
|
Við þekktum Þórey ekki mikið en höfðum samt spilað á móti henni...við þekkjum Þóri ágætlega og vorum við mikið með honum þegar við fórum að spila bikarleik þarna á Ísafirði. Þórir var æði og mjög góður strákur..;) og þá erum við nokkuð vissar að Þórey hafi verið alveg eins..:)
Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda Þóreyjar. Megi minning hennar lifa um ókomna tíð.
Megi Guð vera með fjölskyldu hennar og vinum..
Samúðarkveðjur
Keflavík...
- stelpurnar fæddar '88 í Keflavík...;) | 27/01/06 16:56
|
|
Ég vil votta mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar
hennar verður sárt saknað af öllum sem einhvern tímann fengu þann heiður að vera nálægt henni þó ekki hafi verið meira en stutta stund
guð blessi þig þórey mín og megir þú hvíla í friði !!!
- Karen Gyða | 27/01/06 20:21
|
|
Elsku Þórey
Hvað er hægt að segja á svona stundum... Engin orð geta líst þessari miklu sorg. Maður ætti að meta lífið meira, njóta hverrar stundar með þeim sem manni þykir vænst um, einn dag í einu.
Þú gafst okkur stelpunum í körfunni svo mikið, alltaf svo hlédræg og yndisleg, sagðir ekki mikið, lést þér nægja að yppa öxlum og það sagði meira en þúsund orð og það kom okkur alltaf í gott skap. Þú verður ávallt litli unginn í okkar augum.
Þín verður sárt saknað. Megi guð geyma þig fallegi engill.
Elsku Þórir, mínar dýpstu samúðarkveðjur til þín og fjölskyldu þinnar.
- Svandís | 27/01/06 23:30
|
|
Ég hef varla orð, ég þekkti Þórey ekki neitt en samt finn ég til.
Þetta stingur mann í hjartað og ég vil bara votta alla mína dýpstu samúð til fjölskyldu og vini og allra sem fengu að kynnast henni.
Megu Guð og hans englar vaka yfir ykkur.
Lífið er óréttlátt, en við getum ekki breytt því.
Ég vona svo innilega að Guð veiti ykkur styrk á þessum erfiða tíma.
Blessuð sé minning Þóreyjar
- Eva Rós Hauth | 28/01/06 00:32
|
|
Með fallegu brosi heilsaði hún okkur.
Brosið var innilegt, vingjarnlegt.
Hæglát, glæsileg
Það fór ekki mikið fyrir henni en hún vakti athygli okkar.
Hún talaði ekki hátt, en við hlustuðum á hana.
Hún tók eftir því sem við hana var sagt.
Var alltaf með þegar hún mögulega gat.
Í félaginu tók hún þátt í leikjunum,
innan vallar sem utan:
á ritaraborðinu, stattinu, sjoppunni, í kaffisölunni,
fjáröflunum – hvar sem hún gat gert eitthvað
Hún ljómaði þegar við buðum henni að þjálfa fyrir okkur
Hver var betri til að laða að nýjar stelpur?
Hún var stolt af stelpunum sínum
Hún var skipulögð gagnvart stelpunum
Hún fann tíma til að fara yfir á Suðureyri og þjálfa
Hún var alltaf tilbúin að leysa af þjálfara sem fóru í keppnisferðir
Hún fór með til Reykjavíkur að leysa Þóri af sem þjálfara, svo strákanir hans yrðu
ekki einir í leikjum þegar hann var að keppa á sama tíma og þeir
Umhyggja hennar var ómetanleg; hún naut sín vel í þessu áhugamáli sínu
Við sáum hana bókstaflega springa út eins og fegursta blóm að vori
Við gátum aldrei þakkað henni nógu vel
Litlu frændsystkinin fóru ekki leynt með aðdáun sína
Hún var uppáhalds frænkan - það fór ekki á framhjá neinum sem sá til
Aðeins 17 ára - en þvílíkar minningar sem við eigum.
Það er okkur mikill heiður að hafa fengið að kynnast henni
að hafa fengið að vera samferða henni í þessu lífi
Brosið hennar mun vinna á sorginniokkar
Elsku Ella, Mummi, Þórir, Helga, Rakel og Sara - ættingjar og vinir, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur
Eva, Steini, Siggi og Fiffi.
- Eva, Steini, Siggi og Fiffi | 28/01/06 03:51
|
|
Ég vil votta fjölskyldu og vinum þínum dýpstu samhúðarkveðjur. Ég þekkti Þórey ekki neitt. Vildi bara koma mínum orðum hérna
Hvíldu í friði þórey :*
- Sigurbjörg | 28/01/06 15:37
|
|
Samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Þóreyjar.
Megi guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.
Tryggvi og Rósa. Krók 4.
- | 28/01/06 17:58
|
|
Kæra fjölskylda við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur
Magnús Samúelsson og fjölskylda
- Magnús Samúelsson | 28/01/06 18:26
|
|
Elsku Þórey.
Litla sæta frænka. Alltaf svo góð við allt og alla, með ótrúlega útgeislun og fallega brosið.
Eins og svo margir aðrir vildi ég ekki trúa því þegar ég heyrði sorgarfréttirnar, hugsa enn hvað þetta er ósanngjarnt og óskyljanlegt.
Síðustu dagar hafa verið erfiðir og rifjast upp margar minningar. Það er mér efst í huga þessa stundina að alltaf þegar ég heimsótti ömmu og Boggu á Hlíf þá varst þú svo oft þar, að koma af körfuboltaæfingu eða að bíða eftir að vera sótt. Amma var alltaf svo stolt af barnabörnunum sínum og öllu sínu fólki. Hún talaði oft um það hvað þið tvíburarnir væruð dugleg og maður sá stoltið skína úr augunum á henni. Núna ertu hjá ömmu, afa og öðrum ættingjum sem hugsa vel um þig.
Eins og svo margir aðrir þá sá ég þig síðast á kassanum í Samkaup rétt áður en ég fór suður aftur eftir jólafríið. Ég fór alltaf á kassann þinn og við spjölluðum saman og þú brostir svo fallega. Ég fór alltaf úr Samkaup með bros á vor og hlýju í hjarta þegar ég var búin að tala við þig því þú hafðir þannig áhrif á fólk.
Ég hef alltaf verið svo stolt af því að vera hluti af fjölskyldunni okkar og það er sár missir að þú hafir verið kölluð burt svona fljótt.
Það er auðséð að þú áttir marga góða að, fjölskyldu, ættingja, vini og kunningja sem sakna þín sárt.
Elsku Þórir, Mummi, Ella, Sara, Rakel, Helga og fjölskyldur -Mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Hafdís frænka.
- Hafdís Pálsdóttir | 28/01/06 21:30
|
|
Eydís:ég þekkti hana ekki mikið en ég var rosa leið þegar ég frétti að hun var dáin allir eru mjóg vonsviknir að þú skildir deyja eins og allir seiga ungir deyja sem guð elskar mest
Oddný:þetta er vinkona systur minna ég þegti hana eki mikið en sá hana oft vera með systur minni og sá hana í körvubollta og mér þikkir mjög leit að hun skildi deyja
- Eydís Eva og Oddný | 28/01/06 22:07
|
|
Elsku Þórey ég þekki vinkonu þína og heyrði nokkrar æðislegar sögur af þér. Núna hefur guð tekið þig frá fjölskyldu og vinum vegna þess honum þótti þú svo einstök og vildi hafa þig sem næst sér og geta fundið góðu lyktina af þér og horft á fallega brosið þitt og notið yndislega perónuleikans þíns. Nú hafa englarnir smíðað fallega gull vængi handa þér og minnig þín byr í hjörtum okkar allra. Við munum aldrei gleyma svona yndislegri sál elsku Þórey...
- vinkona vinkonu | 28/01/06 22:50
|
|
Kæra fjölskylda, vinir og ættingjar Þóreyjar, við vottum ykkur okkar dýpstu og innilegustu samúð.
Megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum.
- Hilmar Örn, Helga Rebekka og Ásgerður Pála. | 29/01/06 14:08
|
|
Megi tu hvila i fridi kæra Torey. Thetta er sart 17 ara gomull og rett ad byrja lifid. En tu varst godur felagi og alltaf sibrosandi.Tad fer ekki allt eins og vid viljum hafa tad, tvi midur. Sendi Tori og fjolskyldu samudarkvedju.
Thakka fyrir stundirnar sem vid attum saman. Megi tu hvila i fridi.
Tinn vinur Eythor Bjarnson
- Eythor Bjarnason | 30/01/06 17:07
|
|
vottum fjölskyldu Þóreyjar og vinum okkar dýpstu samúð
Hvíld í friði þórey
kveðja
- Anna Elín Hjálmarsdóttir, jón Matti Helgason og Margrét Steinunn Jónsdóttir | 30/01/06 18:51
|
|
Kenndu mér klökkum
að gráta
kynntu mér lífið
í svip.
Færðu mér friðsæld
í huga
finndu mér leiðir
á ný.
Og sjáðu hvar himinn heiður
handan við þyngstu ský
er dagur sem dugar á ný.
Veittu mér vonir
um daga
vertu mér hlýja
og sól
Láttu mig læra
af reynslu
leyfðu mér áttum
að ná.
Og sjáðu hvar himinn heiður
handan við þyngstu ský
er dagur sem dugar áný.
Gefðu mér gullin
í svefni
gættu að óskum
og þrám.
Minntu á máttinn
í sálu
minning er fegurri
en tár
Og sjáðu hvar himinn heiður
handan við þyngstu ský
er dagur sem dugar á ný.
Sigmundur Ernir rúnarsson, janúar 1995.
Kæra fjölskylda innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Elín og Hinrik
- Elín Jónsdóttir | 30/01/06 23:22
|
|
Mig langar að votta öllum þeim sem þekktu Þórey mínar dýpstu samúðarkveðjur, fjölskyldunni hennar, vinum og ættingjum. Þetta er það allra erfiðasta sem hægt er að leggja á fólk og hugur minn er hjá ykkur öllum.
Megi Þórey hvíla í friði.
- Heiða | 31/01/06 10:48
|
|
Grá sorg
Óskiljanleg veröld,
veröld sem stjórnað er utan frá
Yfir nýútsprungið, geislandi blóm fellur dimmur skuggi,
skuggi sem smátt og smátt eykst.
Mikil barátta og bjartsýni einkennir þetta blóm
en að lokum bugast það.
Skugginn nær að hylja það
og við hin horfum frosin á.
En lyktina af því finnum við enn,
heyrum enn smitandi hlátur þess
og fegurð þess gleymist aldrei.
Þetta tiltekna blóm kvaddi alltof fljótt
- María Bjargey Davíðsdóttir | 31/01/06 14:31
|
|
þórey var besti kennari í heiminum
- viktoría | 31/01/06 16:12
|
|
kæra fjölskylda ég vil senda ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur megi guð veita ykkur styrk í þessari miklu sorg
- Inga Edda | 31/01/06 16:26
|
|
Eg vill votta fjölskyldu vinum og öðrum aðstandendum dypstu samúðarkveðjur
- Þórdís ,Sigurgeir og fj | 01/02/06 12:25
|
|
Elsku Þórey að frétta að þú værir dáin voru hörmulegar fréttir. Ég þekkti þig ekki mikið en alltaf þegar ég hitti þig brostir þú og varst þín yndislega sjálf eins og engill í mannsmynd. Ég get skilið af hverju þú ert hrifsuð í burtu frá okkur svona snemma en þeir deyja ungir sem guðirnir elska og þú ert á betri stað.´
Ég sendi mínar innilegustu samúðaróskir til fjölskyldu Þóreyjar.
Hvíli í friði elsku Þórey
- Anna Lucie Bjarnadóttir | 03/02/06 01:22
|
|
Elsku Kæra Þórey, ég er núna búin að þekkja þig síðan ég byrjaði í skólanum á ísafirði í 6 bekk, og fyrsta minningin mín um þig var þegar þú og Dagný Finnbjörns komuð til mín flissandi til þess að segja mér að bróðir þinn væri svo skotinn í mér. og svo á einu ballinu í 6 bekk.. þegar þú Dagný og Birgitta Rós komuð og tosuðuð í mig hlæjandi og sögðuð að þið höfðuð manað Þóri til að vanga við mig, ég eins mikil stákastelpa og ég var, vissi ekki hvað vangadans var, og tók þessu mjög illa, og settist niður í fýlu..:P Hvað þó brostir áhyggjulaus út í heiminn þá. OG aldrei grunaði mig að 14 janúar daginn sem afi minn var jarðaður yrði sá síðasti sem ég talaði við þig, þú fórst nokkrum dögum seinna, ég sat til borðs í Snorra Sturlusyni að var að fara að fá mér að borða kl. var 6 þegar ég heyri í fréttunum umm þetta hræðilega slys, um leið og fréttaþulurinn þagnar þá hleip ég í símann og hringi í mömmu, en hún svaraði ekki, þá hringdi ég heim og mér var sagt að hún væri í útkallinu. Hún hringdií mig strax og hún kom heim, ég spurði bara um leið og ég fékk símann í hendurnar og bað til guðs að þetta væri eitthver sem að ég þekkti ekki, En nafnið Þórey vinkona kom upp í símanum, mér brá, hélt ekki að þetta væri þú heldur vinkona mömmu, svo þegar fór að spurja út í þetta og út í hana, þá sagði hún: Nei Kristín Þórey vinkona þín, þín þórey, þá missti ég andann og öskraði nei svo hátt að ég held að það hafi heyrst á næsta skip, svo byrjaði ég bara að gráta, grét og grét í símanun við mömmu, sem sagði mér það að þú skilaðir svo innilegri kveðju til mín síðast þegar hún hitti hana, sem var bara daginn áður. Eftir að ég talaði við mömmu þá fó ég upp í brú til Didda frænda og grét úr mér augun í faðmni hans. Trúði bara ekki að þetta hafði gerst.
Það fyrsta sem ég hugsa um þegar ég hugsa til þín Þórey er: ÉG held að Þórey verði læknir. Þetta sagði Birgitta Rós svo marg oft þegar hún var að skoða skriftina þína, þú varst með svo mikla læknaskrift.
Þú fórst alltaf svolítið hjá þér þegar fólk hrósaðir þér, það var svo gaman að horfa á þig roðna, því þú varst svo svakalega sæt þegar þú roðnaðir og fórst hjá þér:P Síðasta sinn sem ég sá þig roðna var þegar ég sagði þér að þú værir alls ekki nördið.. því að þú varst að segja mér það að þórir væri þessi vinsæli sem þorði að tala við alla, og þú værir nördið því þú værir svo feimin, ég var sko ekki á sama máli! þú fórst svo innilega hjá þér þegar ég fór að telja upp hina og þessa hluti um það að þú værir sko alls ekki nörd. Roðnaðir við öllum hrósunum.
Það er svo margt að minnast, allar jógaæfingarnar okkar og ferðirnar okkar saman í stúdíóið og þegar þú byrjaðir að vinna þarna, þá fórum við oft saman á morgnana, samtölin okkar þegar við vorum að fara heim til þín á síðasta ári í einhverri eyðunni eða í hádeginu, Og á leiðinni til baka í eitt sinn þegar þú fattaðir allt í einu að þú værir komin aðeins hraðar en mátti keyra, og hægðir strax á þér! þegar þú sýndior mér allar myndirnar af þér og Þóri saman uppi á vegg,þegar þið voruð lítil. Alltaf brostiru. OG þegar við vorum að æfa saman körfu í 7 bekk, mér fannst þú alltaf svífa yfir völlinn með boltann íhöndunum ístað þess að hlaupa, en svo fór ég á sjóinn og einu skiptin sem ég gat verið með þér og talað við þig var þegar ég kom í land.
Ég man svo þegar þú fékkst nýja bílinn þinn þennan bláa.. varst svo spennt að þú gast ekki beðið, ég var með þér, og mér leið bara eins og ég væri að eignast bíl sjálf!
OG ekki gleymi ég því hvað þú skemmtir þér vel í áramótapartýjinu heima hjá mer!
En Elsku þórey mín, litli engillinn minn með blíðu augun og fallega brosið það eralveg óendanlegt hvað ég sakna þín mikið, og mér finnst ömurlegt að hugsa til þess að hitta þig ekki aftur, og við sem ætluðum að hittast þegar ég kæmi í land eftir þennan síðasta túr minn, mig kvíður fyrir að koma vestur og það ert engin þú, en jæja elsku ástin mín, ég mun hafa þig hjá mér í kveðjupartýinu mínu sem þú varst svo spennt fyrir að koma í og ég mun hafa þig með mér til brasilíu!
ÉG elska þig innilega mikið, og haltu vörð um þína. Passaðu Þóri sérstaklega vel, og gættu þess að hann fari vel með sig, og líka restinni af fjölskyldu þinni, ég veit að þau sakna þín sárt.
Mig Dreymir Kannski Engil
Sem Óðar Svífur Hjá
MEð Silfur Skæra Vængi
Og Varla Flugi Náð.
Dýpstu samúðaróskir til Þóris og fjölskyldu, það er sárt að missa.
Kristín Ósk
- Kristín Ósk Jónsdóttir | 03/02/06 01:48
|
|
Megi guð styrkja fjölskyldu þína í sorginnni. Það er fátt eins átakanlegt og að horfa á eftir ungu fólki farast í umferðinni. Vonandi hvílir sál þín á æðri og betri stað núna.
- Harpa Lilja Júníusdóttir | 03/02/06 15:44
|
|
Kæra Þórey við munum alltaf eftir því þegar við vorum í samkaup og fá okkur nammi við löbbuðum alltaf til þín þótt það væri leingsta röðin við vitum ekki afhverju kannski út af því okkur leið betur við að labba til þín.Við töluðum oft við þig og spurðum þig spurningar.okkur finnst það mjög ósanngjarnt að þú fóst frá okkur þú varst alltaf svo góð við alla og alltaf glöð.Við munum sakna þín elsku Þórey.
hvíldu í friði.
- Hildur og Margrét. | 04/02/06 19:43
|
|
Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Þóreyjar vegna hörmulegs fráfalls hennar.
- Halldór Halldórsson | 07/02/06 00:51
|
|
Kæra Þórey,
Ég þekkti þig kannski ekki mikið en ég hef aldrei hitt manneskju sem hefur tekið mér jafn vel og hún. Þér var allveg sama hvernig ég leit út eða hver ég var þú tókst mér eins og þú hafði þekkt mig lengi og fyrir þau stuttu kynni sem ég átti að þér mun ég ætíð þakka fyrir!
en við Þóri og systur hans vil ég segja að því miður þekki ég það of vel hvernig það er að missa nákomið systkini manns og ég get best líst því eins og að hluti af hjarta manns sé rifinn í tætlur! En það er mikilvægt að kenna sér ekki um því að ekkert gat komið í veg fyrir þennan harmleik!
Maður á að hugsa frekar um góðu minningarnar heldur en að hugsa um hvað hefði getað breytt því sem gerst hefur! Ég veit og vona að Þórey og Unnur hittist á himnum því þær voru sko sannir ENGLAR Í MANNSMYND!:(
Ég vil bara segja að lokum að ég sendi allan minn styrk og stuðning til fjölskyldu og vina Þóreyjar!
- Þorgerður Erla Bjarnadóttir | 13/02/06 12:46
|
|
ELsku Þórey.. Varð bara að segja það sem mér lá á hjarta. Ég vissi ekki að það væri hægt að sakna þin svona mikið. Get ekki lýst því hvað ég vildi hafa þig hér hjá okkur öllum. Það sakna þin allir svo mikið. Hélt að það væri ekki hægt að sakna einnar manneskju svona mikið en það hefur sannast síðan þú fórst frá okkur. En ég vona og veit að þú fylgist með okkur og verndar okkur öll. Takk fyrir allar góðu stundirnar elsku Þórey mín. Lagið Yellow mun halda minningunni um þig á lofti allt til enda. Get ekki hlustað á lagið án þess að allar minningarnar um þig streymi fram. En það er gott að hugsa til þess að þér líður vel þar sem allt er gott og fallegt. En ég sakna þin svo mikið.
Láttu þér líða vel
-Margret
- Margrét Heiða Magnúsdóttir | 23/02/06 21:32
|
|
hæ vona að þér líði vel á himnum ég sakna þín Þórey systir mín saknar þín líka.....Þú varst góð þjálfari og við munum öll sakna þín meiri seiga alllur Ísafjörður mun sakna þín því þú varast alltaf til staðar þegar einhver þarnaðist þín bæbæ við munum sakna þín bæ;(;(;(;(
- Guðlaug Brynja | 04/03/06 14:49
|
|
Kæra vinkona
Í dag fóru stelpurnar þínar á sitt fyrsta stóra mót. Þegar ég stóð við rútuna og var að kveðja tók ég eftir því hvað þig vantaði mikið. En ég hugga mig við að þú ert trúlega með þeim þarna í rútunni og stendur stolt og brosandi á hliðarlínunni á morgun.
Við söknum þín sárt fallega stelpa
Guðný og Árdís Eva
- Guðný | 10/03/06 18:47
|
|
Takk fyrir allt saman Þórey...
Það er svo margt sem ég hef að segja, en kem því bara ekki frá mér...
Ég átta mig ekki alveg á þessu, maður veit ekki hvað maður hefur fyrr en maður hefur misst það.
Þú varst og ert svo sannarlega engill í mínum huga.
- Agnes Kristín Einarsdóttir | 22/03/06 01:21
|
|
Elsku Þórey mín til hamingju með afmælið! Í dag var körfubolta leikur og ég mætti á hann og það var spennadni og hvern einasta skipti sem ég horfði á Þórir sá ég þig :( og svo kom Halla og var eitthvað að tala við stelpurnar og allt í einu heyrist: hvar er Þórey? hún ætlaði að segja Helga:/ og ég fékk bara tár í augun! :'( Ég mundi gefa allt til þessa að fá að knúsa þig á þessum degi og bara sjá þig og þetta fallega bros þitt! Ég vissi ekki að það væri hægt að sakna einhvern svona mikið! Svona ógeðslega mikið, en núna veit ég hvað það er mikið sársauki. Elsku Þórey vona að þér liði vel og ég bið spennt þegar við hittumst á ný:)
- Dominika Majewska | 25/03/06 21:27
|
|
Jæja ástin okkar.. nú í dag hefðir þú orðið 18 ára og værir sennilega að sletta ærlega úr klaufunum með honum Þórir í bænum ef þú værir hjá okkur :) Margar minningar hafa skotið upp kollinum síðan þú fórst og eiga þær allar sameiginlegt að vera góðar.. eins og þú ert :) Eins og til dæmis þegar við vorum saman að keyra á milli Búðardals og svæðisins sem ættarmótið var haldið (2004) og þá var Jónsa júróvisjónlagið sett í geislaspilarann og við tókum þvílíku aríurnar með honum.. honum hefði eflaust gengið betur í keppninni úti ef við hefðum farið með honum ;) blink blink!
Nú erum við hin að reyna að halda áfram en með mis góðum árangri og þá eru miklar sveiflur á milli daga og jafnvel klukkutíma..Við söknum þín alveg óskaplega óskaplega !! en vitum samt að við eigum þig alltaf hjá okkur hérna í anda og að við munum hitta þig þegar við komum yfir.. í rauninni finnst manni ekki jafn ógvænlegt að vita til þess að maður eigi sjálfur eftir að deyja því þú munt taka á móti okkur :* ekki slæm móttökunefnd þar á ferð..
Elsku Þórey, ég elska þig að eilífu og sakna þín óendanlega.. og höfum við hugsað mikið til þín alltaf og ekki síst í dag á afmælisdaginn þinn..
kveðja, Rakel systir
- Rakel Guðmundsdóttir | 25/03/06 23:46
|
|
ég samhyggist innilega hvíldu í friði;*
- Halla Björg | 29/03/06 15:30
|
|
Jajja Þórey mín, það var ótrúelga gott og gaman að spila leik með gamla liðinu okkar á afmælisdagin þinn, en við hefðum nú eflaust staðið okkur betur ef þú hefðir verið a ðspila með.. Og það vantaði þig í partýið um kvöldið sem var heima hjá söru, þú hefðir skemmt þér svo ótrúlega vel.. Tímin er svo fljótur að líða, ég er ekki enn farin að trúa því að þú sért farin frá okkur, og bíð ég eftir að koma til þín, faðma þig og segja þér að mér þyki endalaust vænt um þig.. Ég bíð ennþá eftir að sjá Þig í skólanum, og fá hrós frá þér eins og þér var líkst, alltaf hrósað sama hvað það var, og það var alltaf gott að heyra það frá þér:*
Elsku Þórey ég sakna þig allveg ofboðsleg mikið og er mjög erfitt að hugsa til þess að þú sér ekki hérna, það kemur ekki sá dagur að maður tárist við að hugsa um þig..
elsku Þórey hafði það sem allra best, elska þig engillinn minn..
Dagný Finnbjörnsdóttir
- Dagný Finnbjörnsdóttir | 31/03/06 11:39
|
|
Elsku Þórey, ég sakna þin rosalega mikið og vildi meira en allt að þú værir hérna hjá okkur ennþá, við stelpurnar, gamla liðið kepptum á afmælisdaginn þinn, minningarleik fyrir þig, og erum allar spentar fyrir því að koma aftur saman og fara að æfa, en það verður aldrei eins án þín, vantar alltaf þig til að hrósa manni sama hvað það er, og það vantaði þig með okkur í liðið þegar við vorum að spila, með þér hefði við eflaust unnið leikin.. En ég er ennþá í skíjunum hvað það var hægt að skemmta sér mikið og að koma aftur saman, allt gert fyrir þig Elsku Þórey, þú varst alltaf að biðja okkur um að koma að æfa aftur og maður verður nú að láta verða að því..
En það skemmtu sér allir vel í afmælinu ykkar og við skáluðum í drykknum þínum, en það er allt öðruvísi án þín, það líður ekki sá dagur að ég tárist og hugsi til þín, mér finnst ofboðslega gott að hlusta á lagið þitt yellow, en mig dreymdi þig um dagin og þú varst að segja mer að ég ætti ekki að láta mér líða svona illa þegar ég hlusta á það, það er svo mikið til í þessum orðum, núna er því miður ekkert annað að gera en að lifa með því að þú sért ekki lengur hérna hjá okkur..
Elski Þórey mín, ég veit ekki hvað ég get sagt, ég sakna þín svo mikið, ég sakna þess að sjá þig í skólanum með þetta fallega bros og fá alltaf hrós frá þér, sama hvað það var, og að tala við þig, alltaf eitthvað skemmtinlegt að tala um..
elsku Þórey mín, ég elska þig og mun alltaf gera, láttú þér líða vel..
Dagný Finnbjörnsdóttir..
- Dagný Finnbjörnsdóttir | 31/03/06 15:31
|
461 færslur
|